Matthew · Chapter 3
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 3 of 174 · about 2 min
[ breyta] En á þeim dögum kom Jón baptista og predikaði í eyðimörk Júdealands og sagði: Gjörið iðran því að Guðs ríki tekur að nálgast. Hann er og einninn sá af þeim að sagt er fyrir Esaiam spámann sem segir: Hrópandi rödd í eyðimörku: Reiðið til götu Drottins og gjörið hans stigu rétta. En Jóhannes hafði klæðnað af úlfbaldshárum og ólarbelti um sínar lendar, hans matur voru engisprettur og skógarhunang.
Þá gekk og út til hans lýður Jerúsalemborgar og allt Júdealand og öll umliggjandi héruð Jórdanar og skírðust af honum í Jórdan, játandi sínar syndir.* En þá hann sá marga faríseis og saddúkeos koma til sinnar skírnar, sagði hann til þeirra: Þér nöðru kyn, hver kenndi yður að flýja fyrir tilkomandi reiði? Af því gjörið verðugan ávöxt iðranarinnar og verið ei þess hugar, það þér segið með sjálfum yður að Abraham höfu vær fyrir föður. Því að eg segi yður að máttugur er Guð upp að vekja Abrahams sonu af steinum þessum. Af því að nú er öxin sett til rótar viðanna, því mun hvert það tré, sem eigi gjörir góðan ávöxt, af sníðast og í eld kastast.
Eg skíri yður í vatni til iðranar, en sá eftir mig kemur, er mér sterkari, hvers skóklæði að eg er eigi verðugur að bera. Hann mun skíra yður með heilögum anda og eldi, hvers vindskupla er í hans hendi, og hann mun hreinsa sinn láfa og hveitinu safna í sína kornhlöðu, en agninnar brenna í eldi óslökkvanlegum. Í þann tíma kom Jesús af Galílea að Jórdan til Jóhannis, að hann skírðist af honum. En Jóhannes varnaði honum þess og sagði: Mér er þörf að eg skírist af þér, og þú kemur til mín. En Jesús svaraði og sagði: Lát nú svo vera því að svo hæfir oss allt réttlæti upp að fylla. Og þá lét hann það eftir honum. En er Jesús var skírður, sté hann jafnskjótt upp úr vatninu.
Og sjá, að himnarnir lukust upp yfir honum, og Jóhannes sá Guðs anda ofan stíga sem dúfu og yfir hann koma, og sjá, að röddin af himni sagði: Þessi er sonur minn elskulegur, að hverjum mér vel þókknast.*