1 Peter · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 147 of 174 · about 3 min
[ breyta] Því leggið nú af alla illsku og allt svikræði og smjaður, öfund og alla bakmælgi og girnist þeirrar skynsamlegrar og vélalausrar mjólkur svo sem að nýfædd börn upp á það að þér greruð fyrir þá sömu ef þér hafið annars smakkað það Drottinn er ljúfur, til hvers helst þér eruð komnir svo sem til lifanda steins, hver af mönnum er burtkastaður, en hjá Guði útvalinn og dýrmætur er. Svo og þér einninn uppbyggið yður líka sem lifandi steina til andlegs húss og til heilags prestdæmis að offra andlegar offranir, þær Guði þakknæmar eru fyrir Jesúm Kristum. Hvar fyrir það ritningin svo inniheldur: Sjáið, að eg legg í Síon útvaldan dýrðmætan hyrningarstein.
Og hver á hann trúir, sá skal ekki að hneykslan verða. Yður, þér sem trúið, er hann dýrðmætur, en hinum vantrúuðum er hann sá steinn sem uppbyggjendur í burt fleygðu og gjörður er að höfði hyrningar og að ásteytingarsteini vorðinn og hneykslunarhellu þeim sem reka sig á orðið og þar eigi á trúa, hvar þeir eru upp á settir. En þér eruð það útvalda slekti og konunglegur kennimannsskapur, hin heilaga þjóð, fólk eigindómsins, svo að þér skuluð kunngjöra dyggðir hans sem yður hefir kallað af myrkrunum til síns undranarsamlega ljóss. Þér sem forðum daga ekkert fólk voruð, en nú eruð Guðs fólk. Og hverjir forðum ekki í náðinni voruð, en nú í náðinni eruð.
Kærir bræður, eg beiði yður líka sem framandi og vegfarendur að haldið yður af holdlegum girndum, hverjar í gegn sálunni stríða. Og hafið góða umgengni meðal heiðinna þjóða svo að þeir sem um yður á bak tala svo sem af illgjörðurum sjái yðar góðverk, dýrki Guð á vitjunardegi. Verið undirgefnir allri mannlegri tilskikkan fyrir herrans sakir, sé það konunginum svo sem hinum ypparsta, og landsstjórnurunum svo sem af honum skikkuðum til hefndar yfir illvirkjana og góðum til lofs. Því að það er vilji Guðs að þér með velgjörningi niðurþaggið óviturleik heimskra manna svo sem frelsingjar og ekki svo sem hefði þér frelsið illskunni til yfirhylmingar, heldur svo sem Guðs þjónustumenn.
Gjörið virðing hverjum manni, bræðurna elskið, óttist Guð, konunginn heiðrið. Þér þjónustumenn, verið herrunum undirgefnir með allri óttasemi, eigi alleinasta góðum og spakferðugum, heldur einninn hrekkvísum. Því það er náð ef nokkur fyrir samviskunnar sakir til Guðs þolir hið illa og umlíður það órétta. Því hver hrósan er það ef þér fyrir misgjörninga sakir slög líðið?
En nær þér umlíðið og þolið fyrir velgjörða sakir, það er náð hjá Guði.* Því að þar til eru þér kallaðir með því að Kristur hefir einninn sjálfur þolað og oss til eftirdæmis látið að þér skylduð svo eftirfylgja hans fótsporum sem öngva synd gjörði, eigi heldur nein flærð er fundin í hans munni, sá ekki formælti í gegn þá honum varð formælt, eigi ógnandi þá hann leið, en hann ofurgaf það honum sem rétt dæmir, sá er sjálfur hefir vorar syndir offrað á sínum líkama upp á trénu svo að vér, í frá syndunum deyddir, lifðum réttlætinu, fyrir hvers benjar vér erum heilbrigðir vorðnir. Því að þér voruð svo sem villir, ráfandi sauðir, en nú eru þér umvendir til hirðirs og biskups yðvarra sálna.*