1 John · Chapter 3
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 156 of 174 · about 3 min
[ breyta] Sjáið, hvílíkan kærleika það faðirinn hefir oss auðsýnt að vér skulum Guðs börn kallast. Fyrir því þekkir yður heimurinn ekki því að hann kennir hann eigi. Mínir kærustu, vér erum nú Guðs börn, og það er enn eigi birst það að vér það erum. En vér vitum, þá birtast man það vér munum honum líkir vera því vér munum hann sjá svo sem að hann er. Og hver einn er þvílíka von hefur til hans, sá hreinsar sig líka sem að hann er hreinn. Hver synd gjörir, sá gjörir rangt. Og syndin er hið ranga. Og þér vitið það hann birtist upp á það hann vorar syndir burttæki. Og engin synd er í honum. Hver í honum blífur, sá syndgar ekki. Hver hann syndgast, sá hefir eigi hann séð né þekkt.
Sonakorn, látið öngvan villa yður. Hver réttvísina gjörir, sá er réttvís líka sem hann er réttvís. Hver syndina gjörir, sá er af djöflinum því að djöfullinn syndgaðist af upphafi. Þar fyrir birtist Guðs son það hann uppleysti djöfulsins verk. Hver af Guði er fæddur, sá gjörir eigi synd því að hans sáð blífur hjá honum. Og hann getur eigi syndgast því að hann er af Guði fæddur. Þar af eru augljós Guðs börn og djöfulsins börn. Hver hann er eigi réttvís, sá er ekki af Guði, og hver eigi elskar sinn bróður. Því að það er sá boðskapur sem þér hafið heyrt frá upphafi það vér skulum elska oss innbyrðis.
Ekki sem Kain, sá af hinum vonda var og í hel sló sinn bróður og fyrir það í hel sló hann honum það hans verk voru vond og hans bróðurs réttferðug. Undrist ekki, bræður mínir, þótt heimurinn hati yður. Vér vitum það vér úr dauðanum erum komnir til lífsins því að vér elskum bræðurna. Hver hann elskar eigi bræðurna, sá blífur í dauðanum. Hver sinn bróður hatar, sá er manndrápari, og þér vitið það manndrápari hefir eigi eilíft líf í sér blífandi. Á því þekkjum vér hans kærleika að hann hefir sett sitt líf út fyrir oss, og vér skulum einninn setja lífið út fyrir bræðurna.
En nær að einhver hefir þessarar veraldar auðæfi og sér sinn bróður nauð líða og lýkur sitt hjarta til fyrir honum, hverninn blífur Guðs kærleiki hjá honum? Mín sonakorn, elskum eigi með orði og tungu, heldur með verki og sannleika.* Þar af þekkjum vér það vér erum af sannleikanum og kunnum að haga vorum hjörtum fyrir hans augliti. Svo þó að vort hjarta fordæmi oss að Guð er meiri voru hjarta og þekkir alla hluti. Þér ástsamlegir, ef vort hjarta fordæmir oss eigi, þá höfum vér traustleik til Guðs. Og hvað vér biðjum, það munu vér af honum öðlast því að vér geymum hans boðorð og gjörum hvað fyrir honum þægilegt er.
Og það er hans boðorð það vér trúum á nafn hans sonar Jesú Kristi og elskum hver annan svo sem það hann gaf oss boðorðið. Og hver hann varðveitir hans boðorð, sá blífur í honum. Og þar af vitu vér það hann blífur í oss út af þeim anda, hvern hann hefir gefið oss.