The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 21

Mark · Chapter 6

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 21 of 174 · about 8 min

← Chapter 20Chapter 22 →

[ breyta] Þar komu og til hans farísei og nokkrir af hinum skriftlærðu sem komnir voru af Jerúsalem. Og þá þeir sáu nokkra af hans lærisveinum meður %almenningshöndum, það er meður óþvegnum, eta brauðin, ávítuðu þeir þá. Því að farísei og allir Gyðingar átu eigi nema að þeir þvægi oftsinnis sínar hendur, haldandi svo öldunganna setninga. Og þá þeir komu af torgum, þá neyttu þeir eigi nema þeir skíruðu sig áður. Og margir aðrir hlutir eru þeir, hverjir þeim voru settir að varðveita, sem var hreinsun drykkjarkera, bikara, búgagns og borða. Þá spurðu farísei og hinir skriftlærðu hann að: Því ganga þínir lærisveinar eigi eftir setningum öldunganna, heldur eta þeir brauðið meður óþvegnum höndum?

En hann svaraði og sagði til þeirra: Næsta vel þá spáði Esaias af yður hræsnurum sem skrifað er: Fólk þetta heiðrar mig með vörunum, en þeirra hjarta er langt frá mér. Og til ónýts þá dýrka þeir mig, kennandi kenningar og boðorð manna, en yfirgefa svo Guðs boðorð og halda mannanna uppsetninga sem er um fægingar krúsa og drykkjarkera og margt annað þessu líkt þá gjöri þér. Hann sagði til þeirra: Fínlega þá hafi þér Guðs boðorð gjört ónýt að þér mættuð geyma svo yðvarn uppsetning. Því að Móses sagði: Heiðra þú föður þinn og móður, en hver hann bölvar föður eða móður, sá skal dauða deyja.

En þér segið það maðurinn skuli segja til föður og móður: Korban, það er hver sú gjöf er guðs stök sem þér (frá mér) til gagns kemur. Og eigi þá leyfi þér honum framar nokkuð að gjöra föður sínum né móður sinni, afsníðandi svo Guðs orð fyrir yðar setninga, þá þér hafið sjálfir uppsett. Og margt annað þvílíkt þá gjöri þér. Hann kallaði þá fólkið aftur til sín og sagði til þeirra: Heyrið mér og undirstandið mig. Þar er ekkert fyrir utan í manninn innfarandi, það hann fái saurgað, heldur það sem út af manninum gengur, það er það sem manninn saurgar. Hver hann hefir eyru að heyra, sá heyri. Og er hann gekk inn í húsið burt frá fólkinu, spurðu hans lærisveinar hann að þessari eftirlíking.

En hann sagði til þeirra: Eru þér og svo skilningslausir? Og skilji þér eigi að allt það sem fyrir utan er og inn fer í manninn, það fær eigi saurgað hann. Því að það fer eigi inn í hans hjarta, heldur fer það í magann og gengur svo út eftir eðlilegri rás, hver eð úthreinsar allan mat. Og hann sagði: Hvað er út fer af manninum, það saurgar manninn. Því að af innan úr hjartanu mannsins þá framganga vondar hugrenningar, hórdómar, frillulífi, manndráp, þjófnaður, ágirni, illvilji, undirhyggja, gjálífi, ill tillit, guðlastanir, drambsemi, vanvirðing. Allt þetta vont þá gengur út að innan og saurgar manninn.

Hann stóð upp og fór þaðan í byggðarlög Týri og Sídons og gekk þar inn í eitt hús og vildi það öngvan vita láta, en fékk þó eigi dulið sig. Því að ein kona strax er hún heyrði af honum, hverrar dóttir er hafði óhreinan anda, gekk inn og féll til fóta hans. En það var ein heiðin kona Syropheniceættar, og hún bað hann að reka út djöfulinn frá dóttur sinni. En Jesús sagði til hennar: Leyf þú að börnin mettist áður, því að það er eigi tilheyrilegt að taka brauðið barnanna og kasta fyrir hundana. En hún svaraði og sagði til hans: Svo er það herra, en þó eta hundar, sem eru undir borðinu, af molum barnanna.

Hann sagði þá til hennar: Fyrir sakir þessa orðs þá far héðan því djöfullinn er út farinn frá þinni dóttur. Hún gekk og þaðan í sitt hús og fann stúlkuna í sæng liggjandi og djöfulinn út farinn. Og þá hann gekk burt aftur úr byggðarlagi Týri og Sídons, kom hann til sjávar í Galílea í miðjar byggðir þeirra (tíu) staðanna. Og þeir leiddu til hans daufan mann, þann er og var einn dumbi, báðu hann og að hann legði hönd yfir hann. En hann veik honum afsíða frá fólkinu og stakk sínum fingrum í hans eyru, snart og hans tungu, leit upp til himins, andvarpaði og sagði til hans: Efaþa, það er: Opna þig. Og strax þá opnuðust hans eyru, þá uppleystist og einninn hans tunguhaft svo hann talaði rétt.

Og hann fyrirbauð þeim að segja það neinum. En því meir er hann fyrirbauð þeim það, þess meir þá víðfrægðu þeir það. Þeir undruðust það og næsta mjög og sögðu: Allt þá hefir hann vel gjört því daufa lætur hann heyra og mállausa mæla.* Áttandi kapítuli [ breyta] Á þeim tímum þá þar var enn margt fólk saman og hafði ekki til matar, kallaði Jesús sína lærisveina til sín og sagði til þeirra: Eg kenni aumur á fólkinu því að þeir hafa nú þrjá daga hjá mér verið og hafa ekki til matar haft. Og ef eg læt þá svanga frá mér heim fara, verða þeir hungurmorða á leiðinni því að sumir voru langt að komnir. Hans lærisveinar svöruðu honum: Hvaðan töku vér brauð hér á öræfum svo vér getum þá mettað?

