The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 167

Revelation · Chapter 9

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 167 of 174 · about 3 min

← Chapter 166Chapter 168 →

[ breyta] Og eg sá annan sterkan engil af himnum ofan koma. Hann var skýi umklæddur og regnbogi á hans höfði, og hans andlit var sem sól og hans fætur líka sem eldsstólpar. Og hann hafði í sinni hendi litla bók opna. Og hann setti sinn hægra fót á sjóinn og hinn vinstra á jörðina. Og hann kallaði hárri rödd líka sem það león grenjar. Og þá hann kallaði, töluðu vii reiðarþrumur sínar raustir. Og þá þær vii reiðarþrumur höfðu talað sínar raustir, vilda eg hafa skrifað þær. Þá heyrða eg rödd af himni segja til mín: Merk þú hvað þær vii reiðarþrumur hafa talað og skrifa þær eigi.

Og engillinn, hvern eg sá standa á sjónum og á jörðunni, hóf upp sína hönd til himins og svór við hinn lifanda um aldir að eilífu, hver himininn hefir skapað og hvað þar inni er og jörðina og hvað þar inni er og sjóinn og hvað þar inni er, það héðan í frá engin tíð meir vera skal, heldur á dögum raddar þess sjöunda engils nær hann man básúna, þá skal fullkomnaður verða leyndur dómur Guðs svo sem hann kunngjörði sínum þjónum og spámönnum. Og eg heyrða rödd af himni enn aftur við mig tala og segja: Gakk héðan, tak þann opna bækling af hendi engilsins sem á sjónum og á jörðunni stendur. Og eg gekk burt til engilsins og sagða: Gef mér bæklinginn.

Og hann sagði til mín: Tak hann í burt og svelg hann, og mun hann remma þinn kvið, en í þínum munni mun hann sætur vera sem hunang. Og eg tók bæklinginn af hendi engilsins og svelgdi hann, og hann var sætur í mínum munni sem hunang. Og þá eg hafða svelgt hann, beiskvaðist kviður minn. Og hann sagði til mín: Þú hlýtur enn að spá heiðnum þjóðunum, fólki og tungumálum og mörgum konungum. Og mér varð gefinn reyrleggur líka sem hrísla og sagði: Statt upp og mæl mustéri Guðs og altarið og þá sem þar inni tilbiðja. En þann hinn innsta kór mustérisins kasta þú út og mæl hann eigi því að hann er heiðingjum gefinn, og hina heilögu borg munu þeir fótum troða tvo og fjörutigi mánuði.

Ellifti kapítuli [ breyta] Og eg mun gefa mína tvo votta, og þeir skulu spá þúsund tvö hundruð og sextigi daga, klæddir sekkjum. Þessir eru tvö viðsmjörstré og tveir ljósastjakar, standandi fyrir augliti Guðs jarðarinnar. Og ef nokkur vill þeim granda, þá gengur eldur út af þeirra munni og svelgir óvini þeirra. Og ef nokkur vill þeim granda, sá hlýtur svo líflátinn að verða. Þessir hafa makt himininn aftur að lúka að það rigni ekki á dögum þeirra spásagna. Og þeir hafa makt yfir vatninu til að umsnúa í blóð og að slá jörðina með allsháttaðri plágu svo oft sem þeir vilja.

Og nær þeir hafa sinn vitnisburð endað, þá man dýrið, það út af undirdjúpinu uppstígur, halda stríð við þá og mun yfirvinna þá og í hel slá. Og þeirra líkamir munu liggja á strætum hinnar miklu borgar, hver eð andlega kallast Sódóma og Egyptum, þar vor Drottinn er krossfestur. Og þeirra líkami munu nokkrir af þjóðunum og kynslóðunum og tungumálunum sjá í þrjá daga og einn hálfan og munu ekki þeirra líkami leggja láta í leiði framliðinna. Og þeir er á jörðu búa, munu gleðja sig yfir þeim og kátir verða og gjöfum sendast innbyrðis því að þessir tveir spámenn kvöldu þá sem á jörðu búa. Og eftir þrjá daga og einn hálfan fór í þá lífsins andi af Guði, og þeir stóðu á sína fætur.

Og mikill ótti féll yfir þá sem þá sáu. Og þeir heyrðu rödd mikla af himni segja til þeirra: Stigið upp hingað. Og þeir stigu upp í himininn í skýinu, og þeirra óvinir sáu þá. Og á þeirri samri stundu varð mikill jarðskjálfti, og þriðjungur borgarinnar hrapaði. Og þar urðu í jarðskjálftanum í hel slegnir vii þúsund mannanöfn. Og hinir aðrir hræddust og gáfu dýrð Guði himinsins. Það annað vei er umliðið. Sjá, hið þriðja vei kemur snart.

← Chapter 166Chapter 168 →