The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 138

Hebrews · Chapter 9

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 138 of 174 · about 4 min

← Chapter 137Chapter 139 →

[ breyta] En trúan er örugg staðfesta þeirra hluta sem vér vonum og efum eigi hvað vér sjáum ekki. Fyrir hana fengu hinir gömlu vitnisburðinn. Fyrir trúna undirstöndum vér heiminn gjörðan vera með Guðs orði og það hvað sýnilegt er út af hinu ósýnilegu vorðið. Fyrir trúna hefir Abel Guði meiri offran gjört en Kain, fyrir hverja hann hefir vitnisburðinn fengið það hann réttlátur sé þá Guð gaf vitnan af hans gjöfum. Og um þá sömu talar hann enn þótt hinn sé látinn. Fyrir trúna varð Enok burt numinn að hann sæi eigi dauðann og varð eigi fundinn af því það Guð tók hann á burt.

Því áður fyrri en hann var í burt numinn hefir hann vitnisburðinn haft það hann þókknaðist Guði af því að án trúarinnar er ómögulegt Guði að þókknast. Því hver hann vill koma til Guðs, sá hlýtur að trúa það að hann sé og það hann muni endurlaunari verða þeirra sem hans leita. Fyrir trúna hefir Nói vegsamað Guð og örkina fyrirbúið til hjálpræðis sínu húsi þá hann meðtók guðlegan bífalning um það hvað eigi var enn séð, fyrir hvert hann veröldina fordæmdi og er erfingi vorðinn þess réttlætis sem fyrir trúna kemur. Fyrir trúna varð Abraham hlýðinn þá hann kallaður varð út að ganga á þá jörð sem hann erfa skyldi. Og hann gekk út og vissi eigi hvert út hann mundi koma.

Fyrir trúna er hann framandi verinn á fyrirheits jörðunni svo sem á annarlegri og búið í hreysum með Ísak og Jakob, meðerfingjum sama fyrirheitsins. Því að hann vonaði upp á þá borgina sem grundvöllinn hafði, hverrar uppbyggingar smiður og skapari er Guð. Fyrir trúna meðtók hin óbyrja Sara kraft það hún varð frjóvsöm og fæddi fram yfir tíma hennars aldurs. Því að hún hélt hann trúfastan sem henni hafði það til sagt. Fyrir hvað að margir eru upp runnir af einum (þótt að dáins líkama væri) líka sem stjörnur himins og svo sem sandur við sjávarströnd, hvað óteljanlegt er.

Þessir allir eru í trúnni undir lok liðnir og hafa ekki fyrirheitið með tekið, heldur það af fjarska til séð og hafa þar á treyst og sér nægja látið og viðurkennt það þeir væri á jörðu gestir og framandi. Því að þeir sem þetta segja, þeir gefa til að skilja það þeir annarrar föðurleifðar leiti. Og að sönnu ef þeir hefðu meint hana, af hverri þeir voru út farnir, hefði þeir nógan tíma til aftur um að snúa. En nú girntust þeir aðra betri, það er himneska. Fyrir því óvirðist ekki Guð að kalla sig þeirra Guð því að hann hefir þeim borg fyrirbúið.

Fyrir trúna fórnfærði Abraham Ísak þá hann varð freistaður og fram gaf hinn eingetna, þann sem hann hafði þó í fyrirheitinu með tekið, út af hverjum að sagt var: Í Ísak skal þér hans sæði kallað verða, - íhugandi það Guð kynni af dauða upp að vekja, fyrir hvað hann einninn aftur fékk hann til fyrirlíkingar. Fyrir trúna blessaði Ísak af því hvað eftirkomanda var Jakob og Esau. Fyrir trúna blessaði Jakob, þá hann deyði, báða sonu Jósefs og gjörði lotning hnýfli hans sprota. Fyrir trúna talaði Jósef af útgöngu Íraelssona þá hann deyði og bífalning gjörði um sín bein.

Fyrir trúna varð Moyses, þá hann var fæddur í þrjá mánuði, falinn af sínum foreldrum fyrir því þau sáu það hann var ágætlegt barn og hræddunst ekki kóngsins boð. Fyrir trúna afneitaði Moyses, þá hann gjörðist stór, sig að vera son dóttur Faraonis og kjöri miklu heldur meður fólki Guðs ómak að þola en að hafa stundlegt eftirlæti syndarinnar og hélt vanvirðing Kristi fyrir stærra ríkidóm en fésjóðu egypskra því að hann leit á verðlaunin. Fyrir trúna forlét hann Egyptaland og óttaðist ekki kóngsins grimmd því að hann hélt sig að þeim, hvern hann sá ekki líka svo sem að hann sæi hann. Fyrir trúna hélt hann páskana og blóðsúthellinguna upp á það að eigi snyrti þá sá sem frumburðina drap.

Fyrir trúna gengu þeir í gegnum hafið rauða svo sem um þurrlendi, hvers einninn hinir egypsku freistuðu og drekktust. Fyrir trúna niður hrundu múrveggir Jeríkó, þá er þeir höfðu sjö daga um kring hana gengið. Fyrir trúna varð Rahab, sú hórkona, ei fortöpuð meður vantrúuðum þá hún meðtók þá njósnarmenn vinsamlega. Og hvað skal eg meir segja?

Tíminn verður mér of stuttur nær eg skylda fram þylja af Gídeon, Barak, Samson, Jeftahe, Davíð og Samúel og spámönnunum, hverjir eð hafa fyrir trúna kóngaríkin yfirunnið, réttlætið verkað, fyrirheitið öðlast, leónamunnana til byrgt, eldsins magn útslökkt, sverðsins eggjar umflýð, kröftugir vorðnir úr breyskleikanum, öflgir gjörst í stríðinu, annarlegra herbúðum um velt. Kvinnurnar hafa sína dauðingja af upprisunni aftur fengið. En hinir aðrir eru lemstraðir og gabbaðir og hafa öngva frelsan meðþekkst svo að þeir öðluðust hina betri upprisuna. Sumir hafa háðung og húðstrokur liðið, þar ofan á bönd og fjötranir og steinum grýttir, skammhöggnir, í gegnum stungnir, fyrir sverði vegnir.

Þeir eð um hafa farið í sauðafeldum og geitskinnum með eymdum, með harmkvælum, með ómaki, hverra heimurinn var ekki verðugur, hafa og villir gengið á eyðmörkum, á fjöllum, um fylgsni og hella jarðarinnar. Þessir allir fengu vitnisburðinn fyrir trúna og hafa ekki meðtekið fyrirheitið, fyrir því það Guð hefir eitthvað betra áður til forna um oss fyrirhugað svo að þeir fyrir utan oss yrði ekki fullkomnir gjörðir.*

← Chapter 137Chapter 139 →