The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 151

2 Peter · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 151 of 174 · about 2 min

← Chapter 150Chapter 152 →

[ breyta] Símon Petrus, þjón og postuli Jesú Kristi. Þeim sem meður oss samlíka trú hafa hlotnað í réttlætinu því sem að Guð gefur og lausnarinn Jesús Kristus. Náð og friður áaukist yður fyrir kynning Guðs og Jesú Kristi, vors Drottins. Af því oss eru allsháttaðir hans guðlegir kraftar veittir, hverjir til lífsins og guðlegs lífernis henta, fyrir viðurkenning þess sem oss hefir kallað fyrir sína dýrð og dyggð, fyrir hverja hið dýrðmæta, og hið allra stærsta fyrirheit er oss veitt svo að þér fyrir það sama hluttakarar yrðuð guðlegrar náttúru ef þér flýið forgengilegar girndir veraldarinnar.

Því hafið þar alla yðar kappsmuni á og auðsýnið í yðvarri trú dyggðina, og í dyggðinni vitsmunina, og í vitsmununum hófsemina og í hófseminni þolinmæðina, og í þolinmæðinni guðræknina, og í guðrækninni bróðurlegan kærleika, og í bróðurlegum kærleika almennilega ástúð. Því ef þetta er gnóglegt hjá yður, þá mun það ekki yður iðjulausa né óávaxtarsama vera láta í viðurkenningu vors Drottins Jesú Kristi. En hann sem þetta hefir ekki, sá er blindur og forgleymir hreinsun sinna fyrru synda. Fyrir því, kærir bræður, leggið þess meiri kappsmuni á yðra kallan og útvalning stöðugri að gjöra.

Því ef þér gjörið það, munu þér eigi misfalla og mun yður svo inngangurinn gnóglegana gefinn verða í ævinlegt ríki vors Drottins og lausnarans Jesú Kristi. Fyrir því vil eg eigi afláta að áminna yður jafnlega um þetta þó að þér vitið það og eruð styrkvir í nærveranlegum sannleika. Því að eg held það réttilegast svo lengi sem að eg em í þessu hreysi að uppvekja og á að minna yður. Því eg veit það eg hlýt snarlega mitt hreysi af að leggja að því eð Jesús Kristus hefir mér opinberað. En eg vil kapps um kosta það þér alla vega (eftir mína útför) hefðuð slíkt til minnis að halda.

Því að eigi höfum vér þeim dæmafróðum frásögum eftirfylgt þá vér gjörðum yður kunnan kraft og hingaðkomu vors Drottins Jesú Kristi, heldur höfum vér sjálfir séð hans dýrð þann tíð hann af Guði föður meðtók dýrð og heiðran fyrir raustina sem til hans skeði í mikilli dýrð þess háttar: Þessi er minn elskulegur sonur, á hverjum eg hefi þókknan. Og þessa raust heyrðu vér af himnum verða þá er vér vorum með honum upp á fjallinu helga. Vér höfum öflugt spádómsorð. Og þér gjörið vel þér hafið þar gát á svo sem að því ljósi þar lýsir í myrkum stað þar til dagurinn birtir og morgunstjarnan upprennur í yðrum hjörtum.

Og það skulu þér fyrst vita að enginn spádómur í ritninginni sker af eiginlegri útleggingu. Því að þar er eigi nokkurn tíma neinn spádómur eftir mannsins vilja framfluttur verið, heldur af heilögum anda tilknúðir hafa þeir Guðs heilagir menn talað.

← Chapter 150Chapter 152 →