The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 155

1 John · Chapter 2

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 155 of 174 · about 3 min

← Chapter 154Chapter 156 →

[ breyta] Mín sonakorn, þetta skrifa eg yður svo að þér syndgið eigi. Og ef einhver misgjörir, þá höfum vér árnaðarmann hjá föðurnum Jesúm Kristum, sá réttvís er. Og hann sami er forlíkun fyrir vorar syndir, en eigi einasta fyrir vorum, heldur einninn fyrir allrar veraldarinnar. Og þar af vitum vér það vér kennum hann ef að vér varðveitum hans boðorð. Hver eð segir sig kenna hann og heldur ekki hans boðorð, sá er ljúgari, og í þvílíkum er ekki sannleikurinn. En hver hans orð varðveitir, í þeim er sannarlega Guðs kærleiki fullkomlegur. Þar af þekkjum vér það vér í honum eru. Hver hann segir sig í honum vera, sá skal og ganga líka sem hann hefir gengið.

Kærir bræður, eg skrifa yður ekki nýtt boðorð, heldur gamalt boðorð það þér hafið frá upphafi haft. Og enn aftur skrifa eg yður nýtt boðorð það sannarlegt er hjá honum og hjá yður því að myrkrin eru forgengin, og hið sanna ljósið skín nú. Hver hann segir sig í ljósinu vera og hatar sinn bróður, sá er enn allt hér til í myrkrunum. Hver sinn bróður elskar, hann blífur í ljósinu, og í hjá honum er engin hneykslan. En hver sinn bróður hatar, sá er í myrkrinu og ráfar í myrkrinu og veit eigi hvert hann gengur því að myrkrin hafa hans augu forblindað. Sonakorn mín, eg skrifa yður það að yður verða syndirnar fyrirgefnar fyrir hans nafn.

Eg skrifa yður, feðrunum, því að þér kennið þann sem af upphafi er. Eg skrifa yður, æskumönnum, því að þér hafið illskufjanda yfirunnið. Eg skrifa yður, smábörnunum, því að þér kennið föðurinn. Eg skrifaði yður, feðrunum, það þér þekktuð þann sem af upphafi er. Eg skrifaði yður, æskumönnum, að þér styrkvir eruð og það Guðs orð blífur hjá yður og illskufjandann hafið yfirunnið. Eigi skulu þér heiminn elska né neitt það í honum er. Ef nokkur elskar heiminn, í honum er ekki kærleiki föðursins. Því allt það í heiminum er, sem að er %fýsn holdsins og girnd augnanna og drambsamt líferni, það ekki er af föðurnum, heldur af heiminum.

Og heimurinn forgengur og hans girnd, en hver að Guðs vilja gjörir, sá blífur að eilífu. Sonakorn, það er hin síðasta stund. Og sem þér hafið heyrt það Antakristur kemur, og nú eru margir Antakristar vorðnir, hvar af vér vitum að það er hin síðasta stund. Þeir eru af oss útgengnir, en þeir voru ekki af oss. Því ef væri þeir út af oss, þá hefði þeir hjá oss blifið. En upp á það þeir augljósir verði það þeir eru eigi allir af oss. Og þér hafið smurningina af þeim sem heilagur er og kennið allt. Eg skrifaði yður eigi svo sem það vissi þér eigi sannleikinn, heldur vitið þér hann og vitið það engin lygi út af sannleikanum kemur. Hver er ljúgarinn, utan sá sem neitar það að Jesús sé Kristur?

Það er sá Antakristur sem föðurinn og soninn neitar. Og hver syninum afneitar, hann hefir og ekki föðurinn. Hvað þér hafið nú heyrt af upphafi, það blífi hjá yður. Ef það blífur hjá yður hvað þér af upphafi hafið heyrt, þá munu þér hjá syninum og hjá föðurnum blífa. Og þetta er fyrirheitið, hvert hann hefir oss veitt, sem er: Eilíft líf. Þetta hefi eg skrifað yður af þeim, hverjir yður afvegaleiða. Og smurningin sem þér af honum hafið meðtekið, blífur hjá yður og þurfið ekki það neinn læri yður, heldur svo sem sú smurning lærir yður alla hluti, þá er það sannindi og engin lygn. Og sem hún hefir yður lært, þá blífið hjá þeirri sömu.

Og nú, sonakorn, blífið hjá honum upp á það nær hann man opinberast að vér höfum öruggt traust og verðum eigi fyrir honum að hneykslan í hans tilkomu. Fyrst þér vitið hann er réttvís, þá vitið einninn það hver réttvísina gjörir, sá er af honum fæddur.

← Chapter 154Chapter 156 →