Og hann spurði þá að: Hversu mörg brauð þá hafi þér. Þeir sögðu: (vii). Og þá bauð hann fólkinu að skipa sér niður á foldina og tók þá brauðin, þakkaði og braut þau og gaf sínum lærisveinum að þeir legðu þau fram. Og þeir lögðu þau fram fyrir fólkið. Þeir höfðu og fáeina fiska. Hann blessaði þá og bauð þá fram að leggja. En þeir neyttu og voru mettir. Þeir tóku og upp það yfir var, (vii) karfir meður afgangs leifar. Og þeir voru sem etið höfðu nær fjórum þúsundum og hann lét þá í burt fara frá sér.* Og strax þá sté hann á skip meður sína lærisveina og kom í þær landsálfur er heita Dalmanúta.

Farísei gengu út og tóku að hafa spurningar við hann, freistuðu hans og eftirleituðu af honum eins teikns af himni. En hann varð þrunginn við í sínum anda og sagði: Til hvers þá sækir þessi kynslóð eftir teikni? Sannlega þá segi eg yður að þessari kynslóð gefst ekkert teikn. Hann forlét þá og sté á skip og fór yfir um aftur. Þeir höfðu og gleymt að taka brauð meður sér og höfðu ekki nema eitt brauð meður sér í skipinu. En hann bauð þeim og sagði: Sjáið til og varið yður við súrdeigi þeirra faríseis og svo við súrdeigi Heródis. En þeir hugsuðu allt annað og sögðu hver við annan: Það er af því að vér höfum engin brauð.

Og er Jesús fornam það, sagði hann til þeirra: Hvað hugsi þér um það þó þér hafið ekki brauðin? Skynji þér ekkert né undirstandið? Hafi þér enn forblindað yðvart hjarta? Hafið þó augu, en sjáið eigi, og eyru, en heyrið eigi. Þér hugsið og eigi þar eftir að eg braut fimm brauð í millum fimm þúsunda. Hversu margar karfir fullar með afgangsleifar tóku þér þá upp? Þeir sögðu: Tólf. En þá eg braut þau (vii) á millum fjögra þúsunda, hversu margar karfir fullar með leifar tóku þér þá upp? Þeir sögðu: (vii). Hverninn eru þér þó skynsemdarlausir? Hann kom og til Betsaida. Og þeir leiddu þá einn blindan mann til hans og báðu hann um að hann tæki á honum.

En hann tók í hönd hins blinda og leiddi hann út af fyrir utan kauptúnið, spýtti í hans augu og lagði sínar hendur yfir hann og spurði hann að hvort hann sæi nokkuð. En hann leit um sig og sagði: Eg sé mennina sem skógartré væri er þar ganga. Þá lagði hann enn aftur sínar hendur yfir hans augu, gjörði og að svo hann fékk sýnina, og hann var svo lagfærður að hann sá allt klárlega. Og hann sendi hann svo til síns heimilis og sagði: Gakk eigi inn aftur í kauptúnið, seg það og ei neinum þar inni. Jesús gekk og hans lærisveinar inn í eitt kauptún staðarins Sesare Filippí. Og á leiðinni þá spurði hann sína lærisveina að: Hvern segja menn mig vera?

Þeir önsuðu: Þeir segja þú sért Jón baptista, en aðrir segja þú sért Elías, en sumir að þú sért einn af spámönnum. Þá sagði hann til þeirra: En þér, eða hvern segi þér mig þá vera? Þá svaraði Pétur og sagði til hans: Þú ert Kristur. Og hann þaggaði þá að þeir segði það ei neinum út af honum. Hann tók þá og til að kenna þeim það mannsins sonur skyldi margt þola og hrakinn vera af öldungum, höfuðprestum og skriftlærðum og líflátinn vera og á hinum þriðja degi upp að rísa. Hann talaði og þessi orð berlega út. Pétur tók hann þá höndum og átaldi hann.

En hann sneri sér við og leit til sinna lærisveina, hastaði á Petrum og sagði: Far á bak mér aftur, þú andskoti, því að þú skynjar eigi það guðlegt er, heldur það sem líkamlegt er. Og að saman kölluðu fólkinu samt með hans lærisveinum, sagði hann til þeirra: Hver hann vill mér eftirfylgja, afneiti sá sjálfum sér og taki sinn kross á sig og fylgi mér svo eftir. Því hver hann stundar á að forvara sitt líf, sá mun því tortýna, og hver hann lætur sitt líf fyrir mínar sakir og guðsspjallanna, sá hefir varðveitt það. Því að hvað stoðaði það manninum þótt hann eignaðist allan heim og gjörði svo þar með glatan sinnar sálu? Eður hvað má maðurinn það gefa að hann frelsi sína önd með?

Því að hver hann skammast mín eður minna orða hjá þessari hórdómsins og syndugri kynslóð, þann mun mannsins sonur og forsmá þá hann kemur meður sínum englum í dýrð síns föðurs. Hann sagði og þá til þeirra: Sannlega segi eg yður að hér standa nokkrir af þeim, hverjir eigi smakka dauðann þar til þeir sjá Guðs ríki með krafti komanda.

← Chapter 20Chapter 22 →