Hebrews · Chapter 8
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 137 of 174 · about 4 min
[ breyta] Því að lögmálið hefir skuggann eftirkomandi auðæfa, ekki líkneskjuna sjálfra auðæfanna. Því hvert ár hlaut að offrast hinar sömu offranir og kunni þó eigi þá sem offruðu fullkomna að gjöra (annars hefði offrið af lagst). Því þeir höfðu öngva samvisku meir syndarinnar sem guðsdýrkunarmenn voru eitt sinn hreinsaðir, heldur sker fyrir það sama hugleiðing syndanna hvert ár. Því að það er ómögulegt að fyrir uxa og hafrablóð syndir í burtu að taka. Fyrir því sem hann kemur í veröldina segir hann: Offran og fórnir vildir þú eigi, en líkamann tilreiddir þú mér. Brennifórnir og syndoffur þókknast þér ekki.
Þá sagða eg: Sjá, að eg kem, fyrst í bókinni er skrifað af mér, það eg skuli gjöra, Guð, þinn vilja. En þar fyrri sem hann sagði: Offranir, fórnan, brennifórnir og syndoffur vildir þú eigi, þær þókknuðust þér einninn ekki, - hverjar eftir lögmálinu offraðar verða. Þá sagði hann: Sjá, það eg kem að gjöra, Guð, þinn vilja. Þar af tekur hann hið fyrra svo að hann inn setji hitt annað, í hverjum vilja það vér erum helgaðir einu sinni, skeðnum fyrir offran líkamans Jesú Kristi. Og hver einn kennimaður er til settur það hann alla daga guðsdýrkan ræki og oftlega samháttaðar offranir gjöri, hverjar eigi kunna syndirnar af að taka.
En þessi fórnaði eina fórnfæring fyrir syndirnar þá ævinlega dugir, situr nú til hægri handar Guðs og eftir bíður héðan í frá þar til hans óvinir verða lagðir til skarar hans fóta. Því að með einni offran hefir hann að eilífu fullkomna gjört þá sem helgaðir verða. En það vitnar oss einninn hinn heilagi andi eftir því hann áður fyrri sagði: Þetta er það testament sem eg man þeim setja eftir þá daga, segir Drottinn. Mín lög mun eg gefa í þeirra hjörtu, og í þeirra hugskotum mun eg þau skrifa. Og þeirra syndir og ranglætingar vil eg ekki meir í minni leggja. Hvar hin sama fyrirgefning er, þar er engin offran meir fyrir syndirnar.
Fyrst vér höfum nú, kærir bræður, þann tryggleik til inngöngu í hið heilaga fyrir blóðið Jesú, í hverju hann tilreiddi oss nýjan og lifandi veg fyrir fortjaldið, það er fyrir sitt hold, hafandi svo máttkan kennimann yfir Guðs húsi, því látum oss þar að ganga með sannarlegu hjarta í algjörvileik trúarinnar dreifðum í vorum hjörtum, viðskildir vondri samvisku og þvegins líkama með hreinu vatni. Og látum oss fastlega halda viðurkenning trúarinnar og örvænta eigi því að hann er tryggur, sá henni hefir fyrirheitið.
Og það vér stundum oss sjálfa innbyrðis með tíðkan kærleiksins og ekki forláta vora samsafnan svo sem sumra er siður, heldur að áminna hver annan, og því miklu framar svo miklu sem þér sjáið daginn taka að nálægjast. Því ef vér mótþróanlega syndir drýgjum eftir það vér höfum meðtekið kynning sannleiksins, þá höfu vér öngva offran þaðan í frá fyrir syndirnar, heldur hræðilegt eftirbið dómsins og eldsins aga sem mótstandarana svelgja mun. Því hver hann brýtur Moyses lögmál, sá hlýtur að deyja utan nokkra miskunnsemd fyrir tveggja eður þriggja vitnan.
Hversu miklu meiri píslir meini þér sá muni verðskulda sem son Guðs með fótum treður og testamentisblóðið saurugt reiknar, fyrir hvert að hann er helgaður, og svívirðir svo náðarinnar anda? Því að vér vitum þann sem segir: Mín er hefndin, eg man aftur gjalda, segir Drottinn. Og enn annað sinn: Drottinn mun dæma fólk sitt. Hryggilegt er að falla í hendur lifanda Guðs. Leggið í minni þá hinu fyrri daga, á hverjum þér uppbirtust þolandi einninn nokkurn deild sjálfir, mikið áhlaup píslanna fyrir svívirðan og hrakningar og að býsnum gjörðir og í sumri deild lagsmenn verið þeirra sem svo hefir gengið.
Því að þér hafið sampínst mínum böndum og ræning yðvarra auðæfa með fagnaði umliðið, vitandi yður að hafa með sjálfum yður aðra betri og blífanlegri fastaeign á himnum. Látið ekki yðvart traust í burt sleppa, hvert að mikið verðkaup hefir. En þolinmæði er yður nauðsynleg svo að þér gjöri Guðs vilja og meðtakið fyrirheitið. Því að innan skamms tíma mun koma sá eð koma skal og mun eigi seinka. En réttlátur mun af trúnni lifa, en sá sig í hlé dregur, á þeim mun sála mín hafa öngva þókknan. En vér erum ekki af þeim sem sig í hlé draga og fyrirdæmdir verða, heldur þeir sem trúa og sálunni bjarga.