The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 23

Mark · Chapter 8

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 23 of 174 · about 9 min

← Chapter 22Chapter 24 →

[ breyta] Og er hann reis upp þaðan, kom hann í endimörk Júdalands hinumegin Jórdanar. Þar kom og enn aftur margt fólk til hans og sem hann plagaði. Þá tók hann enn aftur til að kenna þeim. Farísei gengu og til hans, spurðu hann að ef manninum leyfðist að forláta sína húsfrú, freistandi hans svo. En hann svaraði og sagði til þeirra: Hvað hefir Móses boðið yður? Þeir sögðu: Móses leyfði skilnaðarbréf að skrifa og við að skilja, hverjum. Jesús svaraði og sagði: Fyrir harðleik hjarta yðvars þá skrifaði hann yður þetta boðorð. En af upphafi skepnunnar gjörði Guð þau kallmann og konu. Af því forlætur maðurinn föður sinn og móður og heldur til við konu sína, og eru svo tvö eitt hold.

Af því eru þau nú eigi tvö, heldur eitt hold. Því hvað Guð hefir samtengt, það skal maðurinn eigi sundur skilja. Og í húsinu spurðu hans lærisveinar aftur að um hið sama, og hann sagði þeim: Hver helst sem forlætur sína eiginkonu og fastnar aðra, sá drýgir hór á henni. Og ef konan forlætur sinn eiginmann og giftist öðrum, sú hórast. Og þeir færðu ungbörn til hans að hann áhrærði þau, en lærisveinarnir átöldu þá sem þau leiddu. Og er Jesús sá það, líkaði honum það eigi vel og sagði til þeirra: Leyfið börnunum til mín að koma og bannið þeim eigi því að þvílíkra er Guðs ríki. Sannlega segi eg yður: Hver hann meðtekur eigi Guðs ríki sem annað ungbarn, sá mun eigi inn ganga í það.

Og hann tók þau í fang og lagði sínar hendur yfir þau og blessaði þau. Og þá hann var út genginn upp á veginn, hljóp þar einn fram fyrir, buktaði sig fyrir honum og spurði hann að, segjandi: Góði meistari, hvað skal eg gjöra svo að eg eignist eilíft líf? En Jesús svaraði honum: Hví segir þú mig góðan? Enginn er góður nema Guð einn. Boðorðin muntu kunna, að þú skulir ei hórdóm drýgja, eigi mann vega, eigi stela, eigi skulir þú ljúgvitni mæla, eigi svik gjöra, heiðra föður þinn og móður. En hann svaraði og sagði til hans: Meistari, allt þetta hefi eg varðveitt í frá barnæsku minni. En Jesús horfði á hann, elskaði hann og sagði til hans: Eitt þá brestur þig.

Far, sel allt það þú hefir og gef fátækum, og þá munt þú hafa einn thesaur á himnum. Kom, og fylg mér svo eftir og legg kross þér á herðar. En hann varð hryggur við þessi orð, gekk þaðan syrgjandi því að hann hafði miklar eignir. Jesús leit kringum sig og sagði til sinna lærisveina. Hversu torvelt er þeim, sem peninga hafa, inn að ganga í Guðs ríki. En hans lærisveina setti tvista við þessi hans orð. Jesús ansaði enn aftur og sagði til þeirra: Sonarkorn mín, hversu torvelt er þeim, sem treystandi eru peningum, inn að ganga í Guðs ríki. Auðveldara er úlfbaldanum að ganga í gegnum nálarauga en ríkum inn að ganga í Guðs ríki. Þeir undruðust enn meir, segjandi sín á milli: Hver fær þá hjálpast?

En Jesús horfði á þá og sagði: Hjá mönnum er það ómögulegt, en eigi hjá Guði. Því að hjá Guði er allt mögulegt. Og eftir það tók Pétur til að segja honum: Sjáðu, vér forlétum allt og erum þér eftirfylgjandi. Jesús svaraði og sagði: Sannlega segi eg yður að enginn er sá, hver að fyrirlætur hús eða bræður eða systur eða föður eða móður eður börn eða akra fyrir mínar sakir og guðsspjallanna, sá er eigi meðtekur hundraðfalt aftur nú á þessari tíð hús, bræður og systur og móður og börn og akra með ofsóknum og í eftirkomanda heimi eilíft líf. Og margir verða þeir seinastir sem eru fyrstir og þeir fyrstir sem seinastir eru.

