The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 17

Mark · Chapter 2

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 17 of 174 · about 3 min

← Chapter 16Chapter 18 →

[ breyta] Og enn eftir fá daga þá gekk hann aftur til Kapernaum. Og er það heyrðist að hann var í húsinu, söfnuðust margir saman svo að þeir höfðu ekki rúm og einninn fyrir utan dyrnar. Og hann talaði orðið fyrir þeim. Þar komu nokkrir til hans, færandi einn iktsjúkan, hver eð borinn var af fjórum. Og þá er þeir fengu eigi fyrir fólkinu fært honum hann, opnuðu þeir þekjuna upp yfir honum og grófu þar í gegnum, létu svo sængina niður síga sem hinn sjúki lá í. En er Jesús sá þeirra trú, sagði hann til hins iktsjúka: Son minn, þínar syndir eru þér fyrirgefnar. En þar voru nokkrir skriftlærðir sem sátu þar og hugsuðu í sínum hjörtum: Hverninn talar þessi slíka guðlastan?

Hver mái syndirnar fyrirgefa nema Guð einn? Jesús fann strax í sínum anda að þeir þenktu svo með sér, sagði hann til þeirra: Því þenki þér þetta í yðrum hjörtum? Hvort er auðveldara að segja til hins iktsjúka: Þér eru þínar syndir fyrirlátnar, eða að segja: Statt upp, tak sæng þína og gakk héðan? Og að þér vitið það mannsins sonur hefur vald til á jörðu að fyrirgefa syndirnar, þá sagði hann til hins iktsjúka: Eg segi þér: Statt upp, tak sæng þína og gakk í þitt hús. Og strax þá stóð hann upp, tók sæng sína og gekk burt þaðan í allra augsýn svo að allir undruðust og heiðruðu Guð, svo segjandi, að aldrei höfu vær fyrr slíkt séð.

Hann gekk enn út aftur að sjánum, og allt fólk kom til hans, og hann lærði það. En þá er Jesús gekk fram hjá, leit hann Leví, son Alfei, sitjanda í tollbúðinni og sagði til hans: Fylg þú mér eftir. Hann stóð upp og fylgdi honum eftir. Það gjörðist þá er hann sat til borðs í hans húsi að margir tolltektarar og bersyndugir settust til borðs með Jesú og hans lærisveinum því að þeir voru margir sem honum fylgdu eftir. Og er hinir skriftlærðu og farísei sáu það að hann át með tollurum og bersyndugum, sögðu þeir til hans lærisveina: Því etur og drekkur yðar meistari með bersyndugum og tollheimturum?

Þá er Jesús heyrði það, sagði hann til þeirra: Þeir sem heilbrigðir eru, þurfa eigi læknarans, heldur þeir sem sjúkir eru. Því eigi kom eg að kalla réttláta, heldur synduga. Þar voru Jóhannes og faríseis lærisveinar, hverjir eð föstuðu mikið. Þeir komu og sögðu til hans: Því fasta Jóhannes og faríseis lærisveinar, en þínir lærisveinar fasta eigi? Jesús sagði til þeirra: Hverninn mega brúðlaupsbörnin fasta á meðan brúðguminn er hjá þeim? Því svo lengi mega þeir eigi fasta sem þeir hafa brúðgumann hjá sér. En þeir dagar munu koma að brúðguminn verður frá þeim tekinn, og á þeim dögum þá munu þeir fasta.

Enginn saumar nýja klæðisbót á gamalt fat því að hin nýja bótin gliðnar frá hinu forna, og eru slitin þá verri. Og enginn lætur nýtt vín í forna leðurbelgi, annars sprengir vínið belgina svo að vínið spillist, en belgirnir skemmast, heldur skal nýtt vín látast í nýja belgi. Það skeði enn aftur að Jesús gekk um þvottdag yfir kornekrur, og hans lærisveinar tóku til og gjörðu sér veg þar í gegnum og tíndu axin af korninu. En farísei sögðu til hans: Sjá, hvað þínir lærisveinar gjöra á þvottdegi, það er eigi hæfir.

Hann sagði þá til þeirra: Hafi þér ekki lesið hvað Davíð gjörði þá hann þurfti við, nær hann hungraði sjálfan og þá er með honum voru, hverninn að hann gekk inn í Guðs húsið á dögum Abíatars prestahöfðingja og át þau %fórnarbrauð sem eigi leyfðust að eta nema kennimönnum einum, og hann gaf þau þeim sem með honum voru? Hann sagði og þá til þeirra: Þvottdagurinn er fyrir mannsins sakir gjörður, en ei maðurinn fyrir þvottdagsins sakir. Því er mannsins sonur einn herra og einninn þvottdagsins.

← Chapter 16Chapter 18 →