Revelation · Chapter 14
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 172 of 174 · about 3 min
[ breyta] Og eftir það sá eg annan engil ofan fara af himni, sá hafði mikla makt, og jörðin var upplýst af hans birti, og kallaði af valdi með hárri rödd og sagði: Hún er fallin, hún er fallin, Babylon hin mikla og er djöflanna heimkynni vorðin og hirsla alls óhreins anda og hirsla alls óhreins og óþakknæmilegs fugls. Því að af reiðinnar víni hennar hóranar hafa allar þjóðir drukkið, og konungar jarðarinnar hafa með henni hóranir drýgt, og hennar kaupmenn eru auðigir vorðnir af hennar miklum munaðsemdum. Og eg heyrða aðra rödd af himni segja: Útgangið af henni, mitt fólk, svo að þér verðið eigi hluttakarar hennar synda upp á það þér meðtakið eigi sumt af hennar plágum.
Því að hennar syndir ná allt til himins, og Drottinn hugleiðir hennar ranglæting. Gjaldið henni svo sem hún hefir goldið yður, og tvefaldið henni það tvefalt aftur eftir hennar verkum. Og með hverjum bikar það hún byrlaði yður, byrlið henni þar í tvefalt aftur. Hve mikið sem hún dýrkaði sig og í sínu munaðlífi var, svo mikið innbyrlið henni kvalir og ekka. Því að hún segir í sínu hjarta: Eg sit og em drottning, og eigi man eg ekkja verða, og öngvan trega mun eg líta. Þar fyrir munu hennar plágur á einum degi koma: Dauði, harmur og hungur, og með eldi mun hún brennd verða því að öflugur er Drottinn Guð, sá er hana mun dæma.
Og konungar jarðarinnar, þeir sem meður henni hafa hóranir drýgt og í munaðsemd lifað, munu gráta hana og kveina sér yfir henni nær þeir sjá reyk af hennar bruna, þeir í fjarlægð standa fyrir hræðslu sakir hennar kvala og segja: Vei, vei, Babylon, hin mikla borg, sú hin sterka borg, það á einni stundu er kominn hennar dómur.
Og kaupmenn jarðar munu gráta og harma yfir henni því að þeirra kaupeyri man enginn kaupa meir, kaupeyri gulls og silfurs og gimsteina og perlur og silki og purpura og skarlat og allsháttaðan dýrindis við og allsháttuð ker af fílabeinum og allra handa ker af dýrmætum viði og af eiri og af járni og marmara og jurtir og smyrsl og vín og viðsmjör, rúg og hveiti, kvikfé og sauði, hesta og vagna og líkami og sálir mannanna. Og það aldini, þar þín sála hafði girnd á, er frá þér vikið, og allt hvað feitt og frjálslegt var, það er frá þér vikið, og þú munt það eigi lengur finna.
Kaupmenn þessarar vöru, hverjir af henni auðigir vorðnir eru, munu fjarlægt standa af hræðslu hennar kvala, grátandi og harmandi og segja: Vei, vei, hin mikla borg sem með silfri, purpura og skarlati var klædd og með gulli var fáguð og gimsteinum og perlum. Því að á einni stundu er slíkur ríkidómur að öngu vorðinn. Og allir skipstjórnarmenn og allur sá skari, sem á skipum hantérar, og skipverjar, þeir á sjónum hantéra, stóðu í fjarska og kölluðu þá þeir sáu reykinn af hennar bruna og sögðu: Hver er lík þessari hinni miklu borg?
Og þeir jusu moldu yfir höfuð sér og kölluðu grátandi og harmandi og sögðu: Vei, vei, sú hin mikla borg, í hverri auðigir eru vorðnir allir þeir sem skipin höfðu á sjónum með hennar vöru. Því að á einni stundu er hún í eyði lögð. Gleð þig yfir henni, himinn og þér heilagir postular og spámenn, því að Guð hefir yðvarn dóm á henni dæmt. Og einn öflugur engill tók upp stein stóran sem kvarnarstein og kastaði honum í sjóinn og sagði: Svo man með einum byl útkastast hin mikla Babylon og eigi meir fundin verða.
Og söngmanna rödd og hörpusláttara og þeirra í pípur blása og í lúðra þeyta skal eigi meir heyrast í þér, og enginn embættismaður, hvers sem helst embættis hann er, skal meir í þér fundinn verða. Kvernarhljóð skal eigi meir í þér heyrt verða, og rödd brúðgumans og brúður skal eigi meir í þér heyrð verða. Því að þínir kaupmenn voru höfðingjar á jörðu því að fyrir þína fjölkynngi fóru villar allar þjóðir. Og blóðið spámannanna og heilagra er í henni fundið og allra þeirra sem á jörðu eru í hel slegnir.