Og þeir voru þá enn á veginum að fara upp til Jerúsalem, og Jesús gekk fyrir þeim. Þá setti og hljóða við, fylgjandi honum þó eftir og óttuðust hann. Hann tók og þá tólf aftur til sín og hóf upp að segja þeim hvað yfir hann myndi koma: Sjáið það að vær förum nú upp til Jerúsalem. Og mannsins sonur mun seljast kennimannahöfðingjum, skriftlærðum og öldungum. Þeir munu og fordæma hann í dauða og selja heiðingjum. Þeir munu og spotta hann og flengja, spýta á hann og lífláta, og á þriðja degi mun hann upp aftur rísa. Þá gengu þeir Jakobus og Jóhannes, synir Sebedei, til hans og sögðu: Meistari, við viljum að þú gjörir fyrir okkur hvers sem við biðjum þig.

En hann sagði til þeirra: Hvað vilji þér að eg skuli gjöra yður? Þeir sögðu þá til hans: Gef okkur það, við sitjum í þinni dýrð, einn til hægri handar þér og annar til hinnar vinstri. En Jesús sagði til þeirra: Þér vitið eigi hvers þér biðjið. Kunni þér að drekka þann kaleik, hvern eg mun drekka, og skírast með þeirri skírn sem eg mun skírast? En þeir sögðu honum: Það getu við. Jesús sagði þá til þeirra: Að sönnu munu þér drekka þann kaleik, hvern eg mun drekka, og meður þeirri skírn skírðir verða, hverri eg mun skírast. En að setja til minnar hægri handar eður til vinstri er eigi mín að gefa yður, heldur þeim sem það er fyrirbúið.

Og þá er þeir tíu heyrðu það, voru þeir gramir upp á Jakob og Jóhannem. En Jesús kallaði þá til sín og sagði til þeirra: Þér vitið það að þeir sem sýnast hafa stjórnan þjóðanna, þá drottna yfir þær, og þeir sem eru þeirra formenn, þá hafa þeir vald yfir þeim. En það skal eigi svo vera yðar á milli, heldur hver hann vill vera yðar á milli öðrum meiri, sá skal yðar þénari vera. Og hver hann vill yðar á milli fremstur vera, sá skal allra þjón vera. Því að mannsins sonur er eigi kominn til þess að honum þjónaðist, heldur það að hann þjónaði og gæfi sína önd út til endurlausnar fyrir marga. Þeir komu og til Jeríkó.

Og að honum burtfaranda úr Jeríkó og hans lærisveinum og miklum öðrum fólksfjölda, sat Bartímeus, blindur son Tímei, við veginn og beiddi. Og er hann heyrði að það var Jesús af Nasaret, tók hann til að kalla og sagði: Jesús sonur Davíðs, miskunna þú mér. Og margir átöldu hann að hann þegði, en hann kallaði þá miklu meir: Sonur Davíðs, miskunna þú mér. Jesús stóð við og bauð að kalla á hann. Þeir kölluðu og á hinn blinda, segjandi til hans: Vertu með góðum hug, statt upp, hann kallar þig. Og hann snaraði sinni yfirhöfn af sér, stóð upp og kom til Jesú. Jesús svaraði og sagði til hans: Hvað viltu að eg skuli gjöra þér? En hinn blindi sagði honum: Rabbúní, það eg sæi.

Jesús sagði þá til hans: Gakk héðan, þín trúa gjörði þig hólpinn. Og strax þá sá hann og fylgdi honum eftir upp á veginn. Ellifti kapítuli [ breyta] Og þá þeir komu nær Jerúsalem til Betfage við fjallið viðsmjörsviðanna, sendi hann tvo sína lærisveina út og sagði til þeirra: Gangið í það kauptún sem gegnt yður er. Og strax er þér gangið þar inn, munu þér finna fola bundinn, á hverjum enginn maður hefir enn setið. Leysið hann og leiðið hingað. Og ef nokkur segir til yðar hví þér gjörið það, þá segið að hann er herranum þarflegur, og strax mun hann senda hann hingað. Þeir gengu burt þaðan og fundu folann bundinn fyrir utan dyrnar á gatnamótinu og leystu hann.

