The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 149

1 Peter · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 149 of 174 · about 2 min

← Chapter 148Chapter 150 →

[ breyta] Með því það Kristur hefir nú fyrir oss liðið í holdinu, þá brynjið yður einninn meður því sama hugskoti. Því hver á holdinu líður, sá firrist frá syndunum svo að hann þaðan í frá, hvað eftirfarandar ævi er í holdinu, lifi eigi girndum mannsins, heldur vilja Guðs. Því að það gnægir að vér höfum þann umliðna tíma lífdaganna uppsvarplað eftir heiðinglegum vilja þá vér gengum í lausung, lostasemdum, drykkjuskap, í ofáti og ofdrykkjum og í herfilegum skurgoðadýrkanum. Hvað eð þá undrar það þér eigi meður þeim hlaupið í þeirri samri saurlifnaðarhneisu og guðlastið, hverjir reikningsskap skulu gjalda honum sem reiðubúinn er að dæma lifendur og dauða.

Því að fyrir það er einninn hinum dauðum evangelion kunngjört upp á það þeir dæmdir verði eftir mönnunum á holdinu, en í andanum lifi Guði. Því að endir allra hluta tekur að nálgast. Fyrir því verið sparneytnir og árvakrir til bænanna. En umfram alla hluti hafið innbyrðis glóanda kærleik því að kærleikurinn hylur fjöld syndanna. Verið gestrisnir innbyrðis án möglunar. Og þjóni hver öðrum, hver einn með þeirri gjöf sem hann hefir öðlast svo sem góðir forstjórnarmenn margfaldlegrar Guðs náðar. Ef nokkur talar, hann tali það svo sem Guðs orð.

Og ef þjónar nokkur, hann þjóni eftir þeirri orku sem Guð gefur svo að í öllum hlutum verði Guð dýrkaður fyrir Jesúm Kristum, hverjum sé dýrð og vald um aldir og að eilífu.* Hinir kærustu, eigi skulu þér láta yður þann %bruna sjaldsýnan vera, hver yður hendir nær þér freistaðir verðið svo sem að henti yður nokkuð sjaldsýnlegt, heldur gleðjið yður það þér með Kristi líðið upp á það þér einninn á opinberingartíma hans dýrðar mættuð gleðjast og fagna. Sælir eru þér ef þér vanvirtir verðið yfir nafni Kristi því að andinn, sá sem að er andi Guðs og dýrðarinnar, hvílist yfir yður. Hjá hinum verður hann lastaður, en í hjá yður vegsamaður.

En enginn yðar líði svo sem manndrápari, þjófur eða illvirki eða þeir sem gripdeildasamir eru annarlegra hluta. En að líði hann svo sem annar kristinn, þá skammist hann sín eigi, en dýrki Guð í slíkri deild. Af því að tími er það dómurinn tiltaki á Guðs húsi. En ef fyrst á oss, hver mun þá endir verða þeirra sem Guðs evangelio ekki trúa? Og ef hinn réttláti frelsast varla, hvar mun þá hinn ómildi og syndugi birtast? Þar fyrir skulu þeir sem líða (eftir Guðs vilja) honum sínar sálir á hendi fela svo sem trúlyndum skapara í góðum verkum.

← Chapter 148Chapter 150 →