The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 161

Revelation · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 161 of 174 · about 3 min

← Chapter 160Chapter 162 →

[ breyta] Og þeim engli samkundunnar til Sarden skrifa þú: Þetta segir sá sem hefir vii anda Guðs og stjörnunnar vii. Eg veit þín verk því að þú hefir það nafn að þú lifir og ert dauður. Vert vakandi og styrk hið annað hvað deyja vill. Þín verk hefi eg ekki fullkomleg fundin fyrir Guði. Því legg í minni hvað þú hefir meðtekið og heyrt, og varðveit það og gjör iðran. Því ef þú mant eigi vaka, þá mun eg yfir þig koma sem þjófur, og eigi munt þú vita á hverri stundu er eg mun koma yfir þig. Þú hefir fáein nöfn til Sarden er eigi hafa saurgað sín klæði, og þeir munu meður mér ganga í hvítum klæðum því að þeir eru þess verðir.

Hver yfirvinnur, sá skal meður hvítum klæðum klæddur verða, og eigi mun eg hans nafn útplána af lífsbókinni. Og eg mun játa hans nafn fyrir mínum föður og fyrir hans englum. Hver eyru hefir, sá heyri hvað andinn segir samkundunum. Og þeim engli samkundunnar til Fíladelfía skrifa þú: Þetta segir hinn heilagi og sannarlegi, sá sem hefir lykilinn Davíðs, hver eð upplætur og öngvan innibyrgir, sá er innibyrgir og öngvan upplætur. Eg veit þín verk. Sjá, eg lét fyrir þér opnar dyr, og enginn fær þær aftur látið. Því að þú hefir nokkurn lítinn kraft og hefir varðveitt mín orð og hefir ekki mitt nafn afneitað.

Sjá, eg mun gefa út af Satans safnaði þá sem segja sig Gyðinga vera og eru ekki, heldur ljúga. Sjá, eg man þeim gjöra það þeir skulu koma og tilbiðja fyrir þínum fótum og viðurkenna það eg hefi þig elskað. Með því þú hefir varðveitt orð minnar þolinmæði, man eg einninn varðveita þig frá freistingartíma sem koma mun yfir alla heimsins kringlu til að freista þeirra sem á jörðu byggja. Sjá, eg kem snarlega. Halt hvað þú hefir svo það enginn taki þína kórónu. Hver yfirvinnur, þann mun eg gjöra að stólpa í musteri Guðs míns, og hann skal eigi meir úti ganga.

Og yfir honum mun eg skrifa nafn Guðs míns og nafn hinnar nýju Jerúsalem sem er borg míns Guðs, sú af himnum ofan kemur frá mínum Guði, og mitt hið nýja nafn. Hver eyru hefir að heyra hvað andinn segir samkundunum. Og þeim engli samkundunnar til Laódíkea skrifa þú: Þetta segir amen, trúr og sannarlegur vottur, hver að upphaf er skepnunnar Guðs: Eg veit þín verk, það þú ert hvorki kaldur né heitur. Eg kjöra það þú værir annaðhvort kaldur eða heitur. En með því þú ert volgur og hvorki kaldur né heitur, mun eg útskyrpa þér af mínum munni. Því að þú segir: Eg em ríkur og auðigur nóg og þarf einskis, - og veist ekki það þú ert vesall, aumur og volaður, blindur og fatlaus.

Eg ræð þér að þú kaupir gull af mér það í eldi er reynt svo þú auðigur verðir og þú íklæðist hvítum klæðum svo að ekki uppbirtist vanvirðing þinnar fatleysi, og smyr þín augu meður augnasmyrslum svo að þú sjáir. Hverja eg elska, þá straffa eg og tyfta. Því vert kostgæfinn og gjör iðran. Sjá, eg stend fyrir dyrum og klappar upp á. Ef nokkur heyrir mína rödd og upplýkur dyrunum, til hans mun eg innganga og kveldverð með honum snæða og hann meður mér. Hver yfirvinnur, honum mun eg gefa meður mér að sitja á mínum stóli líka sem eg yfirunnið hefi og setið með mínum föður á hans stóli. Hver eyru hefir, sá heyri hvað andinn segir samkundunum.

← Chapter 160Chapter 162 →