Hebrews · Chapter 5
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 134 of 174 · about 4 min
[ breyta] Með því vér höfum máttkan biskup, Jesúm son Guðs, hver til himins er farinn, svo látum oss halda fast þeirri viðurkenning. Því að vér höfum eigi þann biskup sem ekki kann sampíning hafa með vorum breyskleika, heldur sá sem freistaður er á allan hátt líka svo sem að vér, þó án synda. Fyrir því látum oss þar að ganga með hugarhreysti til þess náðarinnar veldisstóls svo að vér öðlumst miskunnsemi og náð finnum á þeim tíma nær vér þurfum fulltings við. Því að hver biskup af mönnum til kjörinn, sá verður fyrir mennina settur í þeim hlutum sem að eru fyrir Guði upp á það hann fórnfæri gáfur og helgioffur fyrir syndirnar.
Sá sem samharma kann þeim sem fávísir eru og villir fara og með því hann er sjálfur umgefinn með breyskleika, fyrir það hlýtur hann jafnt líka sem fyrir fólkið einninn fyrir sig sjálfan að offra fyrir syndirnar. Og enginn tekur sér sjálfum heiður til, heldur hann sem kallaður verður af Guði svo sem Aron. Svo hefir Kristur ekki einninn sig sjálfan innsett í heiðurinn það hann yrði biskup, heldur sá sem til hans hefir sagt: Þú ert minn sonur, í dag ól eg þig, - sem hann einninn enn í öðrum stað segir: Þú ert eilíflega kennimaður eftir skikkan Melkísedeks.
Og hann hefir á degi síns holds bænir og beiðni með öflugu kalli og tárföllum offrað til hans sem af dauðanum bjarga kunni og er einninn heyrður fyrir það að hann vegsamar Guð. Og þótt hann væri Guðs son, hefir hann þó, í því hann leið, hlýðni lært. Og þá hann fullkomnaður er, er hann vorðinn öllum, hverjir honum hlýðugir eru, tilefni eilífrar sáluhjálpar, af Guði biskup kallaður eftir skikkan Melkísedeks. Þar út af höfðu vér margt að segja, en það er þungt á meðan þér svo skilningslitlir eruð. Og þér sem fyrir löngu skylduð meistarar vera, þurfið nú við aftur það vér lærum yður þann fyrsta bókstaf guðlegs orðs og það vér gefum yður mjólk og öngvan orðinn mat.
Því að hverjum vér hljótum mjólk að gefa, sá er óreyndur í orði réttlætisins því að hann er ungberni. En hinum fullkomnum heyrir megn matur sem af siðvana hafa iðkuð sinni til frágreiningar góðs og ills. Sétti kapítuli [ breyta] Fyrir því vilju vér þann lærdóm af upphafi kristilegs lífernis nú fara láta og til algjörvileiksins að grípa (eigi aftur að nýju grundvöll leggjandi iðranarinnar dauðra verka og trúarinnar á Guð, skírnarinnar, lærdómsins, handauppleggingunnar, upprisunnar framliðinna, eilíflegs dóms). Og þetta vilju vér gjöra ef Guð vill annars til steðja.
Því að það er ómögulegt að hinu sömu sem eitt sinn uppbirtir eru og smakkað hafa himneska gáfu og hluttakarar eru vorðnir heilags anda og smakkað hafa hið góða Guðs orð og kraft eftirkomandi veraldar og ef þeir affalla aftur að nýju og krossfesta á sjálfum sér son Guðs og fyrir skimp halda það þeir skyldu aftur endurnýjaðir verða til yfirbótar. Því að jörðin, sem regnið drekkur það oftsinnis á hana kemur og hagkvæmilegt gras ber þeim sem hana yrkja, meðtekur blessan af Guði. En sú sem þistla og þyrna ber, hún dugir ekki og er bölvaninni næst, hver að síðustu uppbrennd verður. En vér treystum, elskulegir, nokkru betur til yðar það þér sáluhjálpinni nánari sé þó að vér tölum svo.
Því að Guð er ekki ranglátur það hann gleymi yðvars gjörnings og kærleikans erfiðis sem þér auðsýnduð við hans nafn þá þér þjónuðuð heilögum og enn þjónið. En vér bígerum það hver einn yðvarra auðsýni það sama kostgæfi í voninni fast að halda allt til enda að þér letjist eigi, heldur eftirfylgjarar þeirra sem fyrir trúna og þolinmæði fyrirheitið erfa. Því að líka sem Guð fyrirhét Abraham þá hann við öngvan æðra hafði að sverja, svór hann við sjálfan sig og sagði: Sannlega skal eg blessa og margfalda þig. Og með því hann bar þolinmóðlega biðlund öðlaðist hann fyrirheitið. Mennirnir sverja við annan æðra en þeir eru, og sá eiður gjörir enda allrar sundurþykkju svo að trútt blífur milli þeirra.
En þá Guð vildi yfirgnæfanlega auðsýna erfingjum fyrirheitsins að sitt ráð er óumskiptilegt, hefir hann þar til eið á lagt upp á það vér hefðum fyrir tvær greinir, þær óumskiptilegar eru (því það er ómögulegt að Guð ljúgi), öruggt traust, vér sem tilflótta höfum og fastlega höldum þeirri fyrirsettri von, hverja vér höfum sem annað fast og öruggt akkeri sálarinnar, sú einninn inngengur í hið innra fortjaldsins þar eð fyrirrennarinn er fyrir oss inngenginn, Jesús, að eilífu biskup vorðinn eftir skikkan Melkísedek.