The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 153

2 Peter · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 153 of 174 · about 2 min

← Chapter 152Chapter 154 →

[ breyta] Þessi er sá annar pistill sem eg skrifa yður, hinir kærustu í hverjum eg upphvet og áminni yðvart skært hugskot svo að þér hugleiðið þau orð sem yður áður fyrirfram eru sögð af heilögum spámönnum og af vorum boðburði, vér sem erum postular Drottins og lausnarans. Og í fyrstu þá vitið það á síðustum dögum munu koma spottarar, hverjir eftir þeirra eiginlegum girndum munu ganga og segja: Hvar er fyrirheit hans tilkomu? Því þaðan í frá feðurnir söfnuðu, blífa allir hlutir svo sem af upphafi sköpunarinnar verið er. Því viljandi látast þeir eigi vita það að himnarnir einninn voru forðum tíð, þar með það jörðin af vatninu og í vatninu stóðst fyrir Guðs orð.

Þó varð söm áður veröldin í þann tíð fyrir þau sömu með vatsflóðinu fordjörfuð. Svo og einninn sá himinn og jörð, sem nú er, verða fyrir hans orð spöruð svo það þau eldinum varðveitt verði á dómsins dag og til fyrirdæmingar ómildra manna. En eitt sé óhulið fyrir yður, hinir kærustu, það einn dagur fyrir Drottni er sem þúsund ára og þúsund ár svo sem einn dagur. Drottinn seinkar eigi því hann fyrirhét svo sem það sumir halda, heldur hefir hann þolinmæði við oss og vill eigi það nokkur fortapist, heldur það hver maður snúi sér til yfirbótar.

En dagur Drottins man koma sem þjófur um nótt, á hverjum himnarnir munu forganga meður stórbrestum, en himintunglin af hita bráðna, og jörðin og þau verk, sem þar eru inni, munu uppbrenna. Með því að allt þetta skal nú forganga, hvílíkum byrjar yður þá að vera með heilögu athæfi og mildiverkum, þér sem eftirbíðið og skundið að þeirri tilkomu þess drottinsdagsins, á hverjum himinninn af eldi forgengur og himintunglin af hita bráðna. En vér væntum nýs himins og nýrrar jarðar eftir hans fyrirheiti, í hverjum að réttlætið byggir. Fyrir því, mínir kærustu, meðan þér skuluð þess vænta, þá kostgæfið það þér fyrir honum óflekkaðir og óstraffanlegir í friðinum fundnir verðið.

Og þolinmæði vors Drottins haldið fyrir yðra sáluhjálp sem yður einninn vor elskulegur bróðir, Páll, eftir þeirri speki eð honum er gefin, skrifað hefir svo sem að hann í öllum bréfum þar um ræðir, í hverjum að eru sumir hlutir þungir að skilja, hverja hinir ófróðu og staðlausu lýta svo sem einninn aðrar ritningar til þeirra eiginlegrar fyrirdæmingar. En þér, mínir elskulegir, á meðan þér fyrirfram vitið, þá vaktið yður það þér ekki fyrir villu dáðlausra manna fráleiddir verðið og affallið í frá yðrum eiginlegum staðleik. En vaxið í náðinni og viðurkenningu vors Drottins og lausnarans Jesú Kristi. Þeim sama sé dýrð nú og um eilífleg dægur. Amen.

← Chapter 152Chapter 154 →