Mark · Chapter 4
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 19 of 174 · about 4 min
[ breyta] Hann tók enn aftur til að kenna þeim við sjóinn. Þar safnaðist saman og margt fólk til hans svo að hann varð að stíga á skip og sat svo á sjánum. Og allt það fólk stóð þar á landi við sjóinn, og hann kenndi því margt í eftirlíkingum og í sinni predikan. Þá sagði hann til þeirra: Heyri þér, sjáið, einn sáðsæðari gekk út að sá. Það varð þá hann sáði að sumt féll utan hjá veginum, og þar komu fuglar loftsins og átu það upp. En sumt féll í grýtt akurlendi þar það hafði eigi mikla jörð og rann fljótlega upp því að það hafði öngva jarðardýpt. Og þá er sólin gekk upp, skrældist það, og af því að það hafði öngva rót, þá visnaði það.
Og sumt féll í bland þyrna, en þyrnarnir vóxu upp yfir og kæfðu það svo það færði öngvan ávöxt. Og sumt féll í góða jörð og færði ávöxt, hver eð upp vóx og frjóvgaðist, og sumt færði þrítugfaldan og annað sextugfaldan og sumt hundraðfaldan ávöxt. Og hann sagði til þeirra: Hver hann hefir eyru til að heyra, sá heyri. Og þá hann var einn saman, spurðu þeir, sem hjá honum voru (meður þeim tólf), hann að þessari eftirlíkingu.
Og hann sagði til þeirra: Yður er það gefið að vita leynda dóma Guðs ríkis, en til þeirra, sem þar eru fyrir utan, þá sker það allt í eftirlíkingum að þeir með sjáandi augum sjái, en skynji þó eigi og meður heyrandi eyrum heyri og undirstandi þó eigi svo þeir snúist ekki það þeirra syndir mættu fyrirgefast. Og hann sagði til þeirra: Kunni þér ekki að skilja þessa eftirlíking, hverninn munu þér þá kunna að skilja allar hinar? Sáðsæðarinn sáir orðinu. En þeir eru það sem utan hjá veginum er, hvar orðið verður sáð. Og þá þeir hafa heyrt það, kemur andskotinn skjótt og nemur burt orðið, það sáð var í þeirra hjörtu. Líka svo eru þeir einninn sem sáðust í grýtta jörð.
Því nær þeir hafa heyrt orðið, þá meðtaka þeir það strax með fagnaði og hafa þó öngva rót í sér, heldur eru þeir fráhverfir, nær sér hreyfir mótgangur og ofsókn fyrir orðsins sakir, þá blygðast þeir strax. Og hinir, er í bland þyrnanna sá undirhyggja flás fédráttar og aðrar fleiri girndir ganga inn og kefja orðið svo það blífur án ávaxtar. Og þeir eru það, sem í góða jörð eru sáðir, er heyra orðið, meðtaka það og færa ávöxt, einn þrítugfaldan, annar sextugfaldan, og sumir hundraðfaldan. Og hann sagði til þeirra: Kveikist og ljósið til þess að það setjist undir borð eður sængastaði, heldur að það setjist upp á einn kertahald?
Því að þar er ekkert svo hulið að það opinberist eigi, og þar er ekkert svo leynt að það kunngjörist eigi. Hver hann hefir eyru að heyra, sá heyri. Og hann sagði til þeirra: Gætið að hvað þér heyrið. Með þeim mæli, er þér mælið út, þá mælist yður inn, og yður, sem á heyrið, skal við aukast. Því að hver hann hefur, þeim skal gefast, og hver hann hefir eigi, frá honum mun takast og einninn það hann hefur. Og hann sagði: Guðs ríki er líka svo sem nær eð maðurinn kastar fræi í jörðina og sofnar síðan. Og hann stendur upp nótt og dag, en fræið grær og vex upp svo að hann veit eigi. Því að jörðin færir ávöxt af sér sjálfri, í fyrstu grasið, þar næst axið og svo þar næst fullt hveiti í axin.
Og er það hefir framleitt ávöxtinn, þá sendir hann strax kornsigðinn því að kornskurðartími er kominn. Og hann sagði: Að hverju skulu vér jafna Guðs ríki eða við hverjar eftirlíkingar skulu vér það samlíkja? Svo sem að eitt mustarðskorn, þá því verður í jörð sáð, er það öllu sæði minna sem eru hér á jörðu. Og þá því er sáð, vex það upp og verður öllum grasjurtum meira og fær mikla kvistu svo að fuglar himins mega hreiður byggja undir þess skugga. Og í slíkum mörgum eftirlíkingum þá talaði hann fyrir þeim orðið, eftir því sem þeir það heyrt gátu, og án eftirlíkinga þá talaði hann ekki til þeirra, en sérdeilis þá lagði hann það allt út fyrir sínum lærisveinum.
Og sama dags að kveldi þá sagði hann til þeirra: Föru vær hér yfir um. Og þeir forlétu fólkið, en tóku hann til sín sem hann var á skip kominn. Voru þar og önnur skip hjá honum. Og þar gjörðist mikill stormvindur svo bylgjurnar féllu yfir skipið og það fylltist upp. En hann sjálfur var í skutnum og svaf á einum kodda. Þeir vöktu hann þá upp og sögðu til hans: Meistari, hirðir þú ekki um það þó vér tortýnust hér? Hann reis upp við og hastaði á vindinn og sagði til sjóvarins: Þagna þú og vert hljóður. Vindinn kyrrði, og þar varð logn mikið. Hann sagði þá til þeirra: Því eru þér svo hræddir? Eða hverju gegnir það þér hafið öngva trú?
Þeir skelfdust og af ótta miklum og sögðu sín í millum: Hvern meini þér þennan? Því að vindur og sjór hlýðir honum.