James · Chapter 1
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 141 of 174 · about 2 min
[ breyta] Jakob, þjón Guðs vors Drottins Jesú Kristi, þeim tólf kynkvíslum, sem sundurdreifð fögnuð nær þér í margvíslegar freistanir íhratið. Og vitið það að reynslan yðvarrar trúar verkar þolinmæði, en þolinmæðin hefir fullkomið verk svo að þér séuð fullkomnir og algjörðir og í öngu brest hafandi. Og ef einhver yðar þarf við vísdóms, hann biðji af Guði, sá er nóglega gefur hverjum manni og útdrepur það öngum, svo og einninn mun honum það gefast. En hann biðji í trúnni og efi ekki. Því að sá sem efablandinn er, hann er líka sem sjávarbylgja, sú er af vindi verður drifin og uppvægð.
Þvílíkur maður þenki ekki það hann muni af Guði nokkuð öðlast því efablandinn maður er óstöðugur í öllum sínum vegum. En sá bróðir, sem sig lækkar, hann hrósast í sinni upphafning. Og hann sem ríkur er, hann hrósast í sinni lítillæting. Því að líka svo sem blómstur grassins mun hann forganga s og blómstrið affellur og þess fagra álit fordjarfast. Líka svo man auðigur í ríkdæmi sínu uppþorna. Sæll er sá maður sem freistingina þolinmóðlega líður því þar með hann verður reyndur mun hann öðlast lífsins kórónu, hverri Guð hefir fyrirheitið þeim sem hann elska. Enginn segi nær hann freistast það hann af Guði freistaður verði.
Því að Guð er enginn freistari hins vonda, og einskis freistar hann, heldur freistast hver einn nær hann tilteygist af sinni eigin girnd og lokkaður verður. Og síðan, það girndin hefir getið, fæðir hún syndina, en nær syndin er fullkomnuð, fæðir hún dauðann. Villist eigi, kærir bræður. Öll góð gjöf og öll fullkomin gjöf kemur að ofan frá föðurnum ljóssins, í hjá hverjum er engin umskipting né býting ljóssins og myrkursins. Því hann hefir oss getið eftir sinni vild fyrir sannleiksins orð upp á það vér værum frumburðir hans skepna. Fyrir því, kærir bræður, sé hver maður fljótur að heyra, en tregur að tala og til reiði tregur.
Því að mannsins reiði gjörir það eigi, hvað fyrir Guði réttferðugt er. Þar fyrir afleggið allan óhreinleik og illsku og viðtakið orðið með hógværi, það í yður er rótsett, hvað er kann yðrar sálir hjálplegar gjöra.* Verið og einninn gjörendur orðsins, en eigi alleinasta tilheyrendur, hvar þér sjálfa yður með á tálar dragið. Því ef einnhver er orðsins tilheyrari og enginn gjörari, sá er líkur þeim manni sem sína líkamlega ásjánu í spegli skoðar. Því eftir það hann hefir skoðað sig og jafnskjótt sem hann gengur burt þaðan, þá gleymir hann hverninn hans yfirlit var.
En hver í gegnum skoðar hið algjörða lögmál frelsisins og staðnæmist þar inni og er enginn forgleymanlegur heyrari, heldur gjörningsins gjörari, sá sami mun hjálplegur vera í sínu verki. En ef einhverjum á meðal yðar lætur sér þykja það hann þjóni Guði og teymir eigi sína tungu, heldur forvillir sitt hjarta, þess guðrækni er hégómi. En skær og óflekkuð guðrækni hjá Guði föður er hún sem vitjar ekkna og föðurlausra í þeirra hörmungum og sig óflekkaðan af heiminum varðveitir.*