The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 20

Mark · Chapter 5

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 20 of 174 · about 10 min

← Chapter 19Chapter 21 →

[ breyta] Og þeir komu yfir um þann sjó í byggðir Gadarenorum. Og er hann sté af skipinu, þá hljóp strax í móti honum úr leiðum framliðinna einn djöfulóður maður, sá er hafði sitt híbýli í gröfum dauðra manna því enginn fékk hann bundið og eigi með járnviðjum. Því að hann hafði oft bundinn verið með fjötrum og járnviðjum, og hann hafði viðjurnar af sér slitið og fjöturinn í sundur núið, og enginn fékk hann tamið. Og allt jafnt nætur og daga þá var hann á fjöllum eða í dauðra manna gröfum, kallandi og lemjandi sig með grjóti. En þá er hann sá langt til Jesú, hljóp hann og féll fram fyrir honum, kallaði hárri röddu og sagði. Hvað hefi eg með þig að gjöra, Jesús, sonur Guðs hins hæsta?

Eg særi þig fyrir Guð að þú kveljir mig eigi. En Jesús sagði til hans: Far út, þú óhreini andi, af þessum manni. Og hann spurði hann að: Hvert er þitt heiti? Hann svaraði og sagði: Legio er mitt heiti því að vær erum margir. Og sá bað hann mikillega að hann ræki þá eigi burt úr þeirri byggð. En þar var í þeim stað við fjallið mikil svínahjörð á biti um ekrurnar. Og andarnir báðu hann, segjandi: Lofa oss það að vær förum í svínin. Og Jesús leyfði þeim það strax. Þá fóru enir óhreinu andar út og hlupu í svínin, og svínahjörðin fleygði sér með miklum þys í sjóinn, nær tveim þúsundum, og drukknuðu þar í sjónum. En þeir, sem þeirra gættu, flýðu og kunngjörðu um staðinn og um allar grundir.

Þeir gengu þá út að sjá hvað þar hafði gjörst og komu til Jesú og sáu þann sem af djöflunum hafði kvalist sitjanda, klæddan og heilvita, og þeir hræddust það. En þeir, sem það höfðu séð, sögðu þeim hverninn gjört hafði verið við hann sem djöflana hafði haft og svo frá svínunum. Þeir hófu upp og báðu hann að hann færi burt úr þeirra landsálfum. Og er hann sté á skip, tók sá til að biðja hann sem af djöflunum hafði kvalist að hann mætti vera hjá honum. En Jesús lofaði honum það eigi, heldur sagði hann til hans: Far þú í þitt hús til þinna og kunngjör þeim hvað mikið er Drottinn gjörði þér og hversu líknsamur eð hann var þér.

Hann fór þaðan og tók til út að hrópa um þær tíu borgir hvað mikið er Jesús hafði hann gjört, og allir undruðust það. Og þá er Jesús fór yfir um sjóinn aftur á skipi, kom saman margt fólk til hans og var við sjóinn. Þar kom og einn af foringjum samkunduhússins, Jaírus að nafni, og þá er hann sá Jesúm, féll hann að fótum hans og bað hann mikillega og sagði: Mín dóttir er komin að lokum. Kom og legg þína hönd yfir hana svo hún verði heil og lifi. Og hann fór með honum. Margt fólk fylgdi honum og eftir, og það þrengdi honum. Og sú kona var þar er haft hafði blóðlát í tólf ár. Hún hafði og mikið þolað af mörgum lækni, hafði og kostað þar til öllu sínu.

Það stoðaði henni þó ekkert, heldur hafði hún þess meiri kvöl. Þá hún heyrði nú af Jesú, kom hún með fólkinu á bak til og snart hans klæði því að hún sagði: Ef eg fæ að snerta hans klæði, þá mun eg heil verða. Og jafnsnart þá uppþurrkaðist hennar blóðfallsbrunnur, og hún fann það á sínum líkama að hún var heil orðin af þeirri plágu. Og Jesús fann strax með sjálfum sér þann kraft, er út frá honum gekk, og sneri sér við til fólksins og sagði. Hver snart mín klæði? Hans lærisveinar sögðu til hans: Þú sér að fólkið þrengist að þér, þó segir þú: Hver snart mig? Og hann skyggndist í kring um sig að sjá þann er það hafði gjört.

