James · Chapter 4
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 144 of 174 · about 2 min
[ breyta] Hvaðan koma stríð og baráttur á meðal yðar? Koma þær eigi af yðar girndum sem stríða í yðrum limum? Þér eruð lostagjarnir og öðlist þar með ekkert, þér hatið og öfundið og vinnið þar með ekkið. Þér sláist og berjist og hafið ekki því þér biðjið ekki. Þér biðjið og öðlist ekki af því þér biðjið vondslega svo að þér sóið því í yðrum lostagirndum. Þér hórunarmenn og hórdómskonur, viti þér ekki það veraldarinnar vinfengi er Guðs óvinskapur. Hver veraldarvinur vill vera, sá man Guðs óvin vera. Eða meini þér það ritningin segi til ónýts það að þann anda sem í yður byggir það hann lysti í gegn öfundinni og gefur náðina meiri?
Hvar fyrir segir hann: Guð mótstendur dramblátum, en lítillátum gefur hann náð. Því verið Guði undirgefnir, standið í mót djöflinum, svo flýr hann frá yður. Nálægið yður að Guði, svo nálægir hann sig til yðar. Hreinsið yðar hendur, þér syndugir, og hreinferðug gjörið yðar hjörtu, þér efunarsamir. Verið vesallegir, sýtið og harmið. Því yðar hlátur skal umsnúast í grát og yðvar gleði í hryggð. Lækkið yður fyrir Guði, þá mun hann upphefja yður. Bakbítið ekki hver annan, kærir bræður. Því hver hann bakmælir bróður sínum og hjalar um hann, sá bakmælir lögmálinu og dæmir um lögmálið. En dæmir þú um lögmálið, þá ert þú ekki gjörningsmaður lögmálsins, heldur dómari.
Því einn er sá lögmálsgjafari og dómari sem að um náunga þinn dæmir? Sjáið nú til, þér sem segið: Í dag elligar á morgun munum vér ganga í þessa eður þá borg og viljum þar árið um dveljast og kaupskap fremja og ávinning gjöra. Þér sem þó eigi vitið hvað á morgin ske mun. Því hvað er yðart líf? Ryk er það sem litla stund varir, en síðan hjaðnar það. Þar fyrir skulu þér segja: Ef að vér lifum og ef Guð vill, þá viljum vér þetta eður það gjöra. En nú metni þér yður í yðvarri drambsemi. Öll svoddan metnan er vond. Því að hann sem kann nokkuð gott gjöra og gjörir það ekki, þeim er það synd.