Revelation · Chapter 6
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 164 of 174 · about 2 min
[ breyta] Og eftir það sá eg fjóra engla standa á fjórum hornum jarðarinnar. Og þeir héldu inni fjórum vindum jarðarinnar svo að enginn vindur blés á jörðina né á sjóinn né á nokkurt. Og eg sá annan engil uppstíga út af uppgöngu sólarinnar. Sá hafði teikn lifanda Guðs og kallaði hárri röddu til hinna fjögra englanna, hverjum gefið er að granda jörðunni og sjónum og sagði: Grandið ekki jörðinni, eigi sjónum né trjánum svo lengi það vér teiknum þjóna vors Guðs í þeirra ennum.
Og eg heyrða tölu þeirra sem teiknaðir urðu, hundrað fjórar og fjörutigir þúsundir sem teiknaðir voru af öllum kynkvíslum Íraelssona, af kyni Júda tólf þúsundir teiknaðir, af kyni Rúben tólf þúsundir teiknaðir, af kyni Gað xii þúsundir teiknaðir, af kyni Asser xii þúsundir teiknaðir, af kyni Neftalín xii þúsundir teiknaðir, af kyni Manasse xii þúsundir teiknaðir, af kyni Símeon xii þúsundir teiknaðir, af kyni Leví xii þúsundir teiknaðir, af kyni Ísaskar xii þúsundir teiknaðir, af kyni Sabúlon xii þúsundir teiknaðir, af kyni Jósef xii þúsundir teiknaðir, af kyni Benjamín xii þúsundir teiknaðir.
Og eftir það leit eg, og sjá, að skari mikill, hvern enginn gat talið, af öllum þjóðum og fólki og tungumálum standa fram fyrir stólnum og frammi fyrir lambinu og umskrýddir hvítum skrúða og pálmaviður í þeirra höndum og kölluðu hárri röddu og sögðu: Heilsa sé þeim sem á stólinum situr, Guði og lambinu. Og allir englar stóðu umhverfis stólinn og kringum öldungana og um kring þau fjögur dýrin og féllu fyrir stólnum fram á þeirra ásjánu og tilbáðu Guð og sögðu: Amen, lof og dýrð og speki og þakkir og heiður og kraftur og sterkleiki sé vorum Guði um aldir og að eilífu.
Amen.* Og einn af öldungunum andsvaraði og sagði til mín: Hverjir eru þessir, sem umskrýddir eru hvítum skrúða, og hvaðan eru þeir að komnir? Og eg sagða til hans: Herra, þú veist það. Og hann sagði til mín: Þessir eru þeir sem komnir eru úr miklu harmkvæli og sinn skrúða þvegið hafa og hvítfágað í blóði lambsins. Af því eru þeir fram fyrir stóli Guðs, og sá upp á stólnum situr, mun búa yfir þeim. Eigi man þá hér eftir hungra né þyrsta, og eigi man yfir þá falla sólarinnar né nokkurs konar hiti. Því að lambið mitt á stólnum mun stjórna þeim og leiða til lifandi vatsbrunna. Og Guð mun afþvo allan grát af þeirra augum.