Revelation · Chapter 8
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 166 of 174 · about 2 min
[ breyta] Og hinn fimmti engill básúnaði. Og eg sá stjörnu eina falla af himni á jörðina, og honum varð gefinn lykill til pytts undirdjúpsins. Og hann lauk upp pytti undirdjúpsins, og þar gekk upp reykur svo sem mikils ofns. Og sólin varð myrk og veðrið af reyknum pyttsins. Og út af þeim reyk komu engisprettur á jörðina, og þeim varð makt gefin líka sem það flugormar makt hafa á jörðu. Og þar varð til þeirra sagt það þær skyldu eigi granda grasi jarðar né nokkurs háttar korni eður nokkurs konar viði, utan einasta þeim mönnum sem eigi hafa teiknið í sínum ennum. Og þeim varð það gefið að þær aflífuðu þá eigi, heldur það að þær kveldu þá í fimm mánuðu.
Og þeirra kvöl var svo sem flugormakvöl nær þeir slá manninn. Og á þeim sömum dögum munu mennirnir dauðans leita og eigi finna. Þeir munu girnast að deyja, og dauðinn mun frá þeim flýja. Og þær engisprettur eru líkar þeim hestum sem til bardaga eru búnir og á þeirra höfðum sem kórónur gulli líkar og þeirra andlit sem mannsandlit og höfðu lokka sem konuhár. Og tennur þeirra voru sem leóna og höfðu brynjur svo sem járnbrynjur og þytur þeirra vængja svo sem buldran vagna þeirra margra hesta, sem í bardögum hlaupa, og höfðu hala líka sem flugormar.
Og þar voru agnúar á þeirra hölum, og þeirra makt var að granda mönnum í fimm mánuði og höfðu yfir sér konung, engilinn undirdjúpsins, hvers nafn á ebresku Abbadón, en á girsku Appollion. Eitt vei er umliðið. Sjá, þar koma enn nú tvö vei eftir þetta. Og hinn sétti engill básúnaði. Og eg heyrða eina rödd út af fjórum hornum gyllinialtarisins fyrir Guði. Hún sagði til hins sétta engilsins sem básúnað hafði: Leys þú upp þá fjóra engla sem bundnir eru við hið mikla vatnið Eufrates. Og þeir fjórir englar urðu lausir, hverjir reiðubúnir voru á stundu, á degi og á mánuði og á ári að þeir í hel slægi þriðjung mannanna. Og tala þess ríðanda hers var tíu sinnum þúsund þúsunda. Og eg heyrða þeirra tölu.
Og sem eg sá hestana í sýn og þá sem þar upp á sátu það þeir höfðu glóandi og gular og brennisteinslegar brynjur og höfuðin hestanna svo sem leónahöfuð. Og út af þeirra munni gekk eldur, reykur og brennisteinn. Af þessu þrennu þá er í hel sleginn þriðjungur mannanna af eldinum og reyknum og brennisteininum er út af þeirra munni gekk. Því að þeirra makt var í þeirra munni, og þeirra halar voru höggormum líkir og höfðu höfuðin, og meður þeim sömum gjörðu þeir skaðann.
Og þar voru enn menn afgangs, þeir sem eigi urðu í hel slegnir af þessum plágum, hverjir ekki yfirbót gjörðu af verkum sinna handa, svo að þeir eigi tilbæðu djöfulinn og gulls og silfurs og eirs og steina og trés afguði sem hvorki sjá né heyra né ganga kunna, hverjir einninn öngva yfirbót gjörðu af sínum manndrápum, fjölkynngi, frillulifnaði og stuldi.