Hebrews · Chapter 4
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 133 of 174 · about 2 min
[ breyta] Því látum oss hræðast það vér forsómum ekki það fyrirheit inn að koma til hans hvíldar og enginn vorra eftir verði. Því að það er oss einninn kunngjört svo sem hinum. En orðið predikunarinnar hjálpaði hinum ekkert nær þeir trúðu ekki sem það heyrðu. Því að vér, hverjir trúum, inngöngum í hvíldina svo sem að hann segir: Eg svór í minni reiði það eigi skyldu þeir til minnar hvíldar koma. Og að sönnu þá þau verkin í upphafi veraldarinnar gjörðust, sagði hann í nokkrum stað af hinum sjöunda degi líka svo: Og Guð hvíldist á sjöunda degi af öllum sínum verkum. Og hér í þessum stað enn aftur að þeir skulu eigi koma til minnar hvíldar.
Með því að það er enn fyrir höndum að nokkrir skulu til þeirrar sömu koma og þeir, hverjum það í fyrstu kunngjört er, eru þar ekki til komnir fyrir þeirra vantrúar sakir, þá ásetur hann enn aftur nokkurn dag eftir slíkan langan tíma og segir fyrir Davíð: Í dag. Svo sem að sagt er: Í dag, ef að þér heyrið hans rödd, þá forherðið ekki yðar hjörtu. Því að ef Jósue hefði þá til hvíldar leitt, hefði hann aldregi eftir það af nokkrum öðrum degi sagt. Fyrir því er þar enn hvíld fyrir höndum fólki Guðs. Því að hver til hans hvíldar er kominn, hann hvílist einninn af sínum verkum svo sem Guð af sínum.
Svo látum oss nú kapp á leggja inn að komast til þessarar hvíldar upp á það að enginn falli í það sama eftirdæmi vantrúarinnar. Því að Guðs orð er lifandi og kröftugt og hverju tvíeggjuðu sverði hvassara og gegnumsmýgur allt þar til það í sundur skilur sálina og anda, einninn brjósk og bein og er dómari hugrenninganna og hjartans hugarlundar. Og þar er engin skepna fyrir honum ósýnileg, en allir hlutir eru nöktir og óhuldir fyrir hans augum, til hverra vér tölum.