Hebrews · Chapter 10
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 139 of 174 · about 3 min
[ breyta] Fyrir því á meðan vér höfum einninn slíkan skýjaklafa vottanna umkring oss, þá látum oss afleggja syndirnar, þær oss jafnan við loða og þyngja, og hlaupum fyrir þolinmæði í þeirri orrustu sem oss er tilskikkuð og álítum Jesúm þann hertuga og fullkomnara trúarinnar, hver eð þann tíð hann hefði vel mátt hafa fögnuð, þoldi hann krossinn og virti forsmánina einskis, og sett sig til hægri hliðar upp á Guðs stóli. Minnist á þann sem þvílík mótmæli í gegn sér af syndurunum þoldi svo að þér letjist ekki né veilist í hugskotunum.
Því að þér hafið enn ekki allt til blóðsins viðstaðið í stríðinu mót syndinni og hafið þegar gleymt þess huggunar sem til yðar segir svo sem til barnanna: Son minn, virt eigi lítils tyftan Drottins, og örvílast ekki þótt þú verðir af honum straffaður. Því að hvern eð Drottinn elskar, þann agar hann, en hvern þann son sem hann að sér tekur, þá strýkir hann. Ef þér tyftunina þolið, þá mun Guð tjá sig yður sem sonum. Því hver sonur er sá, þann er faðirinn tyftar eigi? En ef að þér eruð án tyftanar, hverrar hinir allir eru hluttakarar vorðnir, þá eru þér hjábörn, en ekki synir.
Nú með því einninn vér höfum haft vora líkamlega feður til tyftunarmanna og þá hræðst, skyldum vér þá ekki miklu meir undirgefnir vera hinum andlega föður svo að vér lifðum? Og hinir hafa sennilega fáeina daga oss agað eftir sínum geðþótta, en þessi til nytsemdar svo að vér öðluðunst hans helgan. En öll tyftan nær hún á liggur, þá þykir oss hún engin gleði, heldur hryggð vera, en eftir á mun hún gefa friðsamlegastan ávöxt réttlætisins þeim sem þar fyrir iðkaðir eru. Fyrir því upphefjið aftur tregar hendur og hin þreyttu kné, og gjörið réttan gang með yðrum fótum, svo að enginn afvega skeiki, líka sem þann er haltrar, heldur miklu framar veri sem heilbrigður.
Eftir fylgið friðinum við hvern mann og helguninni, án hverrar það enginn man Drottin sjá. Sjáið og svo til það enginn forsómi Guðs náð svo að þar engin beiskirót í staðinn upp spretti og hindran gjöri og það margir fyrir þá hinu sömu saurugir verði og að þar sé enginn frillulífismaður eður óguðrækinn sem Esau, sá sem að fyrir matar sakir seldi sinn frumburð. Fyrir því þá vitið að hann þar eftir á, þá hann blessunina erfa vildi, er hann útskúfaður. Því að hann fann ekkert rúm iðranarinnar þótt hann hennar með grátandi tárum leitaði.
Því að þér eruð eigi gengnir til þess fjalls sem áþreifanlegt er og með eldi brennur né til þoku eða myrkurs, til hreggviðris, til lúðrarþyts og til raddar orðanna, og þeir, hverjir hana heyrðu, undantöldust það eigi yrði til þeirra orðið talað. Því að þeir kunnu eigi það að standast hvað þar var sagt. Og ef skógdýr snyrti fjallið, þá skyldi það steinum grýtast eða með skeyti í hel skotið verða. Og svo ógurleg var sú sýn það Moyses sagði: Eg em óttasleginn og felmsfullur.
Heldur eru þér gengnir til fjallsins Síon og til borgar Guðs lifanda, til himneskrar Jerúsalem og til margra þúsundir englaflokka og til samkundu hins frumgetna, hver á himnum uppskrifuð er, og til Guðs allra dómara og til andanna algjörvilega réttlátra og til meðalgangarans hins nýja testamenti, Jesú, og til blóðsins yfirdreifingar það meir hefir að segja en Abels. Sjáið til að þér undan teljist ekki þeim sem við yður talar. Því ef hinir eru eigi umflýðir sem honum undantöldust þá hann á jörðu talaði, miklu miður þá vér ef vér undan teljunst þeim sem af himnum talar, hvers rödd þann tíma jörðina bifaði.
En nú heitir hann fyrir og segir: Enn eitt sinn mun eg hræra eigi alleinasta jörðina, heldur einninn himnana. En það hann segir eitt sinn, merk að það hið hræranlega skal umskiptilegt verða líka sem annað smíði svo að það hvað óhræranlegt er, stöðugt blífi, hvar fyrir á meðan vér meðtókum óhræranlegt ríki, þá höfum vér náðina, fyrir hverja vér skulum Guði þjóna honum til þókknunar með hræðslu og siðsemi. Því að vor Guð er mýgjandi eldur.