The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 18

Mark · Chapter 3

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 18 of 174 · about 3 min

← Chapter 17Chapter 19 →

[ breyta] Hann gekk og inn í samkunduhúsið aftur. Og þar var einn sá maður er hafði visnaða hönd, og þeir geymdu að hvort hann læknaði á þvottdögum svo að þeir mættu áklaga hann. Og hann sagði til mannsins, þess sem visnaða hafði höndina: Statt upp hér í miðið. Hann sagði og þá til þeirra: Hvort hæfir á þvottdögum vel að gjöra eður illa, lífinu til frelsis að gjöra eður því að tortýna? En þeir þögðu allir. Hann leit þá til þeirra með reiðisvip og angraðist viður þeirra hjartans blindleik og segir svo til mannsins: Réttu út þína hönd. Og hann rétti hana út, en hans hönd varð heil líka sem hin önnur.

En farísei gengu út og gjörðu strax sín ráð með Heródes þénurum í móti honum hverninn helst að þeir fengu tortýnt honum. En Jesús veik þaðan til sjávar með sína lærisveina, og margt fólk af Galílea og úr Júdea þá fylgdi honum eftir og þeir sem voru af Jerúsalem og úr Ídúmea og þeir hinu megin Jórdanar og þeir sem byggðu kringum Týro og Sídonem, mikill mannfjöldi sem heyrðu hvað hann gjörði og komu til hans. Hann sagði til sinna lærisveina að þeir skyldu leiga honum skip fyrir fólksins sakir að það þrengdi honum eigi. Því að hann læknaði margan, en þeir tráðu að honum öllum þeim er plagaðir voru að þeir mættu fá að snerta hann.

Og nær eð óhreinir andar sáu hann, féllu þeir niður fyrir honum og kölluðu upp, svo segjandi: Þú ert Guðs sonur. En hann straffaði þá harðlega svo að þeir opinberuðu hann eigi. Hann gekk og upp á fjallið og kallaði til sín þá er hann vildi sjálfur, og þeir komu til hans. En hann hagaði svo til að þeir tólf voru hjá honum, og hann sendi þá út að predika og gaf þeim vald til sóttir að lækna og djöfla út að reka.

Og á Símonem setti hann Péturs nafn og á Jakobum son Sebedei og Jóhannem bróður Jakobs, þeim gaf hann nafnið %Bnehargen, hvað að þýðist reiðarþrumusynir, og Andream, Filippum, Bartólómeum, Matteum og Tómam og Jakobum son Alfei og Taddeum og Símon af Kananea og Júdas Skariot, sá er sveik hann. Og þá er þeir komu til herbergis, kom fólkið enn saman aftur svo að þeir gátu eigi matast fyrir því. Og þá er þeir heyrðu það sem með honum voru, gengu þeir út og vildu hamla honum því að þeir sögðu að hann mundi ganga af vitinu. En hinir skriftlærðir, sem ofan frá Jerúsalem voru farnir, sögðu: Hann hefir Beelsebúb og fyrir djöflahöfðingja þá rekur hann fjandur út.

Og að þeim samankölluðum sagði hann í eftirlíkingum til þeirra: Hverninn fær andskotinn annan andskotann útrekið? Því ef ríkið skiptist í sjálfu sér, þá fær það ríki eigi staðið. Og ef eitt hús tvístrast í sjálfu sér, þá fær það hús eigi staðið. Og ef andskotinn rís upp í móti sjálfum sér, þá er hann tvístraður og fær eigi staðið, heldur hefur hann þá ein endalok. Enginn fær og inngengið í hús hins öfluga og burtgripið hans húsbúnað nema að hann bindi áður hinn öfluga, og megi hann þá svo ræna hans hús.

Sannlega segi eg yður að allar syndir fyrirgefast mannanna sonum og einninn guðlastanir, þar þeir lasta Guð með, en sá er lastar helgan anda, hann hefir eigi fyrirgefning að eilífu, heldur verður hann sekur eilífrar skammar. Því að þeir sögðu: Hann hefur óhreinan anda. Þar komu þá móðir hans og bræður, stóðu þar úti fyrir og sendu til hans, kallandi á hann. En það fólk, sem sat kringum hann, sagði til hans: Sjá, móðir þín og bræður þínir eru þar úti og spyrja að þér. Hann svaraði þeim og sagði: Hver er mín móðir og mínir bræður? Þá leit hann og um sig til lærisveinanna, er sátu í kringum hann, og sagði svo: Sjáið, það er mín móðir og minn bróðir.

Því að hver er gjörir Guðs vilja, sá er minn bróðir, mín systir og móðir.

← Chapter 17Chapter 19 →