James · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 142 of 174 · about 3 min
[ breyta] Bræður mínir, þér skuluð eigi meina það trúan á Jesúm Kristum, vorn Drottin dýrðarinnar, hafi manngreinarálit. Því þó að inngangi í yðra samkund maður berandi gullbaug og í kostulegum klæðum, en þar kæmi einninn fátækur í ljótum klæðnaði og þér sæjuð á þann sem dýrlegan klæðnað bæri, segðuð til hans: Sit þú hér í góðum sessi, -og til hins fátæka segðuð: Statt þú þarna, - eða: Set þig hér á skör fóta minna, - það úrskurðið þér ekki rétt með sjálfum yður, heldur verðið þér dómarar vondra hugrenninga. Heyrið til, bræður mínir elskulegir. Hefir Guð ekki útvalið fátæka þessarar veraldar, þá í trúnni ríkir eru og erfingjar ríkisins, hverju hann hefir fyrirheitið þeim sem hann elska?
En þér hafið vanheiðrað hina fátæku. Eru hinir ríku eigi þeir sem með yfirgangi niðurþrykkja yður og þeir eð framdraga yður fyrir dómstóla? Hæða þeir ekki það hið góða nafn sem þér eruð afkallaðir. Og ef þér fullkomnið það konunglega lögmál eftir ritningunum það elska skulir þú náunga þinn svo sem sjálfan þig, þá gjöri þér vel. En ef þér hafið manngreinarálit, þá drýgi þér synd og verðið ávítaðir af lögmálinu svo sem yfirtroðslumenn. Því þótt að einnhver héldi allt lögmálið og brotlegur verður í einu, þá er sá þegar alls þess sekur. Því að hann sem sagt hefir það eigi skulir þú hór drýgja, sá hefir einninn sagt það eigi skulir þú í hel slá.
Þótt að þú drýgir nú eigi hór, en í hel slær, þá ert þú yfirtroðslumaður hins lögmálsins. Líka svo talið og svo gjörið sem að þeir eð skulu fyrir lögmál frelsisins dæmdir verða. En þar mun ómiskunnsamur dómur yfir þann ganga sem öngva miskunnsemi hefir gjörða, og miskunnin, hún hrósar sér í móti dóminum. Hvað stoðar það, kærir bræður, þótt einnhver segi hann hafi trúna og hefir eigi verkin? Getur trúan gjört hann hjálplegan? En ef nokkur bróðir eða systir væri nakin og þörf hefði daglegrar næringar og þó einnhver yðar segi til þeirra: Farið í friði, gjörið yður heitt og mettið yður, - en gefi þeim ekki hvað líkamans nauðþurft er, hvað hjálpaði þeim það?
Svo og líka trúan nær eð hún hefir engin verkin, þá er hún dauð í sjálfri sér. En þar mætti einnhver segja: Þú hefir trúna, og eg hefi verkin. Sýn þú mér trú þína út af verkum þínum, og man eg sýna þér mína trú af mínum verkum. Þú trúir að einn sé Guð. Það gjörir þú vel. Djöflarnir trúa einninn og eru þó óttaslegnir. En viltu vita, þú hégómamaður, það trúan án verkanna sé dauð? Er eigi Abraham, faðir vor, af verkunum réttlátur vorðinn þá hann offraði syni sínum, Ísak, yfir altarið? Þar sér þú það trúan hefir samverkað hans gjörðum, og út af verkunum er trúan fullkomleg vorðin.
Og ritningin er uppfyllt sem að segir: Abraham trúði Guði, og það er honum talið til réttlætis, - og er Guðs vin kallaður. Svo sjái þér nú það maðurinn verður af verkunum réttlátur og eigi alleinasta út af trúnni. Svo og einninn portkonan Rahab. Er hún ekki af verkunum réttlát vorðin þá hún meðtók sendiboðana og lét þá um annan veg í burt fara? Því að líka sem líkaminn er án andans dauður, svo er og einninn trúan án verkanna dauð.