The Bible Software
The Holy Bible · Oddur’s New Testament (1540) · Chapter 25

Mark · Chapter 10

Oddur’s New Testament (1540) · chapter 25 of 174 · about 4 min

← Chapter 24Chapter 26 →

[ breyta] Og þá hann gekk út af musterinu, sagði einn af hans lærisveinum við hann: Meistari, skoða hvílíkir steinar og þvílíkt smíði þetta er. Jesús svaraði og sagði til hans: Sér þú allar þessar miklu byggingar? Hér mun eigi eftir látast steinn yfir steini, sá er eigi verði niðurbrotinn. Og þá hann sat í fjallinu Oliveti gegnt musterinu, spurðu hann að sér í lagi Pétur og Jakob og Jóhannes og Andreas: Seig þú oss nær þetta skal ske og hvert teikn verður þá þetta skal allt til taka að fullkomnast. Jesús svaraði þeim og tók til að segja: Sjáið til að ei fái nokkur villt yður. Því að margir munu koma í mínu nafni og segja: Eg er Kristur og munu marga villa.

En þá þér heyrið af bardögum og hernaðartíðindum, óttist eigi því að þessu byrjar að ske. Endinn er þó enn eigi þá. Ein þjóð mun reisa sig og upp í mót annarri og ríki á móti ríki, og landskjálftar munu verða í sérhverjum stöðum, hungur og hrellingar munu og verða. Þetta er upphaf hryggðanna. Og sjáið til um sjálfa yður. Því að þeir munu færa yður á ráðstefnur og í samkunduhús, og þér munuð strýktir verða, og fyrir konungum og höfðingjum munu þér standa minna vegna til vitnisburðar yfir þá. Og guðsspjöllum byrjar áður að predikast á meðal allra þjóða.

Og þá þeir leiða yður og framselja, skulu þér eigi hugsa fyrir hvað þér skuluð tala, heldur hvað yður gefst á þeirri stundu, það skulu þér tala. Því að eigi tali þér, heldur heilagur andi. En bróðir mun selja bróður í dauða og faðir soninn. Börnin munu og reisast upp í mót foreldrunum og styrkja þá í dauða. Og þér verðið öllum að hatri fyrir míns nafns sakir. En hver hann er staðfastur allt til enda, sá hjálpast. En þá þér sjáið svívirðing eyðslunnar, af hverri Daníel spámaður segir, standandi hvar eigi byrjaði, - hver eð les, hann undirstandi það -, hverjir þá eru á Gyðingalandi, flýi þeir á fjöll. Og hver hann er upp á ræfrinu, fari sá eigi inn að taka burt nokkuð úr sínu húsi.

Og sá sem er á akri, hann snúist eigi á bak sér aftur að taka upp föt sín. Og ve þunguðum konum og brjóstmylkingum á þeim tímum. Biðjið heldur að flótti yðar verði eigi um vetur. Því að á þeim dögum verða slíkar hörmungar, hverjar eigi hafa verið frá upphafi skepnunnar, þá sem Guð skapaði, og allt til þessa og eigi heldur mun verða. Og ef Drottinn stytti eigi þessa daga, yrði ekkert hold frelsað, heldur fyrir útvaldra sakir, hverja hann útvaldi, hefir hann stytt þessa daga. Og ef nokkur segir þá til yðar: Sé, hér er Kristur, sé, þar er hann, þá trúið því eigi. Því að upp munu rísa falskristar og falskir spámenn og munu gjöra teikn og stórmerki til að villa, ef verða mætti, einninn útvalda.

Því sjáið til um yður. Sé, eg sagði yður nú allt þetta fyrir. En á þeim dögum eftir þessa hörmung mun sólin sortna og tunglið eigi gefa sitt skin, og stjörnur munu hrapa af himni, kraftar himins munu og hrærast. Og þá munu þeir sjá mannsins son komandi í skýjunum með dýrð og krafti miklum. Og þá mun hann út senda sína engla að saman safna sínum útvöldum af fjórum vindum allt af enda jarðar og til hæð himins. Af fíkjutrénu þá lærið eina eftirlíking. Því þá er þess kvistur gjörist frjór og laufin springa út, viti þér að sumarið er í nánd. Svo og nær þér sjáið þetta ske, vitið að það sé þá nálægt fyrir dyrum. Sannlega segi eg yður að þessi kynslóð forgengur eigi þar til allt þetta sker.

Himinn og jörð munu forganga, en mín orð munu ekki forganga. En af þeim degi eður stundu veit enginn, eigi englar á himnum og eigi sonurinn, nema faðirinn einn. Sjáið til, vakið og biðjið því að þér vitið eigi nær tíð er. Svo sem sá maður er ferðaðist langt burt, forlét sitt hús, gaf og sínum þjónum yfirvald sérhvers verknaðar og bauð dyraverðinum að hann vekti. Vakið og því að þér vitið eigi nær herrann hússins kemur, hvort að kveldi eða um miðnætti eður þá haninn gelur elligar að morgni, svo að eigi komi hann skyndilega og finni yður sofandi. En hvað eg segi yður, það segi eg öllum: Vakið þér.

← Chapter 24Chapter 26 →