1 John · Chapter 1
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 154 of 174 · about 1 min
[ breyta] Það er var af upphafi, hvað vér heyrðum, hvað vér sáum vorum augum, á hvað vér horfðum og vorar hendur á tóku, af orði lífsins. Og lífið auðbirtist, og vér sáum og vottum og boðum yður lífið það ævinlegt er, hvert eð var hjá föðurnum og birtist oss. Hvað vér sáum og heyrðum, það boðum vér yður svo að þér hefðuð samfélag meður oss og vort samfélag sé meður föðurnum og meður hans syni Jesú Kristo. Og þetta skrifum vér yður upp á það yðar fögnuður sé fullkomlegur. Og þessi er boðskapurinn, hvern vér heyrðum af honum og boðum yður, það Guð er ljós og engin myrkur eru í honum. Ef að vér segjum það vér höfum samfélag með honum og göngum í myrkrinu, þá ljúgu vér og gjörum ekki sannleik.
En ef vér göngum í ljósinu líka sem hann sjálfur í ljósinu er, þá höfum vér samfélag innbyrðis, og blóðið Jesú Kristi, hans sonar, hreinsar oss af allri synd. Ef að vér segjum: Vér höfum öngva synd, -villu vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss. En ef vér viðurkennum vorar syndir, þá er hann trúr og réttlátur svo að hann fyrirgefur oss vorar syndir og hreinsar oss af öllu ranglæti. Ef vér segjum að eigi syndguðum vér, þá gjöru vér hann að ljúgara, og hans orð eru þá ekki í oss.