The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 158

1 John · Chapter 5

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 158 of 174 · about 2 min

← Chapter 157Chapter 159 →

[ breyta] Hver hann trúir það Jesús sé Kristur, sá er af Guði fæddur, og hver eð elskar þann sem hann hefir getið, sá elskar og einnin þann sem af honum er fæddur. Þar af þekkjum vér það vér Guðs börn elskum nær vér elskum Guð og höldum hans boðorð. Því að það er kærleiki til Guðs það vér varðveitum hans boðorð. Og hans boðorð eru eigi þung því allt hvað af Guði er fætt, það yfirvinnur heiminn, og vor trúa er yfirvinningin, hver veröldina hefir yfirunnið. En hver er hann, sem veröldina yfirvinnur utan alleinasta sá er trúir það Jesús er Guðs sonur? Þessi er hann, sá sem kemur með vatni og blóði, Jesús Kristus. Eigi með vatni alleinasta, heldur með vatni og blóði.

Og andinn er sá sem vitnar það andinn er sannleiki. Því að þrír eru sem vitnisburðinn gefa á himni: Faðirinn, sonurinn og heilagur andi, og þeir þrír eru eitt. Og þrír eru sem vitnisburðinn gefa á jörðu: Andinn, vatnið og blóðið, og þau þrjú eru eitt. Ef vér meðtökum mannanna vitnisburð, þá er þó Guðs vitnisburður meiri. Því að Guðs vitnisburður er sá það hann hefir vitnað af sínum syni. Hver hann trúir á Guðs son, sá hefir þennan vitnisburð í sér.* Hver hann trúir ekki Guði, sá gjörir hann að ljúgara því að hann trúir ekki vitnisburðinum, þeim Guð fvitnar af sínum syni. Og þetta er vitnisburðurinn það Guð hefir gefið oss eilíft líf og þetta líf er í hans syni.

Hver Guðs son hefir, sá hefir lífið. Hver hann hefir eigi Guðs son, sá hefir og eigi lífið. Þetta skrifaði eg yður, þér sem trúið á nafn Guðs sonar, svo að þér vitið það þér hafið eilíft líf og það þér trúið á nafn Guðs sonar. Því að það er sá traustleiki sem vér höfum til hans, sá ef vér biðjum nokkurs að eftir sínum vilja heyrir hann oss. Og fyrst vér vitum það hann heyrir oss hvað vér biðjum, þá vitu vér það vér þær bænir höfum, hverjar vér höfum beðið af honum. Ef nokkur sér sinn bróður syndgast einhverri synd eigi til dauða, sá má biðja og man hann gefa þeim lífið sem syndgaði ekki til dauða. Þar er %synd til dauða. Eg segi ekki að nokkur þar fyrir biðji.

Allt ranglæti er synd, og þar er synd ekki til dauða. Vér vitum það hver af Guði er fæddur, sá syndgar ekki, heldur sá af Guði er fæddur, hann varðveitir sig, og hinn vondi man eigi snerta hann. Vér vitum það vér erum af Guði og það allur heimurinn er skikkaður í vondu. En vér vitum það Guðs sonur er kominn og hefir gefið oss það sinni að vér kennum þann sem sannarlegur er og erum í hinum sannarlega, hans syni Jesú Kristo. Þessi er sannur Guð og eilíft líf. Sonakorn, varðveitið yður frá skurgoðum. Amen.

← Chapter 157Chapter 159 →