The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 136

Hebrews · Chapter 7

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 136 of 174 · about 3 min

← Chapter 135Chapter 137 →

[ breyta] Hið fyrra hafði að sönnu sínar réttlætingar, dýrkanir og veraldlegan heilagleik. Því að hinn fremri hlutur tjaldbúðarinnar var upp gjörður, í hverjum að var kertastikan, borðið og fórnarbrauðin, og þessi kallaðist hinn heilagi. En á bak öðru fortjaldinu var tjaldbúðin, sú sem kallaðist hin allra heilagasta, hver eð hafði reykilsisgullkerið og testamentsörkina alla vega með gulli roðna, í hverri var gullfatan sem himnabrauðið hafði og vöndinn Arons sem blómgaðist og testamentisspjöldin, hvar upp yfir voru kerúbíni dýrðarinnar yfirskyggjandi líknarsætið, af hverju nú er ekki neitt sérlegt að segja.

Þá þetta var nú svo til búið, gengu kennimennirnir iðulega í hið fremra tjaldbúðarhúsið og afluku þar fórnaembættinu.

En í hitt annað inn gekk einu sinni á árinu alleinasta biskupinn, eigi án blóðs, hverju hann offraði fyrir sínar eiginlegar og fólksins syndir þar hinn heilagi andi með merktist að vegurinn til heilagleiksins væri þá enn eigi opinberaður á meðan hið fremra tjaldbúðarhúsið stæði, hvert að hlaut í þann sama tíma fyrirlíking að vera, í hverju gjafir og fórnfæringar offraðar urðu, hvað þó eigi kunni fullkomið að gjöra eftir samviskunni þann sem guðsþjónustuna framdi alleinasta með mat og drykk og margvíslegar skíringar og holdsins réttlætingar sem allt til tíma betrunarinnar voru uppálagðar.

En Kristur er kominn það hann sé biskup eftirkomandi auðæfa, fyrir stærri og algjörðari tjaldbúð, þá sem ekki er með höndum gjörð, það er þá sem ekki er þeirrar sköpunar, ekki einninn fyrir hafrablóð né kálfa, heldur er hann fyrir sitt eigið blóð eitt sinn inngenginn í hið heilaga og fann eilífa endurlausn. Því ef uxanna og hafranna blóð og askan kvígunnar á dreifð helgar hina saurugu til holdsins hreinsunar, hversu miklu framar mun þá blóðið Kristi sem sjálfan sig hefir án flekkunar fyrir heilagan anda Guði offrað að hann hreinsaði vorar samviskur af dauðum verkum til að þjóna Guði lifanda.

Og þar fyrir er hann einninn meðalgöngumaður hins nýja testamentis svo að fyrir þann dauða sem skeður er til frelsunar út af þeim yfirtroðningum (þær sem undir hinu fyrra testamentinu voru) svo að þeir meðteki eilífa arfleifð fyrirheitsins.* Því hvar eð testamentið er, þá hlýtur þar þess dauði að ske sem testamentið gjörir. Því að testamentið verður staðfest fyrir dauðann, elligar dugir það ekki meðan hann nú lifir sem það hefir gjört, hvar fyrir hið fyrra var eigi án blóðs til stiktað.

Því þann tíð Moyses út talað hafði af öllum boðorðum lögmálsins fyrir öllu fólkinu tók hann kálfa og hafrablóð með vatni og purpuraullu og ísópo og stökkti á bókina og allt fólkið, segjandi: Þetta blóð er þess testamentis, hvert Guð hefir boðið yður. Og líka einninn tjaldbúðina og öll gögn guðsdýrkunar stökkti hann með blóðinu. Og allir hlutir verða sem helst með blóði hreinsaðir eftir lögmálinu, og án blóðsúthellingar sker engin fyrirgefning. Svo hlaut nú fyrirlíking himneskra hluta með slíku hreinsuð að verða. En hinir himnesku sjálfir hljóta betri fórnir að hafa en eð hinar voru.

Því að Kristur er eigi inn genginn í það hið heilaga sem með höndum er gjört (hvert að er samlíking hins réttferðuga), heldur í himininn sjálfan svo hann auglýsist nú fyrir Guðs augliti fyrir oss. Ekki það hann fórni líka svo oft sem hinir aðrir biskupar, þeir á hverju ári inngengu í hið heilaga með annarlegu blóði (annars hefði hann oftar hlotið að líða í frá veraldar upphafi). En nú í endalok veraldarinnar birtist hann eitt sinn fyrir sína eigin fórnfæring til burttöku syndarinnar. Líka svo sem það mönnunum er til skikkað einu sinni að deyja og eftir það er dómurinn, svo er Kristur einu sinni offraður til í burt að taka margra syndir.

En í annað sinn mun hann birtast utan synd öllum þeim sem hans vænta til sáluhjálpar.

← Chapter 135Chapter 137 →