The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 140

Hebrews · Chapter 11

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 140 of 174 · about 3 min

← Chapter 139Chapter 141 →

[ breyta] Verið staðfastir í bróðurlegum kærleika og gestrisni, forgleymið ekki því að fyrir hana hafa margir þeim óvitandi englunum herbergi veitt. Hugleiðið bandingjana líka sem aðrir sambandingjar og þeirra sem mótgöngu líða svo sem að þér séuð einninn limir þess sama líkama. Hjúskapurinn skal heiðarlegur haldinn vera hjá öllum og hjónabandssængin óflekkuð því að frillulífis og hórunarmenn mun Guð dæma. Lífernið sé án ágirni og látið yður það nægja sem í nánd er. Því að hann hefir sagt: Eg vil eigi yfirgefa þig né hjá fara láta, - svo að vér megum traustlega segja: Drottinn er minn hjálpari, eg man eigi óttast hvað maðurinn mun mér gjöra.

Þenkið á yðra lærifeður, þeir eð Guðs orð hafa sagt yður, hverra ævilokum þá aðhyggið og eftir fylgið þeirra trú. Jesús Kristur gær og í dag og einninn sjálfur hinn sami að eilífu. Látið því eigi afleiða yður með margvíslegum og framandi lærdómum. Því að það er ágætlegt að hjartað sé staðfast, hvað helst að sker fyrir náðina, eigi fyrir fæðsluna, hvar út af öngva nytsemd hafa þeir sem þar með vilja Guði þjóna. Vér höfum það altari, hvar þeir sem tjaldbúðina rækja hafa ekkert vald til af að eta. Því að hverra dýra blóð sem innborið verður af biskupinum í hið heilaga fyrir syndirnar, þeirra sömu hræ verða uppbrennd utan herbúðanna.

Fyrir því hefir einninn Jesús (upp á það hann helgaði það fólk fyrir sitt eigið blóð) utan borgarhliðs liðið. Því látum oss út ganga til hans af herbúðunum og bera hans vanvirðing. Því að hér höfu vér öngvan blífanlegan stað, heldur leitu vér hins tilkomanda. Því látum oss nú offra fyrir hann lofsins offur Guði alla tíma, það er ávöxt varanna sem viðurkenna hans nafn. Gott að gjöra og með að skipta þá forgleymið ekki því að slíkt offur þókknast Guði vel. Hlýðið yðrum lærurum og fylgið þeim. Því að þeir vaka yfir yðrum sálum líka sem að þeir eð reikningsskap þar fyrirgefa, skulu svo að þeir gjöri það með gleði og eigi með andvarpan því að það er yður ógagnsamlegt. Biðjið fyrir oss.

Vort traust er það að vér höfum góða samvisku og kostgæfum oss til vel um að sýslast hjá öllum. En eg meir en beiði yður þar til þvílíkt að gjöra upp á það eg kæmunst hið allra fyrsta aftur til yðar. En Guð friðarins, sá sem út hefir leitt í frá dauðum hinn mikla hirðir sauðanna fyrir blóðið hins nýja testamenti, vorn Drottin Jesúm, hann gjöri yður skikkanlega í öllu góðu verki til að gjöra hans vilja og efli það með yður, hvað fyrir honum þakknæmt er fyrir Jesúm Kristum, hverjum að sé dýrð um aldir og að eilífu. AMEN. Eg beiði yður, kærir bræður, haldið mér það áminningarorð til góða. Því að eg hefi fátt eitt skrifað yður.

Vitið það bróðir vor, Tímóteus, er laus aftur, með hverjum ef hann skjótlega kemur, man eg sjá yður. Heilsið öllum yðar lærurum og öllum heilögum. Yður heilsa bræðurnir af Vallandi. Náðin sé með yður öllum. AMEN. Skrifaður úr Vallandi með Tímóteo.

← Chapter 139Chapter 141 →