James · Chapter 5
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 145 of 174 · about 2 min
[ breyta] Nú vel, þér auðigir, ýlið og æpið yfir yðar vesöldum, þeim yfir yður skulu koma. Yðvar ríkidæmi eru úlnuð og klæði yðar eru mölétin, gull yðvart og silfur er forryðgað og þeirra ryð mun yður til vitnisburðar vera og man tæra yðru holdi sem eldur. Þér hafið yður reiðisjóðum safnað á síðustu dögum. Sjáið að launin verkmannanna, þeirra sem yðar akurlönd hafa uppyrkt, og hvað þér hafið þá umsvikið, það hrópar, og það þeirra hróp er komið til eyrna Drottins Sabaots. Þér hafið kræsilega lifað á jörðu og yðrar lostasemdir drýgt og kappalið yðar hjörtu svo sem til slátrunardags. Hinn réttláta hafi þér fordæmt og í hel slegið. Og hann hefir eigi mótstaðið yður.
Fyrir því verið þolinmóðir, kærir bræður, allt upp á tilkomu Drottins. Sjáið það akurkallinn væntir ágætlegs ávaxtar jarðarinnar, það þolinmóðlega umlíðandi þar til hann fær morgunregn og kveldskúra. Veri þér einninn þolinmóðir og styrkið yðar hjörtu því að tilkoma Drottins er í nánd. Mótblásið ekki hver annan, kærir bræður, svo að þér fordæmist eigi. Sjáið, að dómarinn er fyrir dyrum. Takið, mínir kærir bræður, til eftirdæmis mótgöngunnar og þolinmæðinnar spámennina, þeir til yðar hafa talað í nafni Drottins. Sjáið, vér prísum þá sem liðið hafa. Þolan Jobs hafi þér heyrt, og ending Drottins hafi þér séð. Því að Drottinn er miskunnsamur og miskunnari.
En fram um alla hluti, bræður mínir, þá sverjið hvorki við himin né við jörð né nokkurn annan eið. En yðar orð sé já það já er, og nei það nei er svo að þér fallið ekki í skrópasemd. Hryggist nokkur meðal yðar, sá biðji. En hver í góðu geði er, sá syngi sálma. En hver sjúkur er, sá kalli til sín öldungana safnaðarins og láti þá biðja yfir sér og sig viðsmjöri smyrja í nafni Drottins. Og bænin trúarinnar mun frelsa hinn sjúka, og Drottinn mun viðrétta hann. Og þó hann hafi syndir gjört, munu þær honum fyrirgefast. Játi hver öðrum sínar syndir og biðjið hver fyrir öðrum það þér heilbrigðir verðið. Því að iðuleg réttferðugs bæn má mikið.
Elías var maður líka svo sem vér, og hann bað bænar að það skyldi eigi rigna, og það rigndi ekki yfir jörðina í þrjú ár og sex mánaði. Í annað sinn bað hann aftur, og himinninn gaf regn, og jörðin bar sinn ávöxt. Kærir bræður, ef að nokkur meðal yðar villist frá sannleikanum og umsnýr honum einnhver, sá skal vita það hver eð syndarann umsnýr í frá villu hans vegar, hefir frelsað önd frá dauða og mun niðri byrgja fjöldann syndanna.