The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 143

James · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 143 of 174 · about 2 min

← Chapter 142Chapter 144 →

[ breyta] Hirðið eigi, bræður mínir, fleiri lærimeistarar að vera. Og vitið það vér munum þess meira dóm fá því að allir vér brjótum margfaldlega. En hver hann verður eigi brotlegur í neinu orði, sá er algjörður maður og kann öllum líkamanum í taumi að halda. Sjáið það vér beislum hestana svo að þeir hlýði oss og snúum um öllum þeirra líkam. Sjáið skipin, þó að þau sé stór og verða af megnum vindi rekin, þá verður þeim þó vent af litlu stýri, hvert út sem sá vill er stýrir. Svo er einninn tungan lítill limur og uppbyrjar þó stóra hluti. Sjáið hverninn svo lítill eldur, hversu mikinn skóg hann kann upp að tendra. Tungan er einninn eldur, veröld full ranglætis.

Svo er tungan meðal vorra lima og flekkar allan líkamann og uppkveikir alla vora sýslan nær hún af helvískum upptendruð er. Því að allar náttúrur dýra, fugla og orma og sjóskrímslanna verða tamdar og eru tamdar af mannlegri náttúru, en tunguna getur enginn manna tamið, hið óspakláta, illt, fullt dauðlegs eiturs. Meður henni dýrkum vér Guð föður og með henni formælu vér náunganum, eftir Guðs mynd gjörðum. Af hinum sama munni framgengur blessan og bölvan. Það skal eigi svo vera, kærir bræður. Útvellir nokkuð brunnurinn af samri upprás sætu og beisku vatni? Getur nokkuð, bræður mínir, fíkjutré, viðsmjör eða vínviður fíkjur borið? Líka svo kann ekki hinn sami brunnur salt vatn og sætt að gefa.

Hver hann er vitur og forsóktur á meðal yðar, hann auðsýni af góðri umsýslan sín verk í hógværð og hyggindi. En ef hafi þér beiska öfund og hatur í yðrum hjörtum, svo hrósið yður ekki og ljúgið ekki í gegn sannleikanum. Því að það er ekki sú viska sem af ofan kemur, heldur jarðleg, líkamleg og djöfulleg. Því hvar öfund og hatur er, þar er óstaðfesti og allir hlutir illir. En sú viska, sem af ofan kemur, er fyrst hreinlíf, þar næst friðsöm, hóglát, málhlýðin, góðu samlunduð, full miskunnsemda og góðs ávaxtar, óágreiningarsöm, án smjaðurs. En réttlætisins ávöxtur verður þeim í friði sáður sem friðinn halda.

← Chapter 142Chapter 144 →