The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 22

Mark · Chapter 7

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 22 of 174 · about 6 min

← Chapter 21Chapter 23 →

[ breyta] Og eftir sex daga tók Jesús til sín Petrum, Jakob og Jóhannes og veik þeim einum sömum afsíðis upp á hátt fjall og auðbirti sig fyrir þeim. Hans klæði urðu skínandi og næsta hvít sem snjár svo að enginn litunarmaður á jörðu kann svo hvítt að gjöra. Þeim birtist og Elías með Móse og voru þar talandi við Jesúm. Pétur svaraði og sagði til Jesú: Rabbí, gott er oss hér að vera, og gjörum hér þrjár tjaldbúðir, þér eina og Móse eina og Elíe eina. Því að hann vissi eigi sjálfur hvað hann sagði af því þeir voru óttaslegnir. Þar varð og eitt ský sem þá yfirskyggði, og rödd kom úr skýinu, segjandi: Þessi er minn elskulegur sonur, heyri þér honum.

Og strax þar eftir er þeir litu um sig, sáu þeir öngvan meir nema Jesúm einn hjá sér. Og er þeir gengu ofan af fjallinu, bauð hann þeim að þeir segði það öngum hvað þeir höfðu séð nema þá er mannsins sonur væri upprisinn af dauða. Þeir héldu og því orði hjá sér, spyrjandi eftir sín á milli hvað það væri er hann sagði upprisinn af dauða. Og þeir spurðu hann að og sögðu: Hvað er það þá sem hinir skriftlærðu segja að Elías byrjar fyrri að koma. En hann svaraði og sagði til þeirra: Elías skal að vísu fyrri koma og allt til lags færa. Og svo sem skrifað er að mannsins sonur skuli margt líða og forsmáður verða.

En eg segi yður það Elías er kominn og þeir hafa gjört honum hvað helst þeir vildu svo sem skrifað er af honum. Hann kom til sinna lærisveina og sá þar margt fólk kringum þá og hina skriftlærðu er spurðust á við þá. Og strax er allt fólkið leit Jesúm, felmtraði því og hræddust, hlupu og heilsuðu honum. Og hann spurði þá hina skriftlærðu: Að hverju spyrjist þér um við þá? En einn af fólkinu svaraði og sagði: Meistari, eg flutti son minn hingað til þín. Hann hefir mállausan anda, og nær helst er hann höndlast af honum, þá slítur hann hann og hann froðufellir og nístrar tönnum og þornar upp. Og eg talaði til þinna lærisveina að þeir ræki hann út, og þeir gátu eigi.

En hann svaraði og sagði: Ó, þú vantrúaða kynslóð, hversu lengi þá skal eg hjá yður vera? Eða hversu lengi þá á eg að líða yður? Færið hann hingað til mín. Og þeir færðu hann þangað til hans. Og er andinn leit hann, óróaði honum strax, féll á jörð og veltist um, froðufelldi. Hann spurði og hans föður að hversu langur tími er frá því er hann hreppti þetta. En hann sagði: Frá barnæsku. Og oftlega þá hefir hann fleygt honum á eld og í vatn að hann fyrirfæri honum svo. Ef þú orkar nokkuð, þá sjá aumur á og hjálpa okkur. En Jesús sagði til hans: Ef þú gæti trúað. Því trúuðum er allt mögulegt. Og strax þá kallaði faðir barnsins upp með tárum og sagði: Eg trúi, herra, hjálpa þú minni vantrú.

Og er Jesús sá að fólkið hljóp að, ávítaði hann hinn óhreina anda og sagði til hans: Þú daufi og hinn dumbi andi, eg býð þér að þú farir út af honum og farir eigi meir í hann þaðan í frá. Og hann kallaði upp, sleit hann mjög og fór út af honum, og hann varð sem væri hann dauður svo að margir sögðu það hann væri dauður. En Jesús hélt í hans hönd og rétti hann upp, hann reis þá og upp. Og þá hann var til húss genginn, spurðu hans lærisveinar hann leynilega að: Því gátu vær eigi drifið hann út? En hann sagði: Þetta kyn fæst með öngu öðru útrekið nema fyrir bænir og föstu. Þeir gengu og burt þaðan og ferðuðust um Galíleam. Hann vildi og eigi að það skyldi nokkur vita.

Hann lærði sína lærisveina og sagði þeim það mannsins sonur skyldi seljast í manna hendur og þeir myndi aflífa hann og þá hann væri aflífaður, mundi hann á þriðja degi upp aftur rísa. Þeir undirstóðu eigi þessi orð og þorðu þó eigi að spyrja hann að. Hann kom til Kapernaum. Og sem hann var til húss kominn, spurði hann þá að: Hvað hantéruðu þér yðar á millum á veginum? En þeir þögðu því að þeir höfðu metist um á veginum hver þeirra mestur væri. Og er hann setti sig, kallaði hann þá tólf og sagði til þeirra: Ef nokkur vill fyrstur vera, sá skal öllum síðastur vera og allra þjón. Hann tók þá eitt barn og setti það mitt á milli þeirra.

Og er hann hélt um það, sagði hann til þeirra: Hver sá sem meðtekur eitt þvílíkt barn í mínu nafni, hann meðtekur mig. Og hver helst hann meðtekur mig, sá meðtekur eigi mig, heldur hann sem mig sendi. En Jóhannes svaraði honum og sagði: Meistari, vér sáum einn þann sem rak út djöfla í þínu nafni, hver eð eigi fylgir oss eftir, og vær fyrirbuðum honum það af því hann fylgdi oss eigi eftir. En Jesús sagði: Eigi skulu þér fyrirbjóða honum það því að enginn sá ef hann gjörir kraftaverk í mínu nafni og kunni þá strax illa að tala um mig. Því að hver hann er eigi í móti oss, hann er fyrir oss.

Því hver sem yður gefur að drekka einn bikar vats í mínu nafni af því að þér eruð Krists, sannlega þá segi eg yður að hann tapar eigi sínu verðkaupi. Og hver hann skammar einn af þeim enum litlu sem á mig trúa, honum væri betra að kvernarsteinn byndist við háls honum og væri svo í sjó kastað. Og ef þín hönd skammfyllir þig, þá sníð þú hana af. Betra er þér handarvönum inn að ganga til lífsins en hafandi tvær hendur og fara til helvítis í óslökkvilegan eld, hvar eð þeirra maðkur deyr eigi og þar þeirra eldur slokknar eigi. Og ef þig skammfyllir fótur þinn, þá högg hann af.

Betra er þér höltum inn að ganga í eilíft líf en það þú hafir tvo fætur og kastist í helvískan eld óslökkvilegan, hvar að þeirra maðkur deyr eigi og þar þeirra eldur slokknar eigi. Skammfyllir þig þitt auga, þá rek það frá þér. Betra er þér eineygðum inn að ganga í Guðs ríki en það þú hafir tvö augu og sendist í helvískan eld, hvar eð þeirra maðkur deyr eigi og þar þeirra eldur slokknar eigi. Því að allir hljóta með eldi %að saltast og allar fórnir salti að saltast. Saltið er gott, en ef saltið afseltist, með hverju kryddi þér þá? Hafi þér saltið hjá yður og hafið frið yðar á milli.

← Chapter 21Chapter 23 →