The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 135

Hebrews · Chapter 6

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 135 of 174 · about 5 min

← Chapter 134Chapter 136 →

[ breyta] En þessi Melkísedek var konungur til Salem, kennimaður Guðs hins hæðsta, hver Abraham í móti gekk þann tíð hann kom frá orrustu konunganna og blessaði hann, hverjum Abraham gaf tíund af öllu gósi. Í fyrstu útleggst hann konungur réttlætisins. Eftir það er hann einninn konungur Salem, það er konungur friðarins, utan föður, utan móður, án slektis, hafandi hvorki upphaf daganna né endalok lífsins. Hann er og samjafnaður syni Guðs og blífur kennimaður að eilífu. En gætið að hversu mikill að hann er, hverjum Abraham, sá patríarki, gaf tíund af herfanginu.

Og að sönnu synir Leví þann tíð þeir meðtaka kennimannsskapinn, hafa þeir boðorð til tíundina inn að taka af fólkinu (það er af þeirra bræðrum) eftir lögmálinu þó að þeir eru einninn sjálfir af Abrahams lendum komnir. En hann, hvers kynferði eigi nefnt verður meðal þeirra, sá tók tíund af Abraham og blessaði þann sem fyrirheitið hafði. En án alls mótmælis er það svo að sá hinn minni verður af hinum æðra blessaður. Og hér taka tíund dauðlegir menn, en þar burtu vottar hann það hann lifi og það eg segi svo það Leví, sá tíundina inntekur, er einninn tíundaður fyrir Abraham þá þegar hann var í lendum föðursins þann tíð Melkísedek gekk honum á móti.

Því ef að fullkomnan væri vorðin fyrir levítískan kennimannsskap (því að undir þeim hinum sama hefir lýðurinn lögmálið meðtekið), hvað væri þá þörf framar meir að segja að þar annar kennimaður skyldi koma eftir skikkan Melkísedek og eigi eftir skikkan Arons? Því hvar kennimannsskapurinn umskiptist, þar hlýtur einninn lögmálið um að skiptast. Því þar slíkt er af sagt, sá er af öðru slekti, út af því sem enginn nokkurn tíma altarinu þjónað hefir. Því það er þó opinbert að vor Drottinn er kominn frá Júda, til hvers slektis Moyses hefir ekkert talað af kennimannsskapnum.

Og svo er það enn ljóslegar ef annar kennimaður uppkemur eftir líking Melkísedek, sá ekki er gjörður eftir lögmáli líkamlegs boðorðs, heldur eftir kraft óendilegs lífs. Því að hann vitnar: Þú ert kennimaður að eilífu eftir skikkan Melkísedek. Því þar fyrir aftekst hið fyrra lögmálsboðorð (með því það var veikt og ógagnsamt því lögmálið kunni ekkert fullkomið að gjöra), og innleiddist önnur betri von, fyrir hverja vér nálægjunst Guði. Og það hið mikla er ekki án eiðs. Því að hinir eru án eiðs kennimenn vorðnir, en þessi meður eiði fyrir þann sem til hans sagði: Drottinn svór, og það mun eigi iðra hann: Þú ert kennimaður að eilífu eftir skikkan Melkísedek.

Svo næsta mikils betra testamentis tilsagnari er Jesús vorðinn. Og hinir eru margir sem kennimenn urðu fyrir það að dauðinn leyfði þeim eigi að blífa. En þessi, fyrir því hann eilíflega blífur, hefir hann óforgengilegan kennimannsskap. Þar fyrir kann hann og einninn að hjálpa eilíflega þeim sem fyrir hann koma til Guðs og lifir ævinlega og biður fyrir þeim. Því að slíkan biskup sæmdi oss að hafa, sá sem væri heilagur, saklaus, óflekkaður, syndugum fráskilinn og hærra en að himinninn er, hverjum daglega eigi þörf gjörist svo sem að hinum öðrum biskupum í fyrstu fyrir sínar eiginlegar syndir að fórnfæra, eftir það fyrir fólksins syndir.

Því það gjörði hann einu sinni þá hann sjálfan sig fórnfærði. Því þá menn sem lögmálið setur til presta hafa breyskleik. En þetta eiðsins orð, það eftir lögmálinu er sagt, setur soninn eilífan og fullkominn. Átti kapítuli [ breyta] Það er nú upphæðin þess þar vér afsegjum það vér höfum þann biskup sem að situr til hægri handar í tignarstólinum á himnum og heilagra auðæfa og sannarlegrar tjaldbúðar handverksmaður, hverja Guð hefir uppbyggt og eigi maðurinn. Því að hver biskup verður til settur að offra gjafir og fórnir. Fyrir því hlýtur þessi einninn nokkuð að hafa það hann offri.

Og ef væri hann nú á jörðu, þá væri hann eigi prestur á meðan að þar eru þeir nokkrir sem eftir lögmálinu gjafir offra, hverjir að þjóna þeirri fyrirmynd og skugga himneskra auðæfa svo sem það guðlega andsvar til Moysen sagði þá hann tjaldbúðina fullkomna skyldi: Sjá til (sagði hann) að þú alla hluti gjörir eftir þeirri fyrirmynd sem þér er á fjallinu sýnd. En nú hefir hann annað æðra embætti öðlast svo sem hann annars miklu æðra testamentis meðalrennari er, hver einninn á æðra fyrirheit stendur. Því ef hitt fyrra hafði óstraffanlegt verið, þá hefði ekkert rúm leitað verið hinu öðru.

Því að hann straffar þá, svo segjandi: Sjáið, þeir dagar munu koma (segir Drottinn) það eg man yfir hús Íraels og yfir hús Júda setja nýtt testament, eigi eftir því testamento er eg gjörða við feður þeirra á þeim degi þá eg greip þeirra hönd í þann tíð eg útleidda þá af Egyptalandi. Og með því þeir blifu ekki í mínu testamento, þá hefi eg þá úr minni líða látið, segir Drottinn. Því að þetta er það testament það eg nú mun setja húsi Íraels eftir þessa daga (segir Drottinn): Mín lög mun eg gefa í þeirra hugskot og í þeirra hjörtu mun eg þau skrifa. Og eg mun þeirra Guð vera, og þeir skulu mitt fólk vera. Og eigi skal nokkur þurfa sinn náung að læra né sinn bróður og segja: Viðurkenn þú Drottin.

Því að þeir skulu mig allir kenna í frá hinum minnsta til hins stærsta. Því að eg mun líknsamur vera þeirra afgjörðum, og syndir þeirra og ranglæti vil eg eigi í minni leggja. Í því sem hann sagði hið nýja, gjörði hann það fyrra gamalt. En hvað gamalt og aldrað er, það er nærri sínum ævilokum.

← Chapter 134Chapter 136 →