The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 148

1 Peter · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 148 of 174 · about 2 min

← Chapter 147Chapter 149 →

[ breyta] Líka einninn skulu konunnar vera undirgefnar sínum mönnum svo að einninn þeir, sem ekki trúa á orðið, verði fyrir konunnar umgengni utan orð yfirunnir nær þeir sjá yðart hreinlíft siðferði í óttasemi. Hver skartsemi eigi skal vera hin ytri meður hárfléttan og gulli umhengjanda eður klæðaburði, heldur þann hulda mann hjartans, óspjallaðan með hógværum og kyrrlátum anda, hver að er dýrðmætur í Guðs augliti. Því að svo hafa forðum heilagar konur prýtt sig, þær sem á Guð vonuðu og undirgefnar voru sínum eiginmönnum líka sem að Sara var Abraham hlýðug og kallaði hann herra, hverjar dætur þér eruð vorðnar ef þér vel gjörið og eruð eigi svo staðlitlar.

Líka einninn þér mennirnir, búið við þær meður skynsemi og gefið því kvenlegu breyskvara kerkorni sína heiðran svo sem einninn samerfingjum náðarinnar [og] lífsins svo að yðart bænahald verði eigi hindrað. En að ályktan þá verið allir einhugaðir, samþolugir, bróðurlegir, miskunnsamir, ljúfir, lítillátir. Endurgjaldið ekki illt með illu, engin skammarorð fyrir skammaryrði, heldur þar í gegn blessið og vitið að þér eruð þar tilkallaðir það þér blessunina að erfð eignist. Því hver hann vill lifa og að sjá góða daga, sá stilli sína tungu af vondu og sínar varir að þær eigi flærð tali. Hann hneigi sig í frá illu og gjöri hið góða, leiti friðarins og honum eftirfylgi.

Því að augu Drottins eru yfir réttlátum og hans eyru til þeirra bæna. En auglit Drottins er yfir þeim sem illa gjöra. Hver er sá yður geti grandað ef þér eftirfylgið hinu góða? Og þótt að þér líðið fyrir réttlætisins sakir, þá eru þér þó sælir. Og hræðist eigi þeirra ógnan og skelfist ekki. En helgið Guð Drottin í yðar hjörtum.* Verið jafnlega reiðubúnir andsvar að veita hverjum manni þeim sem skjals krefja af þeirri von sem í yður er. Og það þó með hógværi og óttablendni, hafandi góða samvisku svo að þeir, hverjir af yður á bak tala svo sem af illgjörðurum, til skammar verði það þeir hafa dárað yðra góða umgengni í Kristo.

Því að það er betra fyrst það er Guðs vilji að þér heldur fyrir velgjörða en illgjörða sakir líðið. Af því að Kristur hefir og eitt sinn fyrir vorar syndir liðið, hinn réttláti fyrir rangláta, upp á það hann fórnfærði oss Guði og deyddur er eftir holdinu, en lifandi gjörður eftir andanum.

Í því hinu sama er hann einninn í burt genginn og hefir þeim öndunum predikað sem í herfjötrum voru, hverjir forðum daga eigi trúðu, þann tíð Guð eitt sinn eftirbeið og þolinmæði hafði á dögum Nóa nær örkin smíðaðist, í hverri fáir, það er átta sálir, hjálpuðust fyrir vatnið, hvert að nú einninn oss hjálplega gjörir í skírninni, hvað fyrir hitt er tilmyndað, ekki það holdsins saurleiki afleggist, heldur samningur góðrar samvisku hjá Guði fyrir upprisu Jesú Kristi, sá sem að er í heiminum upp farinn til Guðs hægri handar, og englarnir og hinir voldugu og kraftarnir eru honum undirgefnir.

← Chapter 147Chapter 149 →