The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 171

Revelation · Chapter 13

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 171 of 174 · about 5 min

← Chapter 170Chapter 172 →

[ breyta] Og eg heyrða rödd mikla yfir mustérinu segja til þeirra vii englanna: Farið burt og úthellið þeim skálum Guðs reiði á jörðina. Og hinn fyrsti gekk burt og hellti út sinni skál á jörðina. Og þar urðu ill kaun og skaðsöm á mönnum þeim er auðkenningarmerki dýrsins höfðu og þeir sem þess mynd tilbáðu. Og sá annar hellti út sinni skálu í sjóinn, og það varð blóð líka sem annars deyðingja, og öll lifandi sál deyði í sjónum. Og hinn þriðji engill hellti út sinni skálu í vötnin og í vatsbrunnuna, og það varð blóð. Og eg heyrða þann engil segja: Þú Drottinn, sá sem ert og sá sem vart, þú ert réttlátur og heilagur það þú dæmdir þetta.

Því að þeir úthelltu blóði heilagra og spámannanna, og blóð hefir þú gefið þeim að drekka því þess eru þeir verðugir. Og eg heyrða annan engil af altarinu segja: Já, Drottinn Guð almáttugur, sannir og réttvísir eru þínir dómar. Og hinn fjórði engill hellti út sinni skálu í sólina. Og honum varð gefið af hita að kvelja mennina með eldi. Og mönnunum varð heitt af miklum ofurhita og löstuðu nafn Guðs, sá er makt hefir yfir þessar plágur, og gjörðu öngva yfirbót honum dýrð að gefa. Og hinn fimmti engill hellti út sinni skálu yfir sæti dýrsins.

Og þess ríki varð formyrkvað, og af sorg í sundur bitu þeir sínar tungur og löstuðu Guð á himni af sínum sorgum og af sínum kaunum og gjörðu öngva yfirbót fyrir sín verk. Og hinn sétti engill hellti út sinni skálu í það mikla vatnið Eufrates. Og vatnið þurrkaðist svo að tilreiddur yrði vegur konunganna út af uppgöngu sólarinnar. Og eg sá út af munni drekans og út af munni dýrsins og út af munni þess falska spámanns ganga þrjá óhreina anda líka pöddum, og það eru andar djöfulsins. Þeir gjöra og teikn og ganga út til konunga jarðarinnar og um alla heimskringlu að samansafna þeim til orrustu upp á þann mikla dag Guðs almáttugs. Sjá, eg kem sem þjófur.

Sæll er sá sem vakir og varðveitir sín klæði það hann gangi eigi nakinn svo að eigi sjáist hans ósómi. Og hann samansafnaði þeim í þann stað sem kallast á ebresku Harmagedón. Og sá sjöundi engill hellti út sinni skálu í veðrið, og þar gekk út rödd af himni úr stólnum sem sagði: Það er skeð. Og þar urðu raddir og reiðarþrumur og eldingar, og þar varð mikill jarðskjálfti, hvílíkur að aldri varð upp frá því að menn hafa á jörðu verið þvílíkur jarðskjálfti svo mikill. Og út af þeirri hinni miklu borg urðu þrjár deildir, og borgir heiðinna þjóða hröpuðu. Og hin mikla Babylon varð hugleigð fyrir Guði henni að gefa kalek vínsins sinnar grimmdarreiði. Og allar eyjar flýðu, og engin fjöll urðu fundin.

Og hagl stórt sem pund féll af himni á fólkið. Og mennirnir löstuðu Guð fyrir sakir plágu haglsins því að þess plága varð næsta mikil. Seytjándi kapítuli [ breyta] Þar kom og einn af sjö englunum, sem höfðu sjö skálirnar, talaði við mig og sagði til mín: Kom, eg man sýna þér dóm hinnar miklu hórkonu sem á mörgum vötnum situr, með hverri hóranir drýgt hafa konungar jarðarinnar, og þeir sem á jörðu búa eru drukknir vorðnir af hennar hóranarvíni. Og hann flutti mig í anda á eyðimörk. Og eg sá þá konu sitja á fögurrauðu dýri, fullt af nöfnum háðungarinnar, hafandi vii höfuð og tíu horn.

Og konan var klædd purpura og pelli rauðu og umprýdd gulli og gimsteinum og perlum og hafði í hendinni gullker fullt svívirðinga og óhreininda sinnar hóranar, og í hennar enni nafn skrifað, leyndur dómur: Hin mikla Babylon, móðir frillulifnaðanna og allrar svívirðu á jörðu. Og eg sá þá konu drukkna af blóði heilagra og af blóði píslarvotta Jesú. Og eg undraðist mjög þá eg sá hana. Og engillinn sagði til mín: Hvar fyrir undrast þú? Eg man segja þér leyndan dóm konunnar og dýrsins, þess sem hana ber og hefir vii höfuð og tíu horn. Það dýr sem þú hefir séð, það var og er eigi og mun upp aftur koma af undirdjúpinu og man svo fara í fyrirdæmingina.

Og þeir sem á jörðu búa, hverra nöfn eigi eru skrifuð á lífsbókinni í frá upphafi veraldar, munu undrast nær þeir sjá dýrið, það er var og eigi er, hvert að þó er. Og hér er það hugskot, hvert speki hefir. Þau vii höfuðin eru vii fjöll, á hverjum það konan situr. Og það eru vii konungar. Fimm eru fallnir, og einn er enn, og sá annar er enn eigi kominn, og nær hann kemur, hlýtur hann stuttan tíma að blífa. Og það dýrið sem var og er eigi, það er sá hinn áttandi og er út af þeim vii og fer í fordæmingina. Og þau tíu horn þú hefir séð, það eru tíu konungar, þeir eð ríkið enn eigi meðtóku, en munu um stutta stund líka sem konungar meðtaka makt með dýrinu.

Þessir hafa það eitt ráð að þeir munu gefa sinn kraft og makt dýrinu. Þeir munu og stríða við lambið, og lambið mun þá yfirvinna því að það er Drottinn drottnanna og konungur konunganna og með því þeir sem kallaðir og útvaldir og trúaðir eru. Og hann sagði til mín: Vötnin, þau þú hefir séð, þar eð hórkonan situr á, eru fólk og lýðir og heiðnar þjóðir og tungumál. Og þau tíu hornin sem þú hefir séð á dýrinu, þau munu hata hórkonuna og munu hana sneyða og nökta gjöra og munu hennar hold eta og hana með eldi brenna því að Guð gaf það í þeirra hjörtu að gjöra hvað honum þókknast að þeir gjöri einn vilja svo að þeir gæfi dýrinu sitt ríki þangað til að fullkomnað yrði Guðs orð.

Og konan, sem þú hefir séð, er hin mikla borg, hver sitt ríki hefir út yfir konungum jarðarinnar.

← Chapter 170Chapter 172 →