Revelation · Chapter 2
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 160 of 174 · about 4 min
[ breyta] Og englinum samkundunnar til Efeso skrifa þú: Þetta segir sá sem heldur vii stjörnum í sinni hægri hendi, sá sem gengur mitt á milli vii gulllegra stikna. Eg veit þín verk og þitt erfiði og þína þolinmæði og það þú kannt ekki hina vondu að umlíða og freistaðir þá sem sig segja postula vera og eru þó eigi. Og þú fannt þá ljúgara og leiðst það og þolinmæði hefir, og þú þoldir fyrir míns nafns sakir og þreyttist ekki. En það hefi eg á móti þér það þú hinn fyrsta kærleik forlést. Minnst á hvar þú ert affallinn, og gjör iðran, og gjör þín fyrru verkin. En ef ekki, man eg þér snarlega koma og þína ljósastiku í burtu hrinda úr sínum stað utan þú gjörir iðran.
En það hefir þú að þú hatar verk þeirra Nikólaítarum, hver eg og einninn hata. Hver eyru hefir að heyra, hann heyri hvað andinn segir samkundunum. Hver hann yfirvinnur, þeim mun eg gefa að eta af lífstrénu, að í Guðs paradís er. Og þeim engli samkundunnar til Smýrnen skrifa þú: Þetta segir hinn fyrsti og síðasti, sá dauður var og lifir. Eg veit þín verk og þína hörmung og fátækt, en þú ert auðigur, og lastan þeirra sem segja sig Gyðinga vera og eru ekki, heldur eru þeir Satans söfnuður. Hræðst þú ekkert þeirra hvað þú líða munt. Sjá, djöfullinn mun nokkra af yður í dýplissu fleygja upp á það þér freistaðir verðið, og þér munuð hörmung hafa í tíu daga.
Vert trúr allt til dauðans, svo man eg gefa þér kórónu lífsins. Hver eyru hefir, sá heyri hvað andinn segir samkundunum. Hver helst yfirvinnur, þeim skal ekkert mein ske af þeim öðrum dauða. Og þeim engli samkundunnar til Pergamon skrifa þú: Þetta segir sá sem hefir hið hvassa, tvíeggjaða sverð. Eg veit hvað þú gjörir og hvar þú býr, hvar helst að er andskotans sæti. Og þú heldur mitt nafn og afneitaðir eigi mína trú, og á mínum dögum er Antípas, minn trúr vottur, hjá yður í hel sleginn, hvar eð Satan byggir.
En eg hefi fátt eina á móti þér, það þú þar sjálfur hefir þá sem lærdóm Balam halda, sá sem lærði fyrir Balak að senda hneykslan fyrir sonum Íraelis til að eta af því sem skurgoðum offraðist og hóranir að drýgja. Líka svo einninn hefir þú þá sem halda kenningar Níkólaítarum, hvað er eg hata. Gjör yfirbót. En ef ekki þá mun eg þér snarlega koma og stríða viður þá meður sverði míns munns. Hver eyru hefir, sá heyri hvað andinn segir samkundunum. Hver hann yfirvinnur, þeim man eg gefa að eta af því fólgnu manna, og eg mun gefa honum góðan vitnisburð og með vitnisburðinum nýtt nafn skrifað, það enginn kennir utan sá það meðtekur.
Og þeim engli samkundunnar til Týatíra skrifa þú: Þetta segir sonur Guðs, sá augu hefir sem eldsloga og hans fætur sem glóanda látún. Eg veit þín verk og þinn kærleika og trú og þína þolinmæði og það hin síðari verkin munu hinum fyrrum fleiri. En fátt nokkuð hefi eg á móti þér, það þú leyfir þeirri kvinnu, Jessabel, sem segir sig spákonu vera, að læra og villa mína þjóna, hóranir að drýgja og skurgoðafórnir að eta. Og eg hefi henni tíma gefið það hún skyldi iðran gjöra fyrir hennar hóranir, og hún gjörir öngva iðran. Sjá, eg fleygi henni í rekkju, og hverjir með henni hórdóm drýgt hafa í hinar mestu hörmungar nema hún gjöri yfirbót fyrir sín verk.
Og hennar börn mun eg dauða deyða, og allar samkundur skulu viðurkenna það eg em nýrnanna og hjartanna rannsakari, og eg mun gefa hverjum yðar sem einum eftir sínum verkum. En yður segi eg og hinum öðrum sem eru til Týatíra, þeir þennan lærdóm eigi hafa og hverjir ekki viðurkennt hafa dýpt andskotans (sem að þeir segja): Og öngvan annan þunga man eg á yður senda. Þó hvað þér hafið, það haldið þar til að eg kem. Og hver yfirvinnur og varðveitir mín verk allt til enda, þeim mun eg vald gefa yfir hina heiðnu. Og hann skal stjórna þeim meður járnvendi, og svo sem leirgjörarans ker skal hann þá í sundur mola líka sem eg af mínum föður meðtekið hefi. Og morgunstjörnuna mun eg gefa honum.
Hver eyru hefir, sá heyri hvað andinn segir samkundunum.