En konan var hrædd og óttaslegin því að hún vissi hvað hana hafði skeð og kom, féll fyrir honum niður og sagði honum allan sannleik. En hann sagði til hennar: Dóttir, þín trúa gjörði þig heila. Far í friði og vert heil af þinni plágu. Þá hann talaði þetta, komu sendiboðar til samkunduforingjans og sögðu: Þín dóttir er önduð, hví ómakar þú meistarann lengra? En er Jesús heyrði hvað þar sagðist, sagði hann til samkunduforingjans: Óttast ei, trú þú heldur. Og hann lofaði öngum að fylgja sér nema Pétri og Jakobi og Jóni bróður Jakobs. Og hann kom í samkunduhöfðingjans hús og leit það buldur og þá er þar grétu mjög og æptu. Og hann gekk þangað innar og sagði til þeirra: Hvað buldri þér og sýtið?

Stúlkan er eigi látin, heldur sefur hún. Og þeir dáruðu hann. En hann rak þá alla út og tók með sér föður og móður stúlkunnar og þá er með honum voru og gekk þangað inn er stúlkan lá. Og hann hélt um hönd stúlkunnar og sagði til hennar: Talíta kúmí. Það útleggst: Stúlka, eg segi þér, rís upp. Og þá strax reis stúlkan upp og gekk, en hún var tólf ára gömul. Og þeir urðu af miklum ótta felmsfullir. Hann fyrirbauð þeim stórlega að það skyldi enginn vita og bauð að gefa henni að eta. Sétti kapítuli [ breyta] Hann gekk út þaðan aftur og fór til sinnar fósturjarðar. Hans lærisveinar fylgdu honum og eftir. Og er þvottdagur kom, þá tók hann til að kenna í þeirra samkunduhúsi.

Og margir af þeim, er það heyrðu, undruðust hans kenning og sögðu: Hvaðan kemur þessum allt þetta? Eða hver er sú speki sem honum er gefin og slík kraftaverk er gjörast fyrir hans hendur? Er hann eigi sá trésmiður sem er sonur Maríu, bróðir Jakobs, Jósefs, Júde og Símonar? Eru hans systur eigi hér með oss? Og þeir skammfylltust við hann. En Jesús sagði til þeirra að spámaðurinn væri eigi án vegsemdar nema á sinni ættleifð og hjá sínu hyski og kynslóð. Hann fékk þar og ekkert kraftaverk gjört, nema yfir fáeina sjúka, þá lagði hann hendur og læknaði þá. Og hann undraðist þeirra vantrú. Hann gekk og kringum þau kauptún er þar stóðu í þyrping.

Hann kallaði og saman þá tólf og tók að senda þá tvo og tvo til saman, gaf þeim og vald yfir óhreinum öndum og bauð þeim að bera ekkert með sér á veg nema einn staf, eigi pung, eigi brauð, eigi pening á linda, eigi heldur klæddir skófötum og það þeir klæddust eigi tveimur kyrtlum. Hann sagði og til þeirra: Í hvert það hús þér gangið inn, þá blífið þar til þess að þér farið þaðan. Og hverjir er eigi meðtaka yður eða heyra yður eigi, þá gangið út þaðan og hristið duft af fötum yðar til vitnisburðar yfir þá. Eg segi yður og fyrir sann að skár mun veita á dómadegi Sódóma og Gómorre en þeim stað.

Þeir gengu út og predikuðu það menn gjörðu iðran og ráku út marga djöfla, smurðu og marga sjúka með viðsmjöri og læknuðu þá svo. Heródes konungur fékk og að heyra það því að hans nafn gjörðist víðfrægt. Hann sagði að Jón baptista væri upp aftur risinn af dauða og því gjörast slík kraftaverk af honum. En aðrir sögðu það hann væri Elías, en sumir sögðu að hann væri spámaður elligar einn af þeim spámönnum. Og er Heródes heyrði þetta, sagði hann: Sá Jóhannes sem eg lét afhöfða, hann er nú upprisinn af dauða. Því að Heródes hafði sent út að grípa Jóhannem og lukt hann í myrkvastofu fyrir sakir Heródíadis bróðurkonu sinnar því að hann hafði gifst henni.

En Jóhannes sagði til Heródis: Eigi leyfist þér að hafa bróðurkonu þína. Því veitti Heródíadis honum umsát og vildi láta aflífa hann, en gat þó eigi. Heródes óttaðist og Jóhannem því hann vissi hann vera helgan mann og réttlátan, varðveitti hann og hlýddi honum í mörgum greinum og heyrði honum gjarnan. Þar hlotnaðist og svo tiltækilegur dagur að Heródes gjörði á sinni ártíð eina kveldmáltíð höfðingjum og höfuðsmönnum og hinum fremstu mönnum úr Galílea. Þá gekk dóttir hennar Heródíadis þar inn og dansaði, og það þóknaðist Herodi og þeim er með honum sátu til borðs. Þá sagði konungurinn til stúlkunnar: Bið af mér hvers þú vilt, og eg skal veita þér.

