Revelation · Chapter 5
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 163 of 174 · about 4 min
[ breyta] Og eg sá í hægri hendi þess sem á stólnum sat bók skrifaða innan og utan, innsiglaða með vii innsiglum. Og eg sá sterkan engil predika mikilli raust: Hver er verðugur þessari bók upp að lúka og hennar innsiglin upp að brjóta? Og enginn, hvorki á himnum né á jörðu né undir jörðu, kunni þeirri bók upp að lúka né þar í að sjá. Og eg æpta ógurlega að enginn fannst þar verðugur þeirri bók upp að lúka og að lesa né þar í að sjá. Og einn af öldungunum segir til mín: Grát ekki. Sjá, það leónið sem er af slekti Júda, rót Davíðs, hefir yfirunnið að það opni bókina og uppbrjóti hennar vii innsigli.
Og eg gáði að, og sjá, í miðið stólsins og þeirra fjögra dýra og mitt á milli öldunganna, standa lamb líka sem væri það drepið og hafði vii horn og vii augu, hver að eru andar Guðs, útsendir um öll lönd. Og það kom og tók bókina úr hægri hendi þess sem á stólnum sat. Og þá er það tók bókina, þá féllu fram þau fjögur dýrin og fjórir og tuttugu öldungarnir fyrir lambinu.
Og hver einn hafði hörpu og gullker full reykilsis, hver að eru bænir heilagra, og sungu nýjan lofsöng og sögðu: Þú ert verðugur að meðtaka bókina og upp að brjóta hennar innsiglin því að þú ert slátraður og endurleystir oss með þínu blóði út af allsháttuðum kynkvíslum og tungum, fólki og þjóðum og hefir oss gjört Guði til konunga og kennimanna. Og vér munum ríkja á jörðu. Og eg sá og heyrði rödd margra engla umhverfis stólinn og um dýrin og umkring öldungana, og þeir voru að tölu þúsund þúsunda og sögðu hárri raust: Verðugt er lambið, það slátrað er, að meðtaka kraft og ríkidóm og visku og styrk, dýrð og heiður.
Og allar skepnur, þær á himnum eru og á jörðu og undir jörðu og í sjónum og allt hvað í þeim er, heyrða eg segja til hans sem á stólinum sat og til lambsins: Lof, heiður og dýrð og vald um aldir og að eilífu. Og þau fjögur dýrin sögðu: Amen. Og þeir fjórir og tuttugu öldungar féllu fram og tilbáðu þann sem lifir um aldir alda að eilífu. Sétti kapítuli [ breyta] Og eg sá það að lambið opnaði eitt af innsiglunum, og eg heyrði eitt af þeim fjórum dýrunum segja líka sem með reiðarþrumuskryð: Kom og skoða. Og eg gætta að, og sjá, að hvítur hestur, og sá þar upp á sat hafði boga, og honum varð gefin kóróna, og hann fór út að yfirvinna og það hann yfirvynni.
Og þá það opnaði hið annað innsiglið, heyrða eg hið annað dýrið segja: Kom og gæt að. Og þar gekk út annar hestur, sá var rauður, og þeim sem þar sat á varð gefið friðinn í burt að taka af jörðu svo að þeir dræpist niður innbyrðis. Og honum varð gefið stórt sverð. Og er það opnaði hið þriðja innsiglið, heyrða eg hið þriðja dýrið segja: Kom og skoða. Og eg gætta að, og sjá, að brúnn hestur, og sá þar sat á hafði met í sinni hendi. Og eg heyrða meðal þeirra fjögra dýra röddina segja: Mælir hveitis um einn pening og þrír mælir byggs um einn pening, og víni og viðsmjöri gjör öngvan skaða. Og þá það opnaði hið fjórða innsiglið, heyrða eg rödd hins fjórða dýrsins, segjandi: Kom skoða.
Og sjá, að bleikur hestur og sá þar á sat, þess nafn hét Dauði, og helvíti honum eftirfylgdi. Og honum varð makt gefin til að deyða í fjórum áttum jarðar meður sverði og hungri og meður drápi af dýrum jarðar. Og þá það opnaði hið fimmta innsiglið, leit eg undir altarinu sálir þeirra sem líflátnir voru fyrir Guðs orðs sakir og fyrir vitnisburðarins sakir sem þeir höfðu. Og þær kölluðu hárri röddu og sögðu: Drottinn, þú hinn heilagi og sannarlegi, hversu lengi þá dæmir þú og hefnir ekki vors blóðs á þeim sem á jörðu búa?
Og þeim sérhverjum einum varð gefið hvítt klæði og til þeirra varð sagt að þeir hvíldist enn um nokkra stund þangað til það uppfylltist að þeirra samþjónar og bræður kæmi þar og til, hverjir einninn líflátnir skyldu verða líka sem þeir. Og eg sá að það opnaði hið sétta innsiglið. Þá gjörðist mikill jarðarskjálfti, og sólin varð svört sem hærusekkur og tunglið sem blóð. Og stjörnur himins hrundu á jörðina líka sem annað fíkjutré, nær það hristist af vindi miklum, affleygir sínum fíkjum. Og himinninn undanlét sem sú bók er saman verður vafin, og öll fjöll og eyjar hrærðust úr sínum stöðum.
Og jarðarinnar konungar og höfðingjar, ríkismenn og foringjar og maktarmenni og allir þrælar og frelsingjar skýldu sér í holum og hellum fjallanna og sögðu til hellnanna og fjallanna: Fallið yfir oss og hyljið oss fyrir augliti þess sem á stólinum situr, og fyrir reiði lambsins því að hinn mikli dagur hans reiði er kominn, hver fær staðið?