Revelation · Chapter 10
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 168 of 174 · about 3 min
[ breyta] Og hinn sjöundi engill básúnaði. Og þar gjörðust miklar raddir á himni, þær sögðu: Ríkin þessarar veraldar eru vorðin vors Drottins og hans Krists, og hann mun ríkja um aldir að eilífu. Og þeir fjórir og tuttugu öldungar, sem sitja fyrir Guðs augliti á sínum stólum, féllu fram á sínar ásjónur, tilbáðu Guð og sögðu: Vér þökkum þér Drottinn Guð almáttugur, sá þú ert og sá þú vart og sá þú tilkomandi ert því að þú hefir meðtekið þinn mikla kraft og ríkir.
Og hinar heiðnu þjóðir eru reiðar vorðnar, og þín reiði er komin og tími framliðinna það þeir dæmist og laun að gefa þínum þjónum, spámönnum og heilögum og þeim er þitt nafn óttast, smáum og stórum, og að glata þeim sem jörðinni glatað hafa. Og mustéri Guðs varð upplokið á himni, og hans testamentsörk sást í hans mustéri. Og þar urðu eldingar og raddir og reiðarþrumur og jarðskjálftar og hagl mikið. Og þar birtist teikn mikið á himni: Kona sólunni umskrýdd og tunglið undir hennar fótum, á hennar höfði kóróna af tólf stjörnum. Og hún var þunguð, kallaði og var jóðsjúk og hafði miklar fæðingarhríðir. Og þar birtist enn annað teikn á himni.
Og sjá, að mikill dreki, rauður, sá hafði vii höfuð og tíu horn og á hans höfðum vii kórónur. Og hans hali dró þriðjung stjarnanna og fleygði þeim á jörð. Og drekinn sté fram fyrir konuna, þá sem fæða skyldi, svo að nær hún hefði fætt að hann æti hennar barn. Og hún fæddi son, eitt piltkorn, sá er stjórna skyldi öllum þjóðum meður járnvendi. Og hennar barni varð kippt til Guðs af hans stóli. Og konan flýði á eyðimörk, hvar hún hafði fyrirbúinn stað af Guði að hún fæddist þar þúsund tvö hundruð sextigi daga. Og þar gjörðist stríð mikið á himni það Mikael og hans englar börðust við drekann. Drekinn barðist og hans englar og yfirunnu ekki. Þeirra staður varð einninn eigi meir fundinn á himni.
Og sá mikli dreki og hinn gamli höggormur, sá sem að heitir djöfull og andskoti, verður útsnaraður á jörðina, hver eð alla veraldarkringluna villir. Og hann varð útsnaraður á jörðina, og hans englar urðu og einninn útsnaraðir. Og eg heyrða rödd mikla á himni, segjandi: Nú er heilsa og kraftur og ríki og máttur vors Guðs vorðinn hans Krists með því hann er útsnaraður sem þá ásakaði dag og nótt fyrir Guði. Og þeir hafa hann yfirunnið fyrir lambsins blóð og fyrir orðið þeirra vitnisburðar, og þeir hafa eigi elskað sitt líf allt til dauðans.
Þar fyrir gleðjist þér himnar og þér sem þar inni byggið.* Vei þeim sem á jörðu búa og á sjónum því að djöfullinn stígur ofan til yðar, hafandi reiði mikla, og veit það hann hefir stuttan tíma. Og sem drekinn sá það hann var útsnaraður á jörðina, ofsókti hann þá konu sem sveininn hafði fætt. Og konunni urðu tveir vængir gefnir líka sem mikillar arnar svo það hún flygi á eyðimörk í sinn stað þar hún nærðist um stund og um tíma og um hálfan tíma frá augsýn höggormsins. Og höggormurinn gusaði eftir konunni úr sínum munni vatni líka sem vatsflóði svo að hún drekktist í flóðinu. En jörðin hjálpaði konunni og upplauk sinn munna og svelgdi flóðið, því er drekinn gusaði úr sínum munni.
Og drekinn reiddist konunni og gekk burt að berjast við þá sem yfir voru af hennar sæði, þeir Guðs boðorð varðveita og hafa vitnisburð Jesú Kristi.