The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 146

1 Peter · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 146 of 174 · about 3 min

← Chapter 145Chapter 147 →

[ breyta] Pétur postuli Jesú Kristi. Þeim útvöldum örlendingum og í sundur tvístruðum í Ponto, Galakía, Kappadókía, Asía, Biþýnía eftir Guðs föðurs fyrirhyggju fyrir helgun andans, til hlýðni og til ádreifningar blóðsins Jesú Kristi. Náð og friður margfaldist yður. Blessaður sé Guð og faðir vors Drottins Jesú Kristi, sá oss eftir sinni mikilli miskunnsemd hefir endurgetið til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Kristi frá dauðum til ófallvaltrar, óflekkaðrar og óumskiptilegrar arfleifðar sem varðveitist á himnum. Yður, þér sem af Guðs makt fyrir trúna varðveittir verðið til sáluhjálpar þeirrar sem tilreidd er það hún opinberist á síðustum tímum, í hverri þér munuð gleðjast.

Þér sem nú litla stund (hvað að byrjar) hryggvir eruð í margvíslegum freistingum upp á það að yðvar trú réttilegri og dýrðmætari fundin yrði (en það hið forgengilega gull sem í eldi reynt verður) til lofs, dýrðar og heiðurs nær eð nú Jesús Kristus man opinberast,* þann þér sáuð ekki og þó elskið og nú á hann trúið. Þó að þér sjáið hann eigi, svo munu þér og einninn gleðjast með óumræðanlegri og dýrðarsamlegri gleði og endalok yðvarrar trúar þar af berandi sem er hjálpræði yðvarra sálna.

Eftir hverju hjálpræði hafa sókt og grennslast spámennirnir sem upp á yður af þeirri tilkomandi náð hafa fyrir spáð og rannsakað á hverjum eður hvílíkum tíma sem að andi Krists, sá með þeim var, tilteiknaði og áður fyrirfram hefir kunngjört þær píslanir sem að í Kristo eru og eftirkomandi dýrðir, hverjum það opinberað er. Því að eigi hafa þeir sjálfum sér, heldur oss þar inni þjónað hvað yður er nú kunngjört fyrir þá sem yður hafa guðsspjöllin boðað fyrir heilagan anda af himnum sendan, á hvern einninn englarnir fýsast að horfa. Þar fyrir gyrðið yðrar hugskotslendar.

Verið sparneytnir og setjið algjörlega yðra von upp á þá náð sem yður er boðuð fyrir opinberan Jesú Kristi svo sem hlýðugum börnum og hagið yður ekki líka sem áður fyrri þá þér í heimsku yðvarri eftir girndunum lifðuð, heldur eftir þeim sem yður hefir kallað og heilagur er. Svo verið þér og einninn heilagir í öllu yðar dagfari. Því að skrifað er: Vera skulu þér heilagir, því eg em heilagur. Og með því þér ákallið þann föðurinn sem án manngreinarálits dæmir eftir hvers sem eins verknaði, því hagið yðru dagfari svo lengi sem þér hér gangið með óttablendni.

Og vitið að þér eruð eigi með forgengilegu gulli eður silfri endurleystir í frá yðru hégómaathæfi eftir feðranna uppsetningi, heldur með dýrðmætu blóði Kristi svo sem hins óflekkaða og saklausa lambs, hver fyrirhugaður er fyrir veraldarinnar grundvallan, en opinberaður á síðustum tímum yðar vegna. Þér sem fyrir hann trúið á Guð, hver eð hann uppvakti í frá dauðum og honum dýrðina gefið upp á það að yðvar trú og von væri á Guði. Og gjörið yðrar sálir hreinferðugar í hlýðni sannleiksins fyrir andann til bróðurlegs kærleika af allri smjaðran annarlegan.

Og yður innbyrðis glóandi elskið af hreinu hjarta svo sem þeir, hverjir endurbornir eru, eigi af forgengilegu, heldur út af óforgengilegu sæði sem er út af orði Guðs lifanda það ævinlegana blífur. Því að allt hold er sem gras og öll dýrð mannsins svo sem blómstur grassins. Grasið er uppþornað og þess blómstur er affallið. En orð Drottins blífur að eilífu. En þetta er það orð, hvert á meðal yðar kunngjört er.

← Chapter 145Chapter 147 →