The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 162

Revelation · Chapter 4

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 162 of 174 · about 1 min

← Chapter 161Chapter 163 →

[ breyta] Eftir það sá eg, og sjá, að dyr upplukust á himni, og hin fyrsta röddin, hverja eg hafði heyrt við mig tala sem annars lúðurs, hún sagði: Far þú upp hingað, og mun eg sýna þér hvað hér eftir skal ske. Og jafnsnart var eg í anda. Og sjá, að stóll var settur á himnum, og á stólnum sat nokkur. Og sá sem sat, hann var líka álits sem steinninn jaspis og sardis, og regnbogi var kringum stólinn líka álits sem smaragðar. Og umhverfis stólinn voru xxiv stólar, og á þeim stólum sátu xxiv öldungar skrýddir hvítum skrúða og báru á sínum höfðum gulllegar kórúnur. Og af stólinum útgengu eldingar, reiðarþrumur og raddir. vii eldslampar brunnu fyrir stólnum, hverjir að eru vii andar Guðs.

Og fyrir stólnum var glersjór líka sem kristallar og mitt í stólnum og kringum stólinn fjögur dýr full augna á bak og fyrir. Og hið fyrsta dýrið var líkt leóni og hið annað líkt kálfi og hið þriðja dýrið hafði ásján sem maður og hið fjórða var líkt fljúganda erni. Og hvert þeirra fjögra dýranna hafði sex vængi og utan um kring og innan full augna og höfðu eigi hvíld dag og nótt, segjandi: Heilagur, heilagur, heilagur er Guð Drottinn almáttugur, sá sem var og sá sem er og sá sem koma mun.

Og þá dýrin gáfu dýrð og heiðran og blessan þeim er á stólnum sat, sá er lifir um aldir að eilífu, féllu fram xxiv öldungar fyrir þann sem á stólnum sat og tilbáðu þann sem lifir um aldir og að eilífu og snöruðu sínum kórónum fram fyrir stólinn og sögðu: Þú Drottinn ert verðugur að meðtaka dýrð og heiðran og kraft því að þú hefir alla hluti skapað, og fyrir þinn vilja urðu þeir og eru skapaðir.

← Chapter 161Chapter 163 →