Hann svór henni og einn eið, að hvers þú beiðist af mér, þá skal eg gefa þér þótt það sé helftina af mínu ríki. Hún gekk út og sagði til móður sinnar: Hvers skal eg biðja? En hún sagði: Höfuð Jóns baptista. Hún gekk þá og strax inn með skunda til konungsins, bað hann og sagði: Eg vil að þú gefir mér nú strax höfuð Jóns baptista á diski. Konungurinn hryggðist þá við, þó fyrir eiðsins sakir og þeirra sem til borðsins sátu með honum, þá vildi hann ekki hrella hana, heldur sendi hann böðulinn út og bauð að hann færði hans höfuð á diski. Og hann afhöfðaði hann í myrkvastofunni og bar hans höfuð á diski og fékk það stúlkunni, en stúlkan fékk það móður sinni.

Og er það heyrðu hans lærisveinar, komu þeir og tóku hans líkama og lögðu hann í jörð. Og er postularnir komu saman aftur til Jesú og kunngjörðu honum allt hvað þeir höfðu gjört og kennt og hann sagði til þeirra: Komið yður í einn hvern afvikinn stað í eyðimörku og hvílist þar litla stund. Því að margir voru þeir sem gengu frá og til svo þeir höfðu ekki rúm til að eta. Hann sté því á skip og fór afsíða í eyðimörku. Og er fólkið sá þá í burt fara, þekktu hann margir og hlupu þangað á fæti úr öllum stöðum og komu fyrr en þeir og fóru til hans.

En er Jesús gekk fram og sá þar margt fólk, þá vorkynnti hann því því að þeir voru sem aðrir sauðir er öngvan hafa hirðir, og tók þá til að kenna þeim margt. Og þá er áliðið gjörðist, gengu lærisveinarnir til hans og sögðu: Þessi staður er í eyði og framorðið er. Því lát þá ganga burt í hin næstu þorp og kauptún að þeir kaupi sér þar brauð því þeir hafa ekkert að eta. En Jesús svaraði og sagði til þeirra: Gefi þér þeim að eta. Og þeir sögðu til hans: Skulu vær þá fara út að kaupa fyrir tvö hundruð peninga brauð og gefa þeim að eta? En hann sagði þá til þeirra: Hversu mörg brauð þá hafi þér? Gangið til og skoðið. Og þá er þeir höfðu það skoðað, sögðu þeir: Fimm og tvo fiska.

Og hann bauð þeim að þeir lægðu sig allir niður eftir borðsiðum á grænt gras. Og þeir settu sig þá niður í riðlum hundrað eða fimmtigi saman. Og hann tók fimm brauð og tvo fiska, leit upp til himins, blessaði og braut brauðin, fékk sínum lærisveinum að þeir legðu fyrir þá. Og þeim tveimur fiskum skipti hann og meður þeim öllum. Og allir þeir átu og urðu saddir. Þeir tóku þá upp leifarnar, tólf karfir fullar og líka af fiskunum. En þeir voru sem etið höfðu fimm þúsundir manna. Og jafnsnart þá dreif hann sína lærisveina til það þeir færi á skip og færu fyrir honum yfir um sjóinn til Betsaida á meðan hann skildi fólkið við sig.

Og þá er hann hafði það frá sér látið, fór hann upp á fjallið að biðjast fyrir. Og þá er kvelda tók, var skipið mitt á sjánum, en hann var einn á landi. Og hann sá þá erfiðandi í róðri því að vindurinn var í móti þeim, og nær um fjórðu eykt nætur þá kom hann til þeirra gangandi á sjánum, og hann lést vilja ganga fram hjá þeim. Og er þeir sáu hann gangandi á sjónum, ætluðu þeir skrímsl vera mundu og kölluðu upp. Því að þeir sáu hann allir og urðu óttaslegnir. En strax þá talaði hann við þá og sagði til þeirra: Verið öruggir, eg em hann, óttist eigi. Hann sté þá á skipið til þeirra og vindinn lygndi.

Og þeir óttuðust þá enn meir með sjálfum sér og undruðust því að þeim skildist enn eigi af brauðunum því þeirra hjörtu voru forblinduð. Og er þeir voru yfir um farnir, komu þeir í landið Genesaret og lentu þar. En er þeir stigu af skipinu, þá þekktu þeir hann strax, hlupu og út í öll umliggjandi héruð, tóku til og fluttu saman þar um kring sjúka menn á sængum. Hvar helst þeir heyrðu hann vera og hvar er hann gekk inn í kauptún, þorp eður staði, þá lögðu þeir sjúka menn á strætin og báðu hann að þeir mættu snerta fald hans fata. Og allir þeir, er hann snertu þá, urðu heilbrigðir.

← Chapter 19Chapter 21 →