Revelation · Chapter 11
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 169 of 174 · about 2 min
[ breyta] Og eg stóð á sjávarsandi, og eg sá dýr uppstíga úr sjánum, það hafði vii höfuð og tíu horn og á sínum hornum vii kórónur og á þess höfðum nöfn háðungarinnar. Og það dýr, sem eg sá, var líkt pardelo og þess fætur sem björnafætur og þess kraftur sem leónakraftur. Og drekinn gaf því sinn kraft og sinn stól og mikla makt. Og eg sá eitt af þessum höfðum svo sem væri það sært til dauða, og þess hin banvæna und varð heil. Og öll veraldarkringlan undraðist það dýrið og tilbáðu drekann, þann sem dýrinu gaf maktina og tilbáðu það dýr og sögðu: Hver er dýrinu líkur, og hver kann að stríða við það?
Og því varð gefinn munnur til að tala mikla hluti og háðungar, og því varð máttur gefinn til að höndla í tvo og fjörutigi mánaði. Og það upplauk sínum munni til að hæða í móti Guði og að lasta hans nafn og hans tjaldbúð og þá á himnum byggja. Og því varð gefið að stríða við heilaga og yfirvinna þá, og því varð gefin makt yfir allar kynkvíslir jarðar og tungumál og þjóðir. Og allir, sem á jörðu byggja, tilbáðu það, hverra nöfn eigi eru skrifuð á lífsbókinni lambsins, það líflátið er af upphafi veraldar. Hefir nokkur eyru, sá heyri. Ef einhver í herleiðing leiðir, sá man í herleiðingu ganga. Ef nokkur í hel slær með sverði, sá hlýtur með sverði í hel sleginn að verða.
Hér er þolinmæði og trú heilagra. Og eg sá annað dýr uppstíga af jörðunni og hafði tvö horn líka sem lamb og talaði svo sem drekinn. Og það gjörir alla makt hins fyrra dýrsins í þess augliti, og það gjörði að jörðin og þeir sem þar á búa, tilbáðu það fyrra dýrið, hvers dauðleg und heil var vorðin. Og það gjörir stór tákn svo að það gjörir einninn eld af himni að falla í manna augsýn og villir þá sem á jörðu búa fyrir sakir þeirra teikna sem því eru gefin til að gjöra í augliti dýrsins, segjandi þeim á jörðu byggja að þeir gjöri mynd dýrinu, því sem undina af sverðinu hafði og lifnaði.
Og því varð gefið að það gæfi myndinni dýrsins anda svo það myndin dýrsins talaði og það gjörði að hver sem helst eigi tilbæði mynd dýrsins, að sá yrði í hel sleginn. Og það gjörir alla smá og stóra, ríka og fátæka, frelsingja og þræla að meðtaka það auðkenningarteikn í sína hægri hönd elligar í sín enni svo það enginn fær að selja eður að kaupa utan hann hafi það auðkenningarmerki eður nafn dýrsins eða tölu þess nafns. Hér er speki. Hver undirstöðu hefir, sá samanreikni tölu dýrsins því að það er mannsins tala, og þess tala er sex hundruð sex og sextigi.