The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 152

2 Peter · Chapter 2

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 152 of 174 · about 3 min

← Chapter 151Chapter 153 →

[ breyta] En þar voru falsspámenn meðal fólksins. Svo munu og einninn meðal yðar verða lygisamir lærendur sem jafnframt innleiða munu háskasamlegar tvídrægnir og afneita Drottni, þeim sem þá hefir endurkeypt, og munu yfir sjálfa sig leiða snöggva glatan. Og margir munu eftirfylgja þeirra munaðlífi, fyrir hverja sannleiksvegurinn mun lastaður verða. Og fyrir ágirnd upploginna orða munu þeir á yður græða, hverra dómsáfelli þegar fyrir löngu mun eigi þrotna og þeirra fyrirdæming sæfir eigi.

Því ef Guð hefir eigi þyrmt englunum þeim sem syndguðust, heldur hefir steypt þeim meður hlekkjum myrkranna til helvítis og ofurgefið það þeir til dómsins varðveittust og hefir eigi þyrmt hinni fornu veröld, heldur varðveitti Nóha, þann réttlætis predikara, sjálfan áttanda og innleiddi svo flóðið yfir veröld hinna ómildra og hefir borgirnar Sódóme og Gómorre að ösku gjört, umturnað og fordæmt, setjandi þar með þeim ómildum eftirdæmi sem seinna meir koma munu og frelsaði hinn réttláta Lot, hverjum sá skammsamlegur lýður alla meinbægni gjörði meður þeirra saurljótu líferni.

Með því hann var réttlátur og byggði á meðal þeirra svo að hann hlaut að sjá það og heyra, þá kvöldu þeir daglegana réttláta sálu meður þeirra ranglátum verkum. Drottinn kann milda úr freistninni að frelsa, en hina ranglátu að varðveita til kvalanna á dag dómsins. En einna mest þá sem holdinu eftirfylgja og saurugum girndum og herradóminn forsmá eru dristugir, sérgóðir, eigi ægjandi tignarveldið að lasta sem þó englarnir, þeir eð meira mátt og kraft hafa, eigi borið geta þann löstunardóm í gegn sér af Drottni. En þeir eru líka sem skynlaus kvikindi, hver af náttúru eru þar til alin það þau veidd og slátruð verði.

Þeir lasta það hvað þeir ekkert af vita og munu svo fyrirfarast í þeirra fortöpun og ranglætisins verðlaun þar af hljóta. Þeir halda fyrir sælgæti daglegar kræsingar. Þeir eru óþekkt og flekkanir, bramla af yðar þurfagjöfum í sínum afvegum og rússéra út af yðru, hafa augun full hórdóma og að syndgast kunna þeir ekki að linna og ginna að sér staðlitlar sálir, hafa gegnumsmogið hjarta af ágirni, bölvanarsynir, yfirgefandi réttan veg og fara villir og eftirfylgja vegi Balam, sonar Bósor, hver að elskaði verðlaun ranglætisins. En hann hafði straffan sinnar yfirtroðningar sem var að það hið mállausa, klyfbærilega dýr talaði mannlegri raust og aftraði svo spámannsins fávisku.

Þeir eru brunnar án vats og ský af vindi drifin, hverjum að varðveitist myrkvanna þoka að eilífu. Því að þeir tala drambsöm orð hégiljunnar og teygja fyrir munaðsemi til holdlegra girnda þá hina sem réttilega umflýðir voru og nú vegarvillir ganga og heita þeim frelsi sem þeir eru þó sjálfir fortöpunarinnar þrælar. Því hvar af sem nokkur er yfirunninn, þess þjón er hann vorðinn. Því fyrst þeir eru umflýðir saurendum veraldarinnar fyrir viðurkenning Drottins og lausnarans Jesú Kristi, en verða síðan aftur í hið sama vafðir og yfirunnir, þá er hjá þeim síðara vorðið verra hinu fyrra.

Því að betra væri þeim það þeir hefðu ekki þekkt réttlætisins götu en það þeir þekki hana og umvenda sér í frá því heilaga boðorði sem þeim er gefið. Sannlega hendir þá það hvað í sönnum orðskviði plagar að segjast að hundurinn er aftur horfinn til sinnar spýju, og: Þvegið svín veltir sér aftur í sömum saur.

← Chapter 151Chapter 153 →