Mark · Chapter 9
Oddur’s New Testament (1540) · chapter 24 of 174 · about 5 min
[ breyta] Hann tók og til að tala við þá í eftirlíkingum. Maður plantaði víngarð og girti garð um og gróf þar vínþrúgu og byggði þar upp turn og skipaði hann með akurkalla og ferðaðist langt í burt. Og er tími var til, sendi hann þjón sinn til akurkallanna að hann meðtæki af akurköllunum út af víngarðsins ávexti. En þeir handtóku hann og börðu og létu eyrindislausan í burt fara. Og enn aftur sendi hann annan þjón til þeirra. Og hans höfuð lestu þeir grjóti og slepptu spottuðum í burt. Og þá enn aftur sendi hann annan, og þann aflífuðu þeir og fleiri aðra, suma hýddu þeir, en suma drápu þeir. Hann hafði þá enn eftir, einn sinn kærastan son.
Og hann sendi hann seinastan til þeirra og sagði: Þeir munu feila sér fyrir syni mínum. En akurkallarnir sögðu sín á milli: Þessi er erfinginn. Komi þér, vegum hann svo að vor verði arftakan. Og þeir höndluðu hann og aflífuðu og köstuðu honum út fyrir víngarðinn. En hvað mun nú herrann víngarðsins gjöra til? Hann kemur og tortýnir akurköllunum og gefur víngarðinn öðrum. Hafi þér eigi lesið þessa skrift: Þann stein er byggjendur forlögðu, hann er vorðinn höfuð hyrningar. Af Drottni er þetta gjört og er undarlegt fyrir vorum augum. Og þeir leituðu við að handtaka hann, en hræddust þó lýðinn því að þeir fundu það hann sagði þessa eftirlíking til þeirra. Þeir forlétu hann og gengu í burt.
Þeir sendu til hans nokkra af faríseis og Heródes þénara að þeir veiddu hann í orðum. Þeir komu og sögðu til hans: Meistari, vér vitum að þú ert sannsögull og skeytir eigi neinum því að þú fer eigi eftir yfirlitum manna, heldur kennir þú Guðs götu með sannleika. Hvort leyfist oss að gefa keisaranum skatt eða eigi? Hann vissi þeirra undirhyggju og sagði til þeirra: Hví freisti þér mín? Færið mér peninginn að eg sjái hann. Þeir fengu honum einn. Þá sagði hann til þeirra: Hvers er þessi mynd og innskrift? Þeir sögðu honum: Keisarans. Jesús svaraði og sagði til þeirra: Því gefið keisaranum það keisarans er og Guði það Guðs er. Og þeir undruðust yfir honum.
Þá komu og saddúkei til hans, þeir eð segja upprisuna eigi vera, spurðu hann að og sögðu: Meistari, Móses skrifaði oss að ef nokkurs bróðir létist og hefði eiginkonu eftir og léti engin börn eftir sig, þá á bróðir hans að meðtaka hans eignarkonu og uppvekja sínum bróður sæði. Nú voru þar (vii) bræður. Og hinn fyrsti tók sér eiginkonu og er andaður, látandi eigi sæði eftir. Og sá annar tók hana og andaðist, lét og eigi sæði eftir. Og líka hinn þriðji og einninn þeir (vii) tóku hana allir og létu eigi sæði eftir. Seinast af öllum andaðist og konan. En í upprisunni þá er þeir rísa upp, hvers þeirra eiginkona verður hún? Því að þeir (vii) höfðu hana til eiginnar konu.
Jesús svaraði og sagði til þeirra: Er eigi svo að þér villist, vitandi eigi ritningarnar og eigi heldur Guðs kraft? Því að þá þeir rísa upp af dauða, kvænast þeir ei né láta sig kvæna, heldur eru þeir sem englar Guðs á himnum. En hafi þér eigi lesið í Móses bók af framliðnum það þeir munu upp rísa? Hverninn sagði Guð til hans í skógarrunninum er hann sagði: Eg em Guð Abrahams og Guð Ísaks og Guð Jakobs? Eigi er hann Guð dauðra, heldur Guð lifendra. Af því villist þér mjög. Og einn af skriftlærðum gekk að, sá er heyrt hafði þá spyrjast á, sá og það að hann hafði svarað þeim vel og spurði hann að: Hvert er fyrst boðorð af öllum?
En Jesús svaraði honum: Það er fyrst boðorð af öllum: Heyr þú Írael. Drottinn Guð vor er einn Guð. Og elska skalt þú Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllu þínu hugskoti og af öllum krafti þínum. Þetta er hið fyrsta boðorð. En annað er og þessu líkt: Elska þú náunga þinn sem sjálfan þig. Eigi eru þar önnur boðorð þessum meiri. Og hinn skriftlærði sagði til hans: Meistari, í sannleik þá sagðir þú vel því að einn er Guð og enginn er þar annar en hann. Og það að hann skuli elskast af öllu hjarta og af öllum skilningi og af allri öflgan og það að elska náunga sinn sem sjálfan sig, er öllum brennifórnum meira og offri.
En er Jesús sá að hann svaraði víslega, sagði hann til hans: Eigi ertu langt frá Guðs ríki. Og enginn þorði þá að spyrja hann. Jesús svaraði og sagði er hann kenndi í mustérinu: Hverninn segja skriftlærðir Kristum vera Davíðs son? En Davíð segir sjálfur af helgum anda: Drottinn sagði mínum drottni: Sit þú til minnar hægri handar á meðan eg legg þína óvini til skarar þinna fóta. Þar segir Davíð sjálfur hann sinn herra. Hverninn er hann þá sonur hans? Og margt af fólkinu heyrði honum gjarnan.
Og í sinni kenningu sagði hann til þeirra: Varið yður við enum skriftlærðum sem ganga vilja í síðum klæðum og heilsast á torgum og sitja á fremstum stólum í samkunduhúsum og hafa hin fremstu sæti að kveldverðum, hverjir í sig gleypa ekknahús undir hylmingu langrar bænar. Þeir munu og öðlast þess þyngra glötunardóm. Og er Jesús sat gegnt ölmusuörkinni, sá hann hverninn fólkið varpaði peningum í ölmusuörkina og að margir ríkir köstuðu miklu. En þá er ein ekkja fátæk kom, lét hún tvo skarfa inn, það er einn pening. Hann kallaði sína lærisveina til sín og sagði þeim: Sannlega segi eg yður að þessi fátæka ekkja lét meir inn en allir aðrir sem inn létu í ölmusuörkina.
Því að allir létu af því inn er þeim var að auk, en þessi lét af volað sinni allt hvað hún hafði og sína björg alla.