The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 165

Revelation · Chapter 7

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 165 of 174 · about 1 min

← Chapter 164Chapter 166 →

[ breyta] Og þá það opnaði hið sjöunda innsiglið, gjörðist kyrrleiki mikill á himnum nær um hálfa stund. Og eg sá vii engla, þeir gengu fyrir Guð, og þeim urðu vii básúnir gefnar. Og annar engill kom og stóð við altarið og hafði gulllegt reykilsisker. Og honum varð mikið reykelsi gefið það hann gæfi til bæna allra heilagra upp á altarið fyrir stólnum. Og reykur reykilsisins gekk upp af hendi engilsins fyrir Guð. Og engillinn tók reykilsiskerið og fyllti það með eldi af altarinu og hellti því á jörðina. Og þá urðu raddir og reiðarþrumur og eldingar og jarðskjálftar. Og þeir vii englar, sem höfðu þær vii básúnir, tilbjuggu sig að básúna.

Og hinn fyrsti básúnaði, og þá gjörðist hagl og eldur með blóði blandaður og féll á jörðina. Og þriðjungur trjánna brann, og allt græna grasið brann. Og hinn annar engill básúnaði. Og þá fór líka sem bjarg mikið eldi brennanda í sjóinn. Og þriðjungur sjávarins gjörðist blóð, og þriðjungur lifandi skepna dóu, og þriðjungur skipanna fyrirfórst. Og hinn þriðji engill básúnaði. Og þar féll stór stjarna af himni, og hún logaði sem kveikur og féll yfir þriðjung vatnanna og yfir vatsbrunnana. Og nafn stjörnunnar hét Remma því að þriðjungur snerist í remmu, og margir menn dóu af vötnunum af því þau voru svo römm vorðin. Og hinn fjórði engill básúnaði.

Og þriðjungur sólarinnar varð sleginn og þriðjungur tunglsins og þriðjungur stjarnanna svo það þriðjungur þeirra varð myrkvaður. Og þriðjungur dagsins lýsti ekki, líka einninn náttarinnar. Og eg sá einn engil fljúga mitt í gegnum himininn og segja með hárri raust: Vei, vei, vei þeim sem á jörðu búa fram yfir hinar aðrar raddir básúnsins þeirra þriggja engla sem enn skyldu básúna.

← Chapter 164Chapter 166 →