The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 150

1 Peter · Chapter 5

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 150 of 174 · about 1 min

← Chapter 149Chapter 151 →

[ breyta] Öldungana, sem á meðal yðar eru, áminni eg, samöldungur og vottur píslanna sem eru í Kristi og hluttakari dýrðarinnar sem opinberuð skal verða. Alið þá hjörð Krists sem hjá yður er. Og gætið hennar, eigi nauðugir, heldur sjálfviljugir, eigi fyrir sleimilegs ávinnings sakir, heldur af góðum vilja, eigi svo sem þeir er yfir sinni %tildeild drottna, heldur verðið fyrirmynd hjarðarinnar. Svo munu þér (nær hinn æðsti hirðir mun birtast) ófallvalta kórúnu dýrðarinnar meðtaka. Líka einninn þér, hverjir ungir eruð, verið öldungunum undirgefnir. Allir saman þá verið innbyrðis undirgefnir. Hafið lítillætið fastlega innvafið því að Guð mótstendur dramblátum, en lítillátum gefur hann náð.

Fyrir því lítillætið yður undir volduga Guðs hönd svo að hann upphefji yður á vitjunartíma. Allri yðar áhyggju varpið á hann því að hann ber umhyggju fyrir yður. Verið sparneytnir og vakið. Því að yðar mótstandari, djöfullinn, gengur um kring sem grenjanda León, eftirleitandi þeim hann svelgi, hverjum þér örugglega í mót standið í trúnni, og vitið það yðrir bræður, þeir sem í heiminum eru, hafa þá sömu ánauð. En sá Guð allrar náðar sem yður hefir kallað til sinnar eilífrar dýrðar í Kristo Jesú, hann sami mun yður, þér sem um litla stund líðið, fullnægja, tilreiða, styrkja, efla og staðfesta. Þeim hinum sama sé dýrð og veldi um aldur og að eilífu.

Amen.* Fyrir Silvanum, yðvarn trúan bróður (að því eg meina), hefi eg fátt eina skrifað yður til áminningar og til vottunar að þetta er hin sanna Guðs náð þar þér inni standið. Yður heilsa þeir sem samt yður útvaldir eru í Babylonia og minn sonur, Markús. Heilsið yður innbyrðis með heilögum kærleikskossi. Friður sé með öllum yður sem að eru í Kristo Jesú. Amen.

← Chapter 149Chapter 151 →