Og nokkrir af þeim, er þar stóðu, sögðu til þeirra: Hvað gjöri þér, leysandi folann? En þeir sögðu til þeirra sem Jesús hafði þeim boðið, og þeir leyfðu þeim það, og færðu folann til Jesú, lögðu og á hann sín klæði, og hann sat á honum. En margir breiddu sín föt á veginn, en aðrir hjuggu kvistu af trjánum og dreifðu á veginn. Og þeir er fyrir gengu og hinir sem eftirfylgdu, kölluðu og sögðu: Hósíanna. Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins, og blessað sé ríki föður vors Davíðs, það eð kemur í nafni Drottins. Hósíanna á upphæðum. Drottinn fór og til Jerúsalem og gekk inn í musterið og umskyggndi alla hluti. Þá að kveldi var nú komið, gekk hann út með þeim tólf til Betanía.

Og annars dags, þá hann gekk út af Betanía, svengdi hann. Og er hann sá álengdar fíkjutré, það er laufblöð hafði, kom hann að vita hvort hann fyndi nokkuð á því. Og þá hann kom þangað að, fann hann ekkert nema laufblöðin því að það var eigi fíknanna tími kominn. Jesús svaraði og sagði til þess: Hér eftir eti enginn af þér ávöxt að eilífu. Og hans lærisveinar heyrðu á það. Þeir komu og til Jerúsalem, og Jesús gekk inn í musterið, tók til út að reka þá sem seldu og keyptu í musterinu, borðum þeirra, er reiðupeningum skiptu og stólum þeirra, er dúfur seldu, hratt hann um. Og eigi lofaði hann að nokkur bæri ker um musterið.

Og hann kenndi og sagði til þeirra: Er það eigi skrifað að mitt hús skuli kallast bænahús öllum þjóðum? En þér hafið gjört það að spillvirkjainni. Það heyrðu og hinir skriftlærðu og kennimannahöfðingar og leituðu eftir hverninn þeir mættu fyrirfara honum. Því að þeir óttuðust hann af því að allur lýður dáðist að hans kenningu. Og er kveld var komið, gekk hann út af borginni. Og að morgni þá gengu þeir þar hjá og sáu fíkjutréið þurrt orðið að rótum. Pétur minntist á og sagði við hann: Rabbí, sjáðu fíkjutréið, hverju þú formæltir, er uppvisnað. Jesús svaraði og sagði til hans: Hafið trú til Guðs.

Sannlega segi eg yður: Hver helst hann segði til þessa fjalls: Lyfst upp, þú, og fleyg þér í sjóinn, og efaði eigi í sínu hjarta, heldur tryði að það myndi ske hvað hann segir, þá mun það og ske hann hvað hann segir. Fyrir því segi eg yður: Allt hvað helst þér biðjið í yðvarri bæn, trúið að þér öðlist það, þá mun það og henda yður. Og nær þér standið og biðjist fyrir, þá fyrirgefið ef þér hafið nokkurs konar af öðrum yður í gegn svo að yðar faðir, sem er á himnum, fyrirgefi yður yðar brot. Því að ef þér fyrirgefið eigi, þá fyrirgefur og eigi yður faðir yðar, sem er á himnum, yðrar syndir.

Þeir komu og enn til Jerúsalem, og þá er hann gekk í musterinu, komu til hans höfuðprestar, skriftlærðir og öldungar og sögðu til hans: Út af hverju valdi gjörir þú þetta? Og hver hefir gefið þér vald til að þú gjörðir þetta? En Jesús svaraði og sagði til þeirra: Eg vil spyrja yður að einu orði. Svarið mér, þá mun eg segja yður af hverju valdi eg gjöri þetta. Skírn Jóhannis, var hún af himnum eður af mönnum? Svarið mér. Þeir hugsuðu með sér og sögðu: Ef vær segjum að hún væri af himnum, segir hann til vor: Því trúðuð þér henni þá eigi? En ef vær segjum að hún væri af mönnum, hræðunst vær fólkið, - því að allir héldu það Jóhannes væri sannur spámaður.

Því svöruðu þeir og sögðu til Jesú: Vær vitum eigi. Jesús svaraði og sagði til þeirra: Þá segi eg yður og eigi af hverju valdi að eg gjöri þetta.

← Chapter 22Chapter 24 →