Revelation · Chapter 12
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 170 of 174 · about 4 min
[ breyta] Eg sá og lamb standa á fjallinu Síon og með því hundrað og fjórar og fjörutigi þúsundir, og þeir höfðu nöfn föður þess skrifuð í sínum ennum. Og eg heyrða rödd af himni svo sem mikils vatsfalls og svo sem rödd mikillar reiðarþrumu. Og röddin, sem eg heyrða, var sem hörpuslagarar, þeir eð slá sínar hörpur, og sungu svo sem nýja lofsöngva fyrir stólnum og fyrir þeim fjórum dýrunum og fyrir öldungunum. Og enginn gat þann lofsöng numið utan einasta þeir hundrað og fjórir og fjörutigi þúsundir sem keyptir eru af jörðunni. Þessir eru og þeir, hverjir eigi flekkaðir eru meður konum því að þeir eru meyjar og fylgja lambinu eftir, hvert það gengur.
Þessir eru og keyptir út af mönnum Guði til frumburða og lambinu. Og í þeirra munni er engin lygi fundin því að þeir eru utan flekkan frammi fyrir stóli Guðs. Og eg sá annan engil fljúga um miðjan himininn, sá hafði ævinlegt evangelion til að kunngjöra þeim sem á jörðu sitja og byggja og allri þjóð og kynferði og tungumáli og fólki og sagði með hárri rödd: Óttist Guð og gefið honum dýrðina því að kominn er tími hans dóms. Og tilbiðjið þann sem gjört hefir himin og jörð og sjóinn og vatsbrunnana. Og annar engill eftirfylgdi, sá sagði: Fallin er hún, fallin er hún, Babylon hin mikla borg, því að hún hefir með víni síns frillulifnaðar drykkjað allar þjóðir.
Og hinn þriðji engill fylgdi þessum eftir og sagði með hárri raust: Ef nokkur tilbiður dýrið og þess mynd og meðtekur það auðkenningarmerki í sitt enni eður á sína hönd, sá man drekka af víni reiðinnar Guðs sem innbyrlað og skært er í bikar hans bræði og mun kvaldur verða með eldi og brennisteini í augsýn heilagra engla og fyrir augliti lambsins. Og reykur þeirra písla man uppstíga um aldir að eilífu, og þeir hafa eigi neina hvíld dag og nótt sem dýrið hafa tilbeðið og þess mynd og ef nokkur hefir þess auðkenningarmerki meðtekið. Hér er þolinmæði heilagra, hér eru þeir sem varðveita boðorðin og trúna á Jesúm.
Og eg heyrða rödd af himni til mín segja: Skrifa: Sælir eru þeir dauðir sem í Drottni deyja í frá þessu. Já, andinn segir, þeir hvílast af sínu erfiði því að þeirra verk fylgja þeim eftir. Og eg leit, og sjá, að hvítt ský og á skýinu sitja þann líkur var mannsins syni, sá hafði gullkórónu á sínu höfði og í sinni hendi hvassan sigð. Og annar engill gekk út af mustérinu, sá kallaði með hárri raust til þess sem á skýinu sat: Slá til með sigði þínum og sker upp því að kornskerutíminn er kominn af því að haustyrkjan jarðarinnar er þornuð. Og sá er á skýinu sat, hjó til með sínum sigði á jörðina, og jörðin varð haustunnin.
Og annar engill gekk út af mustérinu af himni, sá hafði einninn hvassan sigð. Og annar engill gekk út af altarinu, sá hafði makt yfir eldinum, og hrópaði með miklu kalli til hans, sem hvassan sigðinn hafði, og sagði: Högg til með þínum hvassa sigð og sníð af vínviðarkvistu jarðarinnar því að þeirra vínber eru fullvaxin. Og engillinn hjó til með sínum hvassa sigð á jörðina og sneið af vínkvistu jarðarinnar og snaraði þeim í hina miklu vínþrúgu Guðs reiði.
Og vínþrúgan varð utan borgar fergð, og blóðið gekk út af þrúgunni allt til beisltauma hestanna um þúsund sex hundruð renniskeiða. [Fimmtándi] kapítuli [ breyta] Og eg sá annað teikn á himni, það var mikið og undarlegt. vii englar höfðu vii hinar síðustu plágur því að meður þeim sömum er fullkomnuð reiði Guðs. Og eg sá svo sem glersjó eldi mengaðan og þá sem sigrað höfðu dýrið og þess mynd og tölu þess nafns það þeir stóðu á glersjónum og höfðu hörpur Guðs og sungu lofsöng Moysi, Guðs þénustumanns, og lofsöng lambsins, segjandi: Mikil og undarleg eru þín verk, Drottinn Guð almáttugur, réttvísir og sannarlegir eru þínir vegir, þú konungur heilagra.
Hver skyldi þig eigi hræðast, Drottinn, og mikla þitt nafn? Því að þú einn ert heilagur, af því munu allar þjóðir koma og tilbiðja fyrir þér því þínir dómar eru opinberir vorðnir. Og eftir það sá eg, og sjá, að upplokið varð mustéri, vitnisburðarins tjaldbúðar, á himni. Og út af mustérinu gengu þeir sjö englar, sem pláguna höfðu, klæddir hreinu skínanda lérefti og gyrtir um brjóstið með gulllindum. Og eitt af fjórum dýrunum gaf þeim sjö englunum sjö gullskálir fullar Guðs reiði, þess er lifir um aldir að eilífu. Mustérið varð fullt með reyk af vegsemd Guðs og hans krafti, og enginn kunni inn að ganga í mustérið þar til það þær vii plágur þeirra vii engla fullkomnaðar verða.