The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 159

Revelation · Chapter 1

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 159 of 174 · about 2 min

← Chapter 158Chapter 160 →

[ breyta] Opinberan Jesú Kristi, hverja Guð gaf honum til að kunngjöra sínum þjón hver ske skal snarlega, og tilteiknað og sent hefir fyrir sinn engil til síns þénara, Jóhannis, hver vitnað hefir Guðs orð og vitnisburðinn af Jesú Kristo, hvað helst hann hefir. Sæll er sá sem les og sá sem heyrir orðið spádómsins og varðveitir hvað í honum skrifað er því að tíminn er nálægur. Jóhannes þeim vii samkundum sem í Asía eru.

Náð sé með yður og friður af þeim sem er og þeim sem var og þeim sem koma mun og af þeim vii öndum sem eru fyrir hans stóli og af Jesú Kristo, sá sem er trúr vottur og frumgetningur framliðinna og höfðingi jarðarinnar konunga, hver oss hefir elskað og þvegið af syndunum í sínu blóði og hefir gjört oss til konunga og kennimanna fyrir Guði og sínum föður. Þeim hinum sama sé dýrð og vald um aldir alda að eilífu. Amen. Sjáið, hann kemur með skýinu, og öll augu munu hann sjá og þeir eð hann stungið hafa, og allar kynkvíslir jarðar munu kveina. Svo sé, amen. Eg em A og O, upphaf og endi, segir Drottinn, sá sem er og sá eð var og sá sem koma mun, hinn almáttugi.

Eg, Jóhannes, yðar bróðir og hluttakari í hörmunginni og á ríkinu og þolinmæði Jesú Kristi, var í eynni Patmos fyrir Guðs orðs sakir og vitnisburðar Jesú Kristi. Eg var í anda á sunnudegi, og eg heyrða á bak mér aftur raust mikla sem lúðurs, svo segjandi: Eg em A og O, fyrstur og síðastur. Og hvað þú sér, það skrifa í bók og sent það til samkundanna í Asía, til Efeso og til Smýrnem, til Pergamon og til Týatíras, til Sarden og til Fíladelfían og til Laódíkeam. Og eg snera mér við það eg líta þá raust sem við mig talaði. Og sem eg snera mér við, sá eg vii ljósastikur gulllegar, og milli gulllegra stjakanna þann líkur var mannsins syni.

Sá var klæddur síðri slyppu og spenntur um bringuna gulllegum linda, en hans höfuð og hár voru hvít sem hvít ull og líka sem snjár hans rödd sem niður mikilla vatna og hafði vii stjörnur í sinni hægri hendi. Og út af hans munni gekk hvasst tvíeggjað sverð, og hans andlit lýsti sem skínanda sól. Og sem eg sá hann, féll eg til hans fóta svo sem dauður. Og hann lagði sína hæ yfir mig og sagði til mín: Hræðst þú ekki, eg em fyrstur og síðastur og lifandi. Eg var dauður, og sjá, að eg em lifandi um aldir að eilífu og hefi lykla helvítanna og dauðans. Skrifa hvað þú séð hefir og hvað þar er og hvað þar eftir á ske skal, leyndan dóm þeirra v hendi og þær vii gulllegar stikur.

Þessar vii stjörnur eru englar vii samkundna, og þær vii ljósastikur, þú hefir séð, eru vii samkundur.

← Chapter 158Chapter 160 →