1 John · Chapter 4
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 157 of 174 · about 2 min
[ breyta] Þér ástsamlegir, trúið eigi hverjum sem einum anda, heldur reynið andana hvort þeir eru af Guði. Því að þar eru margir falsspámenn í veröldina útgengnir. Þar af skulu þér Guðs anda kenna, að hver andi sem viðurkennir það Jesús Kristus sé í holdgan kominn, sá er af Guði. Og hver andi sem eigi viðurkennir það Jesús Kristus sé í holdgan kominn, sá er ekki af Guði, og það er sá andi þess Antakrists, af hverjum þér hafið heyrt það hann mundi koma og er nú þegar í heiminum. Sonakorn, þér eruð af Guði og hafið hina yfirunnið því að sá í yður er, hann er hinum meiri sem í heiminum er. Þeir eru af heiminum. Fyrir því tala þeir út af heiminum, og heimurinn heyrir þeim. Vér erum af Guði.
Hver hann viðurkennir Guð, sá heyrir oss. Hver hann er eigi af Guði, sá heyrir oss ekki. Og þar af kennum vér andann sannleiksins og andann villudómsins. Þér ástsamlegir, elskum oss innbyrðis því að kærleikurinn er af Guði, og hver hann elskar, sá er af Guði fæddur og kennir Guð. Hver hann elskar ekki, sá kennir eigi Guð því að Guð er kærleikurinn. Í því auðbirtist kærleiki Guðs viður oss það Guð sendi sinn eingetinn son í heiminn að vér skyldum fyrir hann lifa. Þar inni er kærleikurinn: Eigi það vér elskuðum Guð, heldur það hann elskaði oss og sent sinn son til endurlausnar fyrir vorar syndir. Þér ástsamlegir, fyrst það Guð hefir oss svo elskað, þá skulu vér einninn elska oss innbyrðis.
Enginn hefir Guð neinu sinni sénan. Ef að vér elskum oss innbyrðis, þá blífur Guð í oss og hans kærleiki er fullkomlegur í oss. Þar af þekkju vér það vér blífum í honum og hann í oss því að hann hefir gefið oss af sínum anda. Og vér sáum og vitum það faðirinn hefir sent soninn til heimsins lausnara. Hver nú viðurkennir það Jesús er Guðs sonur, í þeim blífur Guð og hann í Guði. Og vér höfum þekkt og trúað þeim kærleika sem Guð hefir til vor. Guð er kærleiki, og hver í kærleikanum blífur, sá blífur í Guði og Guð í honum. Í því er kærleikurinn fullkomlegur hjá oss að vér höfum traustleik á degi dómsins. Því að líka sem hann er, svo eru vér einninn í þessum heimi.
Uggur er eigi kærleiki, heldur útdrífur fullkomlegur kærleiki hræðsluna. Því að hræðslan hefir kvöl, en hver hann hræðist, sá er ekki fullkomlegur í kærleikanum. Látum oss hann elska því að hann hefir elskað oss fyrri. Ef einhver segir: Eg elska Guð, -og hatar sinn bróður, sá er ljúgari. Því hver hann elskar ekki sinn bróður, hvern hann sér, hverninn getur sá Guð elskað, þann er hann sér eigi? Og þetta boðorð höfum vér af Guði það hver hann elskar Guð, hann elski og einninn sinn